Vísir - 10.03.1961, Blaðsíða 3
Fösiudaginn 10. marz 1961 VfSIR g
, ■ .........; )■ - — ■■■—«- _ ■_■■■■ ■ • ... _
lll LÉTTMETI lll
Eins og sagt hefur verið frá á
þessari síðu, þá er hin fræga Marilyn
Monroe nú með öllu skilin við mann
sinn, leikritaskáldið Arthur Miller.
Það vakti strax í upphafi athygli, að
skáldið yfirgefa fyrri konu sína, til
að giftast MM, sem fram t.il þess
tíma var aðallega þekkt fyrir kyn-
þokka sinn. Að vísu tókst Miller að
gera leikkonu úr henni, en ánægð
var hún ekki. Metorðagirnd hennar
og þrá eftir sífellt nýjum persónu-
legum sigrum fékkst ekki samrýmzt
hjónabandinu, og nú er hún lögð upp
í nýja leit að stærri sigrum — ein
síns liðs. — Myndin hér á
síðunni birtist á þennan hátt í er-
lendu tímariti fyrir nokkru., og á að
tákna hinar tvær stefnur í lífi hennar
sem háfa togazt á — löngun eftir
sálarfrið- og frægð.
PÓLSKI „KJALLARINN"
Hvernig svo sem menn líta á mál-
ið, þá verður ,,kjallarinn‘‘ okkar
hérna í Reykjavík að teljast heldur
óvistlegur næturstaður. Nú er það
fyrirbrigði hins vegar ekki aðeins
íslenzkt, að menn finnist öfurölvi á
almannafæri. Nýlega lásum við grein
i ensku blaði um hvernig þeir fara
að í slíkum tilfellum í Póllandi, og
það verður að segjast hreint út, að
heldur verður bað að teljast mannúð-
legri meðferð sem viðeigandi fá þar.
Ef lögreglan finnur einhvern ofur-
ölvi, er hann tekinn, fluttur í sér-
staka stofnun, þar sem hann er tek-
inn, baðaður, og látinn hafa hrein
náttföt. Síðan er gerð læknisskoðun,
og ef eitthvað er athugavert, þá fær
viðkomandi læknismeðferð. Síðan er
„sjúklingnum“ komið í sjúkrarúm,
þar sem hann er látinn sofa úr sér.
Daginn eftir er hann látinn greiðá,
sem svarar gistingu á hóteli, í stað
ölvunarsektarinnar. Hvernig væri að
taka þetta til athugunar hér?
I ★
Ekki vitum við, hvort myndrn hér að ofan hefði komizt á ljósmynda-
sýningar þær sem hér eru haldnar í bænum um þessar mundir. Hins
vegar birtist hún fyrir skömmu í víðlesnu bandarísku tímariti, og þar var
skýrt frá því, að hún hefði verið tekin á danshúsi nokkru í Nevv York
borg, er þar fór fram danskcppni. Og viti menn, bótt hún hafi ekki
ballerinulegt útlit, daman hér að ofan, þá reyndist hún þó öðrum liðugri
og léttari á fæti og vann til fyrstu verðlauna. Já, það geta fleiri haft
gaman af dansi cn bara hinar kornungu og tágrönnu. Nafn dömunnar vit-
tun við ekki, en það skiptir heldur minnstu máli. Aðalatriðið er að hún
stóð sig með prýði.
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
Er Khopatra gamla oríín reið og viit
stöðva myndina um sig ?
Kvikmyndaleikarar eru eitt vinsælasta fréttaefnið, stundum vegna þess
að þeim vegna vel — og stundum vegna þess að bjátar á. — Eins og
kom fram í fréttum á sínum tíma, þá hófst í fyrrahaust taka myndar-
innar „KIeopatra“ í London. Var Elizabeth Taylor valin til þess að fara
með aðalhlutverkið, — þ. e. sjálfa Kleopötru. Var myndin komin allvel
á veg, er hún veiktist skyndilega, og var lögð á sjúkrahús, með ókenni-
legan sjúkdóm. Gekk svo Icngi, að til hennar voru kallaðir helztu og
beztu læknar stórborgarinnar, þ. á. m. einn af líflæknum drottningar,
og voru menn ekki ó
eitt sáttir hvað veldi.
En svo fór um s'ðir, að
Elizabeth tók aftur
heilsu sína, en þá. var
orðið áliðið hausts, og
öll útimannvirki sem
til myndarinnar þurfti
voru farin að Iáta ó
sjá. Var tökunni frest-
að um stund, en hún
hélt til heima síns aft-
ur. Nú fór hún hins
vegar aftur til London
fyrir viku rórnri, en
varð um leið skyndi-
lega veik, svo að um
hríð var talið að hún
ætti aðeins nokkrar
klukkustundir ólifaðar.
Þegar hetta er skrifað
er hún enn veik — og
nú er mönnum spurn:
Er Kleopatra gamla
eitthvað óánægð með
meðferð þá. scm hún
fær í myndinni? —
Kannske fer bað líka
svo að liætt verður við
allt saman. Hér er leik-
konan með manni sín-
um E. Fischev.