Vísir - 19.06.1961, Síða 1
Engir sáttafundir hafa ver
ið haldnir í deilu Dagsbrún-
ar og vinnuveitenda síðan á
fimmtudagskvöldið. Sá fund
ur endaði efitr árangurslaus-
ar umr. um eitt prósent, er
vinnuveitendur vilja greiða
beint til verkamannanna
sjálfra, en Dagsbrún lieimt-
ar í sjóð sinn.
Er Vísir átti tal við Vinnu-
veitendasambandið í morg-
un voru engin tíðindi sögð af
verkfallsmálum og enginn
samningafundur hafði verið
boðaður í dag.
Árás á konu.
Árásarmennirnir - 2 unglingspiltar
náðust.
Fruntaleg árás var gerð á
konu nær hálf sjötuga aðfara-
nótt 17. júní hér í bænum, en
hún bjó ein í húsi.
Að áliðinni nóttu réðust tveir
16 ára piltar inn í húsið til
hennar með því að brjóta rúðu
í forstofunni. Vissi annar pilt-
anna að konan bjó ein í húsinu
og var það ætlan þeirra að
nauðga henni.
Þegar inn í húsið kom réðust
þeir á símann, slitu hann úr
sambandi til að hún gæti ekki
gert aðvart í gegnum hann.
Síðan réðust þeir á konuna,
en húri komst undan við illan
leik með því að fara út um
giugga á húsinti Þá var konan
fáklædd. Náði hún í bifreiðar-
stjóra sem var á ferli eftir göt-
unni og aðstoðaði hana konuna
við að hringja í lögregiu.
Piltarnir voru að vísu horfnir
þegar lögreglan kom á staðinn,
en þeir náðust seinna um dag-
inn og sitja enn í varðhaldi,
enda er rannsókninni ekki lok-
ið.
Þess má geta að piltarnir
höfðu á brott með sér pyngju
konunnar, en 5 henni voru ekki
nema 30—40 krónur.
Konan hefur ekki hlotið
neina áverka, en hlaut hinsveg-
ar taugaáfall.
Þessi mynd er af hollenzka landsliðinu, sem leikur hér í kvöld. Hollendingarnir komu seint
í gærkvöldi og er myndin tekin við komu þeirra. (Ljósm. Sv. Þormóðs).
Verkamenn á Akranesi féllust
á 11% kauphækkun.
Komin með unga
á tjörnina.
Þýzku álftahjónin sem verpt
hafa í Tjarnarhólmanum hafa
nú í fyrsta skipti farið á flot
með unga sína.
Talið var að eggin hafi verið
fjögur í hreiðrinu ,en ungarn-
ir eru samt ekki nema þrír, svo
að eitt eggið hefrir vérið ófrjótt
að ætla má.
Dauflegri hátíðahöld vegna
verkfalls og veðurs.
Ekkert framlag í styrktarsjóð.
Verkalýðsfélag Akraness
samdi á föstudaginn við
vinnuveitendur um 11% kaup-
hækkun til verkamanna og
18.95 á klst. fyrir verkakonur.
Er þá verkakvennakaupið sem
næst 83% af karlakaupi.
Almennur fundur í verka-
lýðsfélaginu samþykkti sam-
komulagið, og ákveðið að taka
hið umdeilda eina prósent inn
í launin en ekki í styrktarsjóð
Hátíðahöld á þjóðhátíðar-
daginn 17. júní urðu með,
nokkrum öðrum blæ en undan
farin ár. F-’-'-' þótt 150 ára af-
mælis Jóns Sigurðssonar for-
seta væri með ýmsu móti sér-
staklega minnzt, urðu hátíðar-
höldin > höfuðstaðnum með
daufari brag en verið hefur
undanfarin ár og kom tvennt
til, — kulda stormur af norðri
og synjun verkfallsmanna í
Dagsbrún á beiðni hátíðanefnd
ar að reisa hljómsveitarpalla
og vinna að öðrum undirbún-
ingi.
Frá því klukkan 10 um morg
uninn er allar kirkjuklukkur í
bænum samhringdu: þar til kl.
10 úm kvöldið er skemmtun-
inni á Arnarhóli lauk, fóru há-
tíðahöldin fram eins og ráð var
fyrir gert í hátíðadagskrá. Mik
ill mannfjöldj tók þátt i skrúð-
göngunni og hátíðahöldunum
við Austurvöll, eins létu börn-
^rh. á 13. s.
Sýslumaðurinn
á að svara.
Fjármálaráðuneytið hefur
sent Jóhanni Salberg Guð-
mundssyni sýslumanninum í
Skagafjarðarsýslu ákærur þær
sem á hann voru gerðar um
misferli í fjármálum embættis
hans.
Hefur sýslumanninum verið
gefið tækifæri til að svara fyrir
sig og er búizt við því svari
mjög bráðlega. Þangað til mun
ráðneytið bíða með frekari að-
gerðir.
eins og krafist er af verkalýðs-
félöðunum í Reykjavík og
Hafiarfirði.
Ræða Ölafs Thors for-
sætisráðherra, er hann
flutti af svölum Alþingis-
hússins 17. júní mun birt-
ast hér í blaðinu á morgun.
VÍSIR
51. árg. — Mánudagur 19. júní 1961. — 136. tbl.
1