Vísir - 22.03.1961, Blaðsíða 3

Vísir - 22.03.1961, Blaðsíða 3
Miðvikudagum -22. marz 1361 VISIB ________________________—---—-—-1 SÆLIH EHL SKÁGFIHDIIVGAH ^ ^ ^ , ☆ Sæluvíka Skagfirðinga Söngvatn forsöngvavans. Stutt viðtal við góðbónda í Skaga- firði, sem hefur sótt Sæluvikuna á hverju ári síðan 1917. skemmtunum. Sveitafólkið læt- ur ekki sitt eftir liggja og hef- ur raunar aidrei gert í sam- bandi við sæluviku. í gærkvöldi var eg staddur á dansleik í ,,Bifröst“. Þar var margt um manninn og gleði góð. Uppi í salnum dunaði dansinn, en á neðri hæð, í „kjallaran- um“, var ekki síður gleði á ferðum. Þar voru þeir er minna gáfu fyrir dans, og sátu yfir glösum sínum. Líklega heiur mjöðurinn hjá mönnum þar verið ósvikinn, því mikið var sungið. Ég vék mér þarna að góð- bónda framan úr Skagafirði, sjötugum að aldri. Sat hann við borð með syni sínum fullorðn- um og fleiri sveitungum, sem allir sungu við raust. Hann taldi nú fyrst, að hann mætti naum- ast eyða þessari dýrlegu og hraðfleygu stund í það að ræða við blaðasnáp, en gerði mér þó úrlausn nokkra. Mikil breyting síðan. ,,Þú hefur oft lagt leið þína hingað á sæluviku?“ „Já, á hverju ári síðan 1917, og ætíð haÞ ánægju af.“ „Finnst þér nú ekki orðin mikil brevting á skemmtanalífi — ja, segjum síðan 1917?“ „Ójú, að vísu. Einkum er orð- ið meira um skemmtanirnar, og auðveldara að sækja þær. Þá voru ekki aðrar skemmtanir og hingað á Kr.ókinn, en mað- ua var ungur þá og lét slíkt ekki á sig fá. Dansað alla nótt- ina, kunningi, og síðan haldið heim til gegninganna í morg- Unsárið." Erfitt — en borgaði sig. „Heldurðu að þetta hafi nú I borgað sig?“ „Borgað sig? Ja, við hvað skal miða, drengur? Jú — það held ég. Auðvitað var þetta erfitt, því oft fór maður á þrjú til fjögur böll í rvkk, lítið, sofið, — en gamanið var líka ósvik- ið.“ „Hvað var nú helzt til skemmtunar auk dansins?“ „Þetta svipað og nú er, sízt fábreyttara. Söngur, sjónleikir, málfundir o. fl., o. fl.“ „Hvað er þér nú minnisstæð- ast af skemmtiatriðum frá þess- um löngu liðnu árum?“ „O, blessaður vertu, „Bænda- kórinn". Það voru nú karlar, sem gátu sungið. Aungvir tist- arar.“ Svipmyndir iir „Kjallar- anum“ í Bifröst á Sauðár- króki, har sem „Kjallara- kórinn“ tekur lagið, og menn væta yfirleit kverkarnar með söngvatni, sem mýkir bæði rödd og skap. Sungið af tilfinningu: „Nú er hlátur nývakinn . . . “ „Það var óvera, varla nokk- uð. En mér er nú ekkert illa við brennivín, já, svona fyrir mig. Það er ekki brennivininu að kenna að menn drekka of mikið af því. Þú getur líka ét- ið þig veikan af hræring eða hafragraut, sem þó er talin holl fæða.“ „Ég ét nú mjög sjaldan hafra- graut.“ „Jæja. Það er, heimskulegt. En sleppum þvi. „Finnst þér nú svona yfirleitt, að skemmtanahaldi hér í sælu- hafi hrakað á síðustu árum?“ „Nei, það tel ég ekki. Má kannske segja, að jmgri menn- irnir ættu að taka smærri sopa, þegar líða fer á kvöldið, ja, ur þær, sem þú hefur á „sælu-j vikunni“?“ „Ja, varla, nema auðvitað all- ar þær óteljandi ánægjustundir, j sem hún hefir veitt mér — og svo •—ja, ég held nú jafnvel; að ég hafi fyrst kynnzt konunni minni hér á balli í „sælu- viku“.“ Það var og. Ég þakkaði þess- um roskna vini mínum fyrir spjallið. Hann hraðaði sér að borðinu og fékk sér slurk úr ghasi, sem þar beið hans. Ég gekk út úr kjallaranum og á eftir mér hljómaði „Nú er hlát- ur nývakinn, nú er grátur treg- ur------“. Á. Þ. ★ Frá fréttaritara Vísis. Sauðárkróki 18. marz. Nú líður að lokum sœluviku. Veðrið hefur verið heldur í lak- ara lagi, þó aldfei verulega slæmt. Fólk hefur samt sótt skemmt- anir sízt minna en áður. Má segjá, að alltaf sé fullt á öllum hér en „Sæluvikan“, sem í þann tíð var kölluð „Sýslufundar- vika“, vegna þess að sýslufund- ur var haldinn samtímis. Böll voru svo til óþekkt, a.m.k. í sveitinni. Þetta var ekki tekið út með sitjandi sælunni, maður. „Verkin" þurfti að gera, hvað sem tautaði. Kýrnar þurftu gjöfina sína á réttum tíma og engar refjar, og regla þui'fti einnig að vera á um fjárhirð- ingu. Ég gat ekki komizt af stað fyrr en gegningum var lokið. Það var nú allt í lagi þeg- ar gott var færi, því maður hafði nú löngum hest á járnum. En það var lakara, ef ótíð og ófærð var. Það er röskur tveggja tíma gangur framanað „Hverjum manstu nú sérstak- lega eftir þar?“ „Sigurði Skagfield, Þorbimi á Geítaskarði, Haraldi á Völlum að ógleymdum Stefáni íslandi; hann var siðustu árin. Nú, svo má ekki gleyma Benedikt á Fjalli, þeim fimbulbassa. Þeir voru allir bændur, eins og ég, og bjuggu sinn í hverri áttinni í héraðinu. En þeir mættu samt á Króknum kannske fimm kvöld í röð til þess að syngja, og alltaf var fullt hús. Já, það voru söngmenn.“ Ekkert illa við brennivín. „Var nú nokkuð um brenni- vin á böllum þessf fyrstu ár?“ svona einstaka, en annars fer þetta allt fram, það. ég veit til, með ró og spekt, þótt pógur sé hávaðinn.“ Áfram með sæluvikuna. „Þú telur þá, að við eigum að halda áfram með okkar „sæluviku“ í framtíðinni?“ „Já, ég vona að hún lifi mig. Og pannig veit ég að fleiri rosknir bændur hér hugsa. Við komum hér einu sinni saman á ári -og köstum þá ellibelgn- um um stund, því skyldum við ekki mega það?“ „Nú ætla ég að spyrja þig samvizkuspuiningar. Liggur nokkuð sérstakt á bak við mæt- Sælnvlka Skagfirðlnga Sæiuvika Skagfirðinga Sæluvika Skagfiriinga

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.