Vísir - 02.08.1960, Side 11
Þriðjudaginn 2. agúst 1960
V í S I B
il
SÉRLEG4 i/AMDAÐ EFN/
OOTT SN/Ð
IIÍSEIGEXDIR
fafpíiiite nú nœgar hirtjöir ttí
FLINTKOTE
TÍL VATNSÞÉTTINGAR Á ÞÖKUM
TIL VATNSÞÉTTINGAR Á VEGGJUM
TIL GÖLFLAGNA í VERKSMIÐJUM
LEITIÐ UPPLÝSINGA Á SKKIFSTOFU VORKI EÐA HJÁ
ÚTSÖLUMÖNNUM VOKUM UM ALLT LAND.
OLIVFELAGIÐ SKELJUNGVR H.F.
Tryggvagötu, 2 — Sími 2-44-20.
•.!
60 skip me5 síld vi5
Austfir5i.
Engin veiði fyrir öllu Norðurlandi.
Frá fréttaritara Vísis.
Raufarhöfn í morgun.
Síðan á laugardagskvöld hef-
ur verið talsverð veiði úti fyrir
austfjörðum, á Tangaflaki og
Gerpisflaki um það bil 50 sjó-
mílur frá landi. í gærkvöldi var
mikill fjöldi báta á þessum slóð
um og höfðu 60 bátar tilkynnt
afla sinn.
Veður var sæmilegt á miðun-
um og var kastað á vaðandi
síld. Fengu bátarnir frá 400 til
1000 mál. M.b. Guðrún Þorkels-
dóttir frá Eskifirði fékk 1000
tunnur í fyrrakvöld og 900
tunnur í gærkvýldi. Nær öll
síldin sem veiðzt hefur á þess-
um slóðum, hefur verið flutt á
Austfjarðarhafnir. Síldin er all
misjöfn, en mikið hefur verið
saltað á Austfjörðum nú um
helgina. ,Þá hafa nokkur skip
farið til Vopnafjarðar og til
Raufarhafnar hafa komið þrjú
skip nú um helgina og eru nokk
ur á leiðinni þar sem framund-
an er löndunarbið á Austfjörð-
um. Til Raufarhafnar komu:
Víðir II. með 1000 mál, Ólafur
Magnússon með 900 og Bjarn-
arey með 400.
Síldarleitarflugvélin fann
vaðandi síld á svæðinu 20 til 40
mílur norðaustur frá Grímsey.
Héldu nokkrir bátar á þær slóð-
ir en fengu aðeins hrafl því síld
in reyndist vera smá peðringur
í yfirborðinu. Ægir var nýlega
á vestúrsvæðinu. Varð þar vart
við nokkrar lóðningar en lítið
hefur komið út úr þeim. Er hér
um mjög dreifða síld að ræða.
Veður er hið bezta fyrir norðan
og lítur vel út með veiði í
kvöld úti fyrir Austfjörðum.
Straumur fer nú minnkandi og
batna þá aðstæður til veiða þar
eystra.
Það var upplýst nýlega á
Bretaþingi, að á undanförn-
um 5 árum hafa 78 menn,
er dæmdir voru fyrir morð,
verið látnir lausir úr brezk-
um fangelsum.
Þýsku strigaskórnir
komnir.
OLAFUR RAFN JONSSON
löggiltur skjalaþýðandi og
dómtúlkur úr og á ensku.
Sími 12073.
Raflagnaefni
KOFAR og TENGLAR, hvítir og brúnir,
inngreyptir og utan á liggjandi.
Raftækjaverzlun Islands h.f.
Skólavörðustíg 3. — Símar 17975/76.
Stúlku misþyrmt -
Framh. af 12. síðu:
þá bjöllu í bifreiðinni í því
skyni að fá bifreiðina til að
nema staðar og ökumanninn að
skerast í leikinn. Þegar það bar
ekki árangur hrópuðu stúlkurn-
ar á hjálp, en bílstjórinn skeytti
því ekki að heldur. Tóku þær
þá til sinna ráða, réðust á mann-
inn og með því að þrífa í hár
hans fengu þær fjarlægt hann
og settist hann þá í annað sæti.
Þegar til Reykjavíkur kom
hlupu stúlkurnar strax á lög-
reglustöðina, enda var- stúlkan
þá enn eftir sig eftir árásina,
fann mjög til í höfði eftir hár-
reytinguna, var og hrufluð í and
liti og sprungið fyrir á vör.
Lögreglumenn brugðu við
fundu manninn í Hafnarstræti
og tóku fastan.
Viðurkenndi maðurinn brot
sitt og iðraðist mjög. Kvað
hann það stundum henda sig
undir áfengisáhrifum að hann
verði gripinn ofsalegri bræði
og þá ekki ráða gerðum sínum
til fulls. Bauð hann stúlkunni
bætur fyrir miskann og munu
sættir hafa tekizt.
Konur slasast ...
Framh. af 1. síðu.
Stefánsdóttir, sem sat í fram-
sætinu hjá honum slasaðist tals-
vert, m. a. talið að hún hafi við-
beinsbrotnað, en annars er
blaðinu ekki fullkunnugt um
meiðsli hennar.
Farþegi í Opel-bifreiðinni,
.Ingibjörg Þorsteiöedóttir, hlaut
miki] höfuðhögg og var hún á-
samt frá Sigríði flutt í slysa-
varðstofuna. Meiðsli Ingibjarg-
ar voru þó ekki talin alvarleg.
Pólaris fór
1800 km.
I lok fyrri viku var gerð
vestra ný tilraun með Polaris-
flaug og gekk hún í öllu að
óskum.
Var skeytinu skotið 1800 km.
leið úr kafbátnum George
Washington, er hann var í kafi
úti fyrir Canaveralhöfða á
Floridaströnd. Kom flaugin
niður þar sem gert hafði verið
ráð fyrir.
Fyrir hálfum mánuði var
skotið tveimur Polarísflaugum
úr kafbáti í kafi á sömu slóðum
og var það í fyrsta skipti sem
slík tilraun heppnaðist.
Færri kusu en ætla5
var á Kýpur.
Kosningaþátttaka á Kýpur
Nar minni en við var búist, að
eins 62 af hundraði neyttu at-
kvæðisréttar síns. — Aðéins.
stuðningsmenn Makariosar og
dr. Kutchuks náðu kosningu.
Með fyrirfram samkomulagi
skiptast sæti þannig, að grísku-
mælandi menn hafa 35, þar af
flokkur Makariosar 30, en rót-
tækir (kommúnistar) 5, en
tyrkneskumælandi 15.
Frambjóðendur, sem vildu
rifta samkomulaginu sem lýð-
veldisstofnunin byggist á (Zur-
ich- og Lundúnasamkomulág-
inu) féllu í kosningunum og
glötuðu sumir tryggingafé sínu.
Málflutningsskrifstofa
MAGNÚS THORLACIUS
hæstaréttarlögmaður.
Aðalstræti 9. Sími 1-1875.