Vísir - 13.03.1961, Side 3

Vísir - 13.03.1961, Side 3
3 .Mánudaginn 13. marz 1961 VÍSIR * FKAMFARIR OG TÆKNI > Sjénvarpskennsla í bandarískum skólum. Talið er, að 44 af hvérjum 100 manns í heiminum séu ó- læsir og óski'ifandi. Til þess að bæta úr þessu eru þær kennslu- aðferðir, sem hingað til hafa jxekkst, ófullnægjandi, og því hefur athygli skólamanna um allan heim nú beinzt að því að íxota sjónvarp til kennslu. í Marylandfylki í Bandaríkj- unum hafa nokkrir skólar á- kveðið að hafa samvinnu næstu 5 árin um tilraunir með sjón- varpskennslu. Að jafnaði er sjónvarpað 25 kennslustundum á' dag í þessum skólum. Nem- endurnir sitja í skólastofunni og horfa á það, sem fram fer á sjónvarpstjaldinu. Sumir bekk- ii-nir hafa sjónvarpskennslu í eina eða tvær stundir daglega, aðrir minna. Námsgreinarnar, sem þannig eru kenndar, eru margar, og námstilhögun mis- munandi. Ýmist er sjónvarpað kvikmyndum um námsefnið, eða kennarinn kemur sjálfur í sjónvarpsstöðina og kennslunni er sjónvarpað samtímis því, að hún fer fram. í sama fylki í Bandaríkjun- um er verið að ijúka við að byggja tvær „fljúgandi kennslu- ' stofur“. Það eru stórar flugvél- \ ar af gerðinni DC-6AB, önnur þeirra er til vara og tekur við, ef sú fyrri bilar. í vélunum eru sjónvarpsstöðvar, sem sión- Sjónvarpið mun ekki koma í stað kennaranna, heldur verður það hjálpartæki fyrir þá. Einn af helztu kostunum er talinn sá, að.nemendum í litlum skólum, fjarri stórborgum, gefst tæki- færi til að fá sömu kennslu og öðrum. varpa kennslu til skóla í allt að 250—320 km. fjarlægð frá vél- inni, þar sem hún svífur hátt uppi í loftinu. Á þann hátt fær fjöldi nemenda fyrsta flokks kennslu í ótal námsgreinum, bæði í börgum og sveitum. Á skólaárinu 1958—59 var sjónvarp notað til beinnar kennlu í reglulegum kennslu- stundum í 569 barnaskólum og 117 æðri skólum og háskólúm í Bandaríkjunum. Þeirrar kennslu nutu samtals 600 þús. nemendur — 500 þús. börn og 100 þúsund stúdentar. Árangur- inn af þessari kennslu lofar góðu, þrátt fyrir tæknilega oyrjunarörðugleika. í fyrsta lagi hefur sjónvarpið á að skipa úrvals kennurum, auk sérfróðra kennara í ýmsum greinum, t. d. í . tónlist og öðrum listum. Þessir kennarar hafa meiri tírna til þess að skipuleggja hverja kennslustund og í-aða niður efninu, svo það verði sem að- gengilegast. Þannig getur sjón- varpið boðið upp á vandaðri kennslu en yfirleitt gerist í skólum. í öðru lagi kemur sjón- varpskennsla sér eirtkar vel í sveitum, þar sem skólar eru litlir. Með hjálp sjónvarpsins geta sveitaskólarnir veitt nem- endum sínum fullkomna fræðsiu í ýmsum sérgreinum, þó að þeir hafi ekki yfir að ráða sérstökum kennslustofum og tækjum eins og stóru skólarnir í borgunum. í þriðja lagi léttir sjónvarpið af kennurunum mik- illi byrði, svo að þeir geti gefið sig meir að einstökum nemend- um, eftir því sem með þarf. En jafnframt hefur sjónvarpið t. d. aukakennslu fyrir nemendur, sem ekki geta fylgzt með jafn- Aðalstöðvar kennslusjónvarpsins eiga að verða við Purdue I University í Lafayette, Indiana. Flugvélin sem ber sendinn mun fljuga í 23.000 feta hæð. Sendingar hennar munu ná til 13.000 skóla með fimm milljón nemendum. Stöngin sem gengur niður úr flugvélinni framanverðri er dregin inn í flugtaki og lend- ingum. öldrum sínum og þurfa sér- stakar kennsluaðferðir. í : fjórða lagi er hægt að kenna fleiri nemendum með sjón- varpskennslu, þótt kennarar séu færri. Þetta síðasta atriði er ekki sízt veigamikið. Nú standa æðri skólar og lægri í Bandaríkjun- um og annars staðar í heiminum andspænis því vandamáli að jfræða vaxandí fjölda némenda, en jafnframt fjölgar kennurun- um ekki að sama skapi. Hér mun sjónvarpið án efa verða til mikils hægðarauka, bæta I kennsluna og minnka kostnað- J inn. Það kemur sér ekki sízt vel | í þeim löndum, þar sem mikill hluti íbúa er hvorki læs né ski'if- andi, og kennarar of fáir, til þess að hægt sé að bæta úr á- standinu á skömmum tíma. • Árið 1959 athuguðu fjórir bandarískir sérfræðingar mögu- leikana á því að nota sjónvarp til kennslu á Indlandi, en þar er allur þorri manna hvorki læs né skrifandi. Þeir komust að þeiri'i niðurstöðu, að í sjóh- varpi mætti kenna milijónum fulloi'ðinna manna að lesa og skrifa fyrir sem svarar tæpum 40 aurum á hvern nemanda. Framh. á 9. síðu. Skartgripur, eða . . Sitthvað uni flugvéfamóðurskip í kafi, insúlín og fCeira. r margsinnis konxið I Ritstiórinn. Ravmond Black-'og upplýsa hina margvíslegu'hún tekur að senda Það hefur margsinnis komið fram í fréttum á undanförnum árum, að sífellt fleiri og fleiri lierskip eru að verða úrelt. Það sem einu sinni var stolt flotans, liggur kannske í dag og bíður þess að verða höggvið upp. Þess vegna vakti það ekki litla at- liygli nú fyrir skömmu, er rit- stjóri „Jane's Fighting Ships“, sem er talin biblía bandaríska flotans, gat þess í formála að 63. útgáfu ritsins, að innan tíu ára mætti búast við því, að flugvélamóðurskip yrðu kaf- bátar. Það sem átt er við með þessu, er að stríðstækni nútímans er orðin gjöi'ólík stríðstækninni, eins og hún var í síðasta stríði, að venjuleg herskip, þótt ný- byggð séu, eru ekki vænleg til þess að haldast lengi ofansjáv- 'ar ef til ófriðar di'ægi. Þótt það sé áð sjálfsögðu von flestra, að ekki kom til slíki'a skelfinga nú á kjarnorkuöldinni, þá haga •hernaðaryfirvöldin sér ætíð í samræmi við það sem gæti orð- ið, og þess vegna er sífellt verið að gera áætlanir sem svara kröfum tímans. Ritstjórinn, Raymond Black- mann, segir, að ef flugvélamóð- urskip framtíðarinnar eigi að , fá staðizt í stríði, verði þau að ^ 'geta horfið undir yfirboi'ð sjáv- ar og það sem meira er, látið 1 flugvélar þær sem um borð eru, hefja sig til flugs á meðan skipið er enn í kafi. Efnafræðingur við háskólann í Pennsylvaniu í Bandaríkj. og japanskur starfsbróðir hans eru sagðir vel á veg komnir með að „búa til“ insúlin. Insú- lin er, eins og kunnugt er, gefið sykursjúku fólki, og er þess vegna eitt af þýð'ingarmestu lyfjum sem til eru. Til þess að „framleiðsla“ þessa efnis í til- raunastöðvum megi takast, þarf hins vegar að fást fullkom- in þekking á mólekúlbyggingu ; efnisins. Það er liins vegar flók- ið að byggingu, en tækist það, samt sem áður, yrði það í fyrsta skipti sem tækist að upplýsa al- veg, og líkja eftir, mólekúlbygg- ingu eggjahvítuefnis. Ef þetta tekst, getur það orð- ið að miklu liði við að athuga og upplýsa hina margvíslegu hormónastarfsemi líkamans. Einnig má þá búast við að gera megi afbrigði af efninu sjálfu, eins og það kemur fyrir í líkam- anum, og þau afbrigði gætu tek- ið sjálfu insúlíninu fram, eins og oft vill verða í slíkum tilfell- um. Insúlínmólekúið hefur löngum verið rannsóknarefni, og brezki nóbelsverðlaunahaf- inn Fi'ederick Sanger varð fyrstur manna til að koma fram með ákveðna hugmynd um byggingu þess. Ef allt fer að líkum hjá þeim félögum, fæSt e. t. v. í fyrsta skipti hrein og bein sönnun fyi'ir skoðun Sang- ers. Fundin hefur verið upp út- varpspilla. Það er að segja, pilla sem hefur inni að halda lítinn útvarpski-ystal, og smávír, sem notaður er sem loftnet. Þegar sjúklingur hefur verið látinn gleypa pilluna, er sérstakt tæki sett í gang (sem sjúklingui'inn þarf ekki að gleypa), og það hleypir lífi í pilluna, svo að |hún tekur að senda frá sér ýms- |ar upplýsingar um meltingu viðeigandi. Enn er ekki getið |með hvaða bragði farið er að 'framleiða pilluna. Fundið hefur verið upp nýtt gerviefni, sem er svo sterkt,, að hver þráður getur borið 500 —600 sinnum sína eigin þyngd. Það er fyi'irtæki í New York, sem heitir Toscony Inc. sem framleiðir þetta efni undir nafninu Super Filmtex. Efnið er gert af vinyl-nylon og vinyl Dacron. Auk styrkleika hans hefur efnið til að bera marga góða hæfileika, svo sem þann, I að vera eldfast, vatnshelt, og hrindir um leið frá sér olíu og i sýrum. Það mun einkum vei'ða hagnvtt í blæjur á bíla o. þ. h. i i ’ i •_ . • ;... , >■/ V " 7 Marggjftur milijónai'i giftir sig venjulega fyrst 29 ára gam- all. Önnur gifting hans gQrist þegar hann er 51.árs, Sú þi’iðja þegár hann. er .59 ára. Hann lætur eftir sig 2% barn, vergulega dætur. Hvað er það sem veldur hinni reglulegu og fögru myndun snjóskristalla. Það hefur lönguni verið eitt af undrunarefnum þeirra sem athugað lxafa snjó- kristalla, live reglulegir þeir cru. Nú hefur brezkur eðlis- fræðingur, Samuel Tolansky, komið fram með hugmynd, þar sem hann segir, að megínorsök- in fyrir þessu sé titringur. Þeg- ar snjókorn fellur til jarðar,- verður það fyrir titringi á leið inni gegn um loftið. Þessi titr- ingur er hins vcgar ekki alls staðar jafnmikill, og þess vegna frýs vatnsgufan þar seni titring- urinn er minnstur. Þegar fyrsti vísir snjókristallsins mýndast; er þár um aðræða 6 hyrndán dropa, sem síðan vérður eins og myndin hér að ‘ofan sýnir, — fallegur kristall, sem gæti verið skartgripur.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.