Vísir - 10.03.1961, Side 10

Vísir - 10.03.1961, Side 10
IIL VISIR Föstudaginn 10. marz 1961 JENN1FER AMES: rfamica- ARFUKIMN 39 Janet fannst að Heather langaði til að hún yrði lengur. Og ]hana langaði til þess sjálfa. — Já, þökk fyrir — ég ætia þá að síma, sagði hún. — Komið þér með mér. Þér viljið kannske þvo yður um hend- urnar líka. Við getum farið upp í herbergið mitt. Það er sími þar.1 i Hún símaði og Kurtz virtist mjög áfram um að hún yrði lengurj og borðaði kvöldverð hjá Wyman. Heather hafði sest á rúm- (stokkinn. Janet tók eftir að hendur hennar skulfu, eins og hún ,væri ekki búin að ná sér enn eftir heimsókn Ferdysi j — Þetta var leiðinlegt atvik, sagði hún loksins. — En eins og1 eg sagði var það frekja af Ferdy að koma. Hann veit aö allt er .búið milli okkar. Og hann veit hvaða álit pabbi hefur á honum. Janet svaraði ekki. Hún vissi það var von á meiru. , — Yður gildir þetta einu, svo að ég ætti ekki að gera yður leiðindi með þvi að tala um það. — Jú, ég vil mjög gjarna heyra hvernig í þessu liggur. — Jæja, þér vitið að við Ferdy höfum verið trúlofuð. Við höf- um þekkst árum saman, og við höfum alltaf.... okkur hefur alltaf litist vel hvoru á annað. Og við skemmtum okkur afar vel saman. Ferdy er einstaklega skemmtilegur, skal ég segja yður. ■ — Eg kann einstaklega vel við hann, sagði Janet hlýlega. — Já, það er satt — þér þekkið hann vel, sagði Heather og 5hú brá fyrir fjandsamlegri grunsemd í augum hennar. — Nei, ekki vel. Við höfum aðeins verið saman eitt kvöld. — Jæja, Ferdy kom hingað og heimsótti okkur, og það leyndi sér ekki að pabba leist ekki á hann. Honum líkar yfirleitt illa við blaðamenn, og þó verst við slúðudálka-blaðamenn, eins og Ferdy. Auk þess finnst pabba líklega, að ekki sé neitt nógu gott handa mér nema prinsar eða eitthvað í þá áttina. En mín vegna ætlaöi hann þó að taka Ferdy gildah, en svo.... hvernig gat Ferdy verið svo vitlaus að skrifa þessa grein? Hún skaðaði bæði hann sjálfan — og okkur. — Hverskonar grein var þaö? spurði Janet. Hún var sest á rúmstokkinn líka. — Það var flónsleg — flónsleg — grein um einhverja veslings innfædda leiguliða, sem áttu að fara burt af býlunum sínum. Þeir áttu þau ekki, þó þeir hefðu búið þar árum saman. Þeir áttu ekki einu sinni kofana, sem þeir bjuggu í. Pabbi stjórnar íyrirtækinu, sem keypti allar þessar hjáleigur. Það er meiningin *að reisa stórt gistihús á þessu landi. Einhver leiguliðinn náði í Ferdy og þuldi fyrir honum langa raunarollu um meðferðina á sér, og að nú mundi hann svelta í hel. Og Ferdy fór beint til pabba og bað hann um að hætta við söluna. Þér getið hugsað 'yður hvernig pabbi tók því. Og þegar Ferdy sat við sir.n keip ,sagði pabbi honum að fara til fjandans. Hann fór og skriíaði svo þessa grein. Um leiguliða sem væri fleygt út á gaddinn. Og félag pabba var kallað braskfyrirtæki auðvaldshákarla. Greinin vakti feikna athygli, og þegar pabbi ók um Kingston fyrir skömmu þékkti skríllinn hann og kastaði grjóti í bílinn hans. Og pabbi varð að fresta framkvæmdunum og svipast um eftir lóð á öðrum staö. Þetta var hræðilega leiðinlegt, allt saman. Janet sagði ekkert. Hún vissi sannast að segja ekki hvað hún ætti að segja um þetta. — Hvað segið þér um þetta? Rödd Heather varð skarpari. — Eg.. . .já, þetta kemur nú ekki mér við..... — Nei, að visu ekki, sagði Heather óþolinmóð. En það væri nú gaman að heyra álit yðar samt. — Eg tel víst að Ferdy hafi gert það, sem hann áleit rétt, sagði Janet varfæmislega. — Vitanlega gerði hann það. Eg held ekki að hann hafi gert það til þess að ergja pabba, eingöngu. En hvers vegna geröi hann það? — Honum hefur líklega fundist að einhver yrði að geira það, til þess að fátæklingamir misstu ekki heimili og lífsuppeldi. — Þér álítið þá að þetta hafi verið gert af eintómum mann- kærleika? — Já, ég er sannfærð um það, sagði Janet rólega. — Þér eruð afleit og Jason, sagði Heather. — Hann tók líka svari Ferdys. Eg hef ekki sagt pabba frá því, vegna þess að þá mundi hann reka Jason af heimilinu viðstöðulaust. Mig langar ekki til að missa alla vini mína. Þá yrði drepleiðinlegt hérna. Janet herti upp hugann. — En ef Ferdy hefur haft svona mikla samúð með aumingjunum — finnst yður þá ekki aðdáun- arvert að hann skyldi reyna að hjálpa þeim.... jafnvel þó hann ætti á hættu að missa yður fyrir bragðið? — Hann vissi ofurvel, að það hlaut að kosta að hann missti mig. — En þér hefðuð getað stutt hann að málum — þó faðir yðar væri aðili að þessu. Þið voru trúlofuð! — Styðja Ferdy! Gegn pabba! Þér þekkið ekki hann pabba, annars munduö þér ekki tala svona. Mér var það ómöguiegt. — Eigið þér við að þér séuð hrædd við hann — Eg veit eiginlega ekki hvort ég er það, sagði Heather aræmt. — En það er ekki auðvelt að standa uppi í hárinu á honum pabba.... Jafnvel fyrir mig. Hann sýnist vera hægur og Ijúf- ur.... en okkur mömmu tókst aldrei að ráða við hann. Jafnvel ekki mömmu. — Ef þér hafið elskaö Ferdy.... byrjaði Janet, en Heather tók fram í: — Æ, elska.... Maður getur alltaf orðið ástfanginn aftur. En ég get ekki skipt um föður, og ef ég brygðist honum mundi hann aldrei fyrirgefa mér. Það væri úti um mig þá. — Mundi það skipta miklu máli, ef þér væruð giffc manni, sem þér elskuðuð? sagði Janet. Heather baðaði út höndunum. — Þér eruð tepruleg. Ástin get- ur fokið út í veður og viird, og hvað verður þá, ef maður er pen- ingalaus? Nei, Ferdy var flón, og nú verður hann að súpa af því seyðið. Við verðum að gera það bæði. Hún spratt upp af rúm- stokknum og Janet sá tár í augunum á henni. — Afsakið þér að ég er að gera yður leiðindi með þessu, sagði hún. — En ég mátti til með að tala um það.... Ef þér viljið laga yður eitthvað til þá er héma allt, sem þér þurfið á að halda. Eg verð hklega að líta eftir hvernig hinu fólkinu líður. Þér komið svo þegar þér eruð tilbúin... Hún gekk hratt út úr herberginu. Janet þvoði sér um hendurnar og strauk greiðu gegnum hárið. Svo fór hún út á svalirnar og horfði á útsýnið. Það var svalt úti, og hana langaði allt i einu til að vera ein um stund. Samúð hennar var með Ferdy, en samt vorkenndi hún Heather, því að það var svo að sjá að henni þætti vænt um hann og hún var augsýnilega raunamædd yfir því, sem gerst hafði. En það var aðeins Heather sjálf, sem nokkru gat áorkað i þessu máli, og hún var líklega hrædd við fciður sinn — eða réttara sagt um að missa peningana hans. . Janet var í þann veginn að fara inn aftur er hún heyrði manna- mál í myrkrinu. Hún gat ekki stillt sig um að bíða úti, er hún heyrði Jason segja: — Jú, vist er hann hérna út frá. í þessu ískyggilega sjúkrahæli. Eg hef heyrt að Kurtz hafi dyttað að skjánum á honum til að gera hann óþekkjanlegan, en maður þarf ekki á andlitinu að halda til þess að þekkja hann. Þeir reyna sjálfsagt að koma honum burt hið fyrsta, eins og hinuin, sem hafa verið þarna.... Eg hef haft grun um þetta lengi. Það var hin djúpa rödd Hartsons sem talaði. — Já, og í þetta sinn skulu þeir ekki ganga úr greipum. Þeir hafa verið óskiljanlega heppnir hingað til. Og skrambi duglegir. Þetta stóð allt heima, þá loks við komumst á sporið eft.ir þeim. Kurtz varð að haía éitthvað til að lifa af, og við vissum ao hann hafði veriö snillingur í að breyta andlitum. Það var þess vegna sem hann sat inni — hann hafði hjálpað sakamönnum með þessu — til að komast undan. Við höfðum auðvitað enga endan- A KVÖLDVOKUNNI híU8-)< R. Burroughs —TARZAN— IBiSSaŒBIffinip íri, sem hafði fengið sér held- ur um of í staupinu, varð af- skaplega hnugginn yfir hegð- an sinni og ákvað að fara og iganga til skrifta. Presturinn jsá hvernig ástatt var um mann- inn og sagði ljúfmannlega: — Það er betra að geyma þetta þangað til í næsta sinn, Pat. Farðu nú heim og farðu í rúmið eins og almennilegur maður. Þú hefir þó ekki drepið neinn, er það? — Vitanlega ekki, muldraði Pat og fór. Á leiðinni heini hitti hann vin sinn Tim Mur- phy, sem ætlaði líka að gangá til skrifta. — Það er ekki til neins fyrir þig að fara að finna hann í kvöld, sagði Pat. — Faðirinn hlustar bara á skriftir um morðmál í kvöld. Ágóði varð 45 þús. kr. Eins og bæjarbúum mun'í fersku minni hélt Hljómsveit bandaríska flughersins í Ev- rópu 3 hljómleika í Austurbæj- arbíói, þ. 9., 10. g 11. febrúar s.l., á vegum Lionsklúbbsins „Baldurs“. Skyldi öllum ágóða af hljóm- ; leikunum varið til þess að stofna sjóð til áhaldakaupa fyr ir Barnaspítalann, svo sem lækningatækja, rannsókna- tækja o. fl. Hljómleikarnir voru vel sóttir, og nutu áheyrendur hinnar frábæru tónlistar, er hljómsveitin flutti, sér til. ó- blandinnar ánægju. Nú hefur formaður Lions- ' klúbbsins Baldurs, Jósef Björns son fulltrúi, afhent formanrii Kvenfél Hringsins upphæð er nemur kr. 45.123.00, sem er á- góðinn af hljómleikunum. Kvenfél. Hringurinn þakkar hjartanlega þá einstöku velvild og skilning á starfi félagsins, er , þeir klúbbfélagar hafa sýrit með því að beita sér fyrir þess- ari fjáröflun. Einnið er ljúft að bera fram þakkir til þeirra að- ila bandaríska varnarliðsins hér á landi, sem hafa lagt þessu máli lið, af mikilli höfðingslund og síðast en ekki sízt, til Hljóm sveitar bandaríska flughersins í Evrópu. 37.17 Tarzan skreiddist á fætur og fór til félaga sinna. Eg |. hefi aldrei séð nokkurn [ mann hlaupa svona hratt, BtUT ALL SFECU- LATION WAS SU77ENLV STOPFE7SVAN AIA\E7 S7EAK- sagði hann.. Þeim gafst ekki tóm.til að velta vöngum yfir þessum atburði þvi hvinur af spjóti kom þeim til að hrökkva saman. Spjótið festist í tré yfir höfði Tarz- ans og brátt voru þeir um- kringdir af grimmdarlegum vopnuðum svertingjum. Kin „eínu, sönnu/# ástarbréf Shaws. Fundist h.afa um 300 bréf, sem Bernard Shaw skrifaði konu sinni — mörg þeirra áður en bau giftust. Þau verða gefin út af kunnum manni, Dan H. Lawrence, sem segir þetta hans einu og sönnu ástarbréf, en Shaw hafði annars gaman af að skrifa vinkonum sínum, en sennilega hafa þær — og lesendur þeirra síðar meir, lesið meira úr þeira en Shaw mun hafa gert ráð fyrir.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.