Vísir - 12.06.1961, Blaðsíða 9

Vísir - 12.06.1961, Blaðsíða 9
Mánudagur 12. júní 1961 VÍSIR 9 Þegar mín er brostin brá, bóið Grím að heyja, Þorsteinn líka fallinn frá ferhendurnar deyja. Svo spáði Páll umboðs- maður Ólafsson, sá blessaði völundur íslenzkrar vísna- gerðar, sem öllum öðrum fremur, frá öndverðu, full- komnaði alþýðuvísuna og gerði hana að því háþróaða hljóðfæri, sem hún nú er í góðra manna höndum. En öðlingnum var margt ann- að betur gefið en spádóms- gáfa. Og því fór á annan veg en hann hugði. Hann gætti þess ekki að sjálfur hann og Þorsteinn Erlings- son urðu einmitt til að efla og þroska vísnagerðina í landinu. Hún leið ekki und- ir lok með þeim, heldur fág- aðist og varð skemmtilegri. Eftir þeirra dag yrkja mun fleiri menn góðar vísur en á 19. öld, og má sín þó enn mikils bæði leirburðarstagl og holtaþokuvæl. Ef til vill má líta svo á, að hið klassíska tímabil ís- lenzku vísunnar hefjist með Stökum Jónasar Hallgríms- sonar (Enginn . grætur ís- lending), og sé svo, lýkur því ekki með Pái, Grími og Þorsteini, heldur stendur það yfir enn í dag. Sigurð- ur Breiðfjörð orti að sjálf- sögðu margar snjallar vísur, en sé á heildina litið, eru þær kveðnar á máli rímnanna. fslenzkan vísan gegnir bókmenntasögulegu hlut- verki, sem ekki ber að van- meta. Eins og kunnugt er, hættir ljóðagerð hinna svo- kölluðu lærðu skálda til að fjarlægjast eðlilegt mælt mál og storkna í hátíðlegri stellingu. Það hefur því j f.i- an komið í hlut einhverra skálda á vissum tímum að þoka máli bók-ljóðsins aftur til hins eðlilega tungutaks, án þess að rýra tjáningar- hæfni þess, afneita þeirri sérstöðu, sem orðlist þess hvílir á. \ íslenzka alþýðu- vísan, eins og hún er sönn- ust, er aftur á móti ljóð- rænn búningur hins eðlilega, daglega máls, hún hefur öld- um saman verið hinn óþving aði andardráttur þjóðarinn- ar. Alla rímnaöldina ( sem stóð í nokkur hundruð ár), þegar hin hátíðlega stelling bundins máls ætlaði allt að kæfa, ortu menn vísur á svo » daglegu máli, að maður hefði getað heyrt þær á götu í morgun, nýtilbúnar. Má til dæmis minna á vísu Þórðar á Strjúgi: Við skulum ekki hafa hátt (16. öld); Kuldinn bítur kinnar manns, eftir séra Hallgrím (17. öld) og hina sígildu ástarvísu Árna Böðvarssonar á ' Ökrum: Ætti ég ekki, vífaval (18. öld). Alþýðleg vísnagerð er oví einn af þeim farvegum málsins, sem tjón væri, ef þornaði. Iðkun hennar held- ur hinu daglega máli í rækt, því máli, sem alla jafna er nær áþreifanlegum hlutum hversdagsins, virkileik nán- asta umhverfis en það ljóð- mál, sem hin lærðu skáld nota, hún heldur dyrum opnum inn í hug alþýðu við sjó og í sveit. Hún er vita- skuld háð sínum takmörkun um eins og öll form skáld- skapar, hún megnar ekki að túlka nema sumt af því, sem speglast í sál mannsins, ekki framvindu tír.ians af jafn margbrotnu innsæi og bók- ljóðinu er unnt, en hún er fær um að tjá nálægan virki- leik á sígildan hátt og hún stuðlar að því að halda hrein um þeim brunni tungunnar, sem ljóðagerð hinna lærðu skálda hlýtur að sækja í end urnýjun, þegar svo er kom- ið, að hún er grugguð lang- varandi tilgerð og sérvizku. —v— Það gegnir furðu, að enn skuli ekki til vönduð og stór sýnisbók íslenzkrar vísnagerðar, eins til tveggja binda verk, þar sem komið er á einn stað allt það bezta og helzta á því sviði, verk, sem væri hliðstæða þjóð- sagnasafns Jóns Árnasonar. Ýmsir menn víða um land hafa fengizt við að safna vísum, ortar bæði af lærð- um skáldum og ólærðum. Sumir kváðu eiga gríðar- stór söfn. Sá er hins vegar Hannes. gallinn á, að smekkur vísna- safnaranna er oft fremur bágborinn, og veit ég til þess, að sumum þeirra er fyrirmunað að greina á milli góðra vísna og vondra. Það er ósköp að heyra sumt af því, sem þeir halda til haga. Vísnasyrpur, sem komið hafa á prenti, eru einnig flestar lélegar, graut- arlegar og fullar af hnoði, vísum, sem detta sundur í miðjunni, og öðrum álíka. (Leirburður, sem hægt er að hlæja að, er aftur á móti prýðilegur á sinn hátt!) Eg hef heyrt, að Svein- björn Beinteinsson frá Drag- hálsi vinni að útgáfu vísna- safns, en mér er ókunn igt um, hvernig því verki er hagað. Sveinbjörn er sjálf- sagt vísnafróður maður, en hvort smekkur hans er nægi- lega öruggur, skal ósagt lát- ið. Það er tæplega á eins manns færi að ganga frá stóru vísnasafni, svo viðun- andi sé, til þess þyrfti tvo, jafnvel þrjá menn, sem hefðu að vopni, þegar saman kæmu, traustan smekk- og staðgóðan fróðleik um vísur og höfunda. Vísum í safni sem þessu bæri að skipa niður í efnis- flokka og raða þeim innan hvers flokks eftir aldri. All- ar tegundir vísnagerðar mættu til með að fá aðgang að safninu, drykkjuvísur og hestavísur, draumvísur og amorsvísur, skammavísur og feimnismálavísur o. s. frv., o. s. frv. Tilefni fylgi öllum þeim vísum, sem þess þurfa með, sé hægt að grafa þau UPP, og vísurnar yrði að feðra með sem allra mestri nákvæmni. Ef hægt á að vera að ganga að öllum bezt ortu og sérstæð ustu vísum tungunnar í slíku safni, þyrftu þeir, sem um- sjá þess hefðu, að moða úr hinum mörgu vísnasöfnum einstakra manna, velja úr þeim það ágætasta, en láta þess getið í bókinni, úr hvaða safni tiltekin vísa sé komin. kennslutími dreifist tíðum á 10—12 stundir eða meira, þótt ótalin séu þau verkefni, sem óhjákvæmilega fylgja kennslu- tsarfi, en verða oft eigi unnin í skólanum sökum húsnæðis- skorts. Þá ber þess einnig að geta, að aukakennsla er aðeins greidd með 80% af föstu kaupi og eftirvinna aldrei greidd sér- staklega, hvort sem unnið er í matmálstíma, að kvödinu eða eftir kl. 12 á laugardögum. Eins og eðlilegt er fylgir mjög mikill kennaraskortur í kjölfar slíkra launakjara. Skýrslur fræðslumálastjórn- arinnar bera með sér, að kenn- araskortur er mjög mikill. Því sem næst 10% fastra kennara á barnafræðslustigi eru án réttinda og 71% í farskólum. Á gagnfræðastigi eru rúmlega 22% án réttinda. Ennþá alvarlegra er þó hitt, að kennaraskorturinn fer hrað- vaxandi. Síðastliðin sex ár hefir Vínsasafnararnir eiga það skilið, starf þeirra er ekki þýðingarminna en þjóðsagna safnaranna í sveitum lands- ins á 19. öld. Þeir þyrftu einnig að kanna handrit í Landsbókasafninu og leita af sér allan grun í prentuð- um Ijóðabókum. Vísnasafn eins og það, sem hér er rætt um, yrði grundvallarverk, unnið með samræmdu átaki tveggja eða þriggja manna um nokk- urt skeið. Kák í þessu efni er verra en ekkert. Ef til þess kæmi, að eitthvert bókaforlag réðist í að gefa út slíkt safn, væri nauðsyn- legt, að þeir, sem veldust til að stjórna verkinu, kæmust í sem beinast samband við fólk út um allt land, svipað því, sem raunin er um orða- bókarmenn Háskólans. Þeir þyrftu að fá inni í útvarp- inu í einn eða tvo vetur með þætti, þar sem þeir gætu spurzt fyrir um höfunda og vísur, sem vafi leikur á um að einu eða öðru leyti. Þeir gætu beðið fólk að skrifa upp vísur og senda sér. Með því móti kæmi án efa margt í leitirnar, sem annars er hætt við að glatist, og sennilega ýmis tilbrigði sömu vísunnar. Ótrúlegt þykir mér, að almenningur léti á sér standa. Það yrði vissulega all- kostnaðarsamt að gefa út vandaða og stóra sýnisbók íslenzkrar vísnagerðar, en þá er einnig á hitt að líta, að sú bók mundi ekki verp- ast og skitna í háum hlöðum inni í einhverri geymslu- kompu, heldur rynni hún út. Eg sé þegar fyrir mér safn- sem þetta, fallega úr garði gert og í bókaskápnum við hliðina á Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Líkt og þær á sínum tíma, yrði það sjálf- krafa eitt af öndvegisverk- um íslenzkra bókmennta. Hannes Pétursson. kennurum við fasta skóla á barnafræðslustigi fjölgað um 216 alls. Þar af er fjölgun rétt- indalausra 60 alls eða 281/2%. Á sama tíma er heildarfjölgun kennara á gagnfræðastigi 146 manns. Af þeim eru án réttinda 47 eða rúmlega 32%, og í far- skólum hækkar hundraðstala réttindalausra á þessu tímabili úr 53 í 71. ' I Tólfta uppeldismálaþingið telur allmikið skorta á, að að- búð tornæmra barna og ung- linga í skólum landsins sé með þeim hætti sem æskilegt er. Þingið fagnar því, að í Reykjavík hefir verið sett á stofn sálfræðideild skóla og geðverndardeild við Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur. Jafnframt lýsir þingið stuðn- ingi sínum við þá ákvörðun Barnaverndarfélags Reykjavík ur og Reykjavíkurbæjar að reisa lækningahæli fyrir tauga- veikluð börn. lág laun fæla kennara burt úr skólnm. Á þriðja hudrað barnakenn- arar og framhaldsskólakennar- ar sátu uppeldis-málaþing í Reykjavík 2. og 4. júní sl. og ræddu m. a. launamál kennara og kennslu og skólavist tor- næmra barna og unglinga. í fréttatilkynningu sem gefin var út að þinginu loknu segir meðal annars: Uppeldismálaþingið telur, að höfuðvandamál ísl. kenn- arastéttar sé nú og hafi verið um skeið ófullnægjandi launa- og starfskjör. Þingið lítur svo á, að í slíkum launa- og starfs- kjörum felist hættulegt van- mat á störfum stéttarinnar, enda er nú kennaráskortur orð- inn mjög mikill og fer hrað- vaxandi. Byrjunarlaun barnakennara eru lægri en daglaunamanns. Það er fyrst á þriðja starfsári, sem þau verða jöfn. Nokkuð svipuðu máli gegnir um gagn- fræðaskólakennara. Að vísu eru þeir einum launaflokki hærri, en samt verður niður- staðan áþekk, þar sem lög gera ráð fyrir allmiklu lengri náms- tíma. \ Önnur kjör en föst laun eru einnig fjarri því að vera ákjós- anleg. Réttmætt er að líta á það, að 5—6 tíma daglegur SJm alþýðuvísur

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.