Vísir - 19.06.1961, Side 3

Vísir - 19.06.1961, Side 3
Mánudagur 19. júni 1961 VÍSIR 3 17. júní í Laugardai. Þjóðhátíðin var að mörgu leyti aðeins svipur hjá sjón nú, þótt sjaldan hafi verið meiri ástæða til að allir legðu sig fram til að gera hana vel úr garði. Þrátt fyrir hvassviðri og kulda héldu menn þó gleði sinni nokkurn veginn óskertri á Laug- ardalsvellinum, eins og þessar myndir þaðan, bera með sér. Nokkur hluti skrúðgöng skáta og íþrótt'amanna. Tveir nýbakaðir stúdentar tóku þátt í 100 m. hlaupinu og „stálu senunni.” fáum stöðum er sjálfsagðara að halda þjóðhátíð en á Hrafnseyri, þar sem Jón Sigurðsson forseti fæddist og ólst upp. Það var því ærið tilefni fyrir for- seta íslands að halda þangað á minningarhátíðina um fæðingu sjálfstæðisforingjans og lýðveldisins, sem hann átti svo drjúgan þátt í að skapa á Islandi. Vestfirðingar höfðu undir- búið minningarhátíð á Hrafns- eyri og boðið forsetahjónunum að vera viðstödd. Til mikillar ánægju fyrir alla varð forsetinn við þessum óskum og kom til Hrafnseyrar 17. júní og hélt ' þar ræðu fyrir minni Jóns Sig- urðssonar. Þrír fréttamenn Reykjavík- urblaða fylgdu forsetanum eftir á ferð hans vestur. Farið var með varðskipinu Óðni og lagt af stað frá Reykjavík um kl. 22 á föstudagskvöld. í fylgd með forsetahjónunum voru Har- aldur Kröyer forsetaritari, •Hörður Bjarnason húsameistari ríkisins og þingmenn Vestfjarð- •ar, Gísli Jónsson, Hermann Jónasson, Hannibal Valdi- marsson og Sigurvin Einarsson fóru með varðskipinu, en Kjart an J. Jóhannsson og Birgir Finnsson komu frá ísafirði. — Eiginkonur flestra þeirra voru með þeim. Um nóttina hafði annar iög- reglumannanna, sem fylgdi for- setanum úr Reykjavík, Björn Eysteinn Kristjánsson veikst hastarlega og varð að flytja hann á land í Patreksfirði og leggja hann þar inn á sjúkra- hús. Hann var síðan sóttúr aft- ur á heimleiðinni og fluttur til Reykjavíkur. Talað var um að hann hefði fengið nýrnakast. Hátíðahöldin hófust kl. 14 með setningarræðu Sturla Jónsson hreppstj. á Suður- eyri, formanns hátíðarnefndar. Síðan söng kirkjukór Þingeyr- ar íslenzka þjóðsönginn en að því loknu tók forseti íslands hr Ásgeir Ásgeirssonar til máls, og flutti minni Jóns Sigurðssonar. Er ræða hans birt í heild á öðr- um stað í blaðinu. Forsetanum var vel fagnað við komu hans og ræðunni vel tekið. Því næst flutti Halldór Kristjánsson bóndi nokkur kvæði sem ort höfðu verið af ýmsum skáldum til Jóns Sigurðssonar, Guð- mundur Ingi Kristjánsson flutti minni Jóns Sigurðssonar í Ijóð- um en séra Jón Ólafsson pró- fastur í Holti í Önundarfirði flutti minni fslands. Kirkjukór Þingeyrar söng á milli atnða. Hér var gert hlé á hátíðar- höldunum í hálfa aðra klukku- stund. Á meðan nutu hátíðar- gestir veitinga í nýju húsi, sem hefur verið byggt fyrir staðar- prestinn, skólann og ábúar.da jarðarinnar. Þar voru stórar og bjartar stofur, sem rúmuðu all- marga menn i sæti. En það var annars ófullgert að innan og óbyggð álma við húsið, en húsameistari ríkisins teiknaði það. Allt hléið var fólk á rölti og skoðaði sig um. í fljótu bragði virtist lítið vera til frá- sagnar um söguhelgi staðarins, en þegar fróður maður var kominn í fylgd með fréttamann- inum þá breyttist allur svipur staðarins. Austan við nýja húsið stóð kirkjan, lítil, hvítmáluð og bárujárnsklædd. Spölkorn neðan hennar mátti greina tóftabrot þar sem gamla kirkj- an hafði staðið. Það fer tvenn- um sögum af ástæðunum fyrir flutningi kirkjunnar. Þjóðsagan segir að endur fyrir löngu hafi staðarpresturinn verið drepinn fyrir altari, af manni sem skaut ör af boga sínum inn um kirkjudyrnar, frá litlu holti nokkru fyrir vestan kirkjuna. Kirkjan var því talin saurguð og var flutt til og endurbyggð á nýjum grunni lítið eitt ofar í hlíðinni. Hin skýringin er sú að gamla kirkjan stóð svo á- veðurs að rétt þótti að flytja hana í skjól við hæðina. Ofan við kirkjuna er lítill og næmlega hlaðinn grjótveggur, þar eina sem eftir er af þremur veggjum í svefnstofu prests- hjónanna, foreldra Jóns Sig- urðssonar. Rétt hjá er talið að Hrafn Sveinbja-.’í'arson hafi átt bæ sinn. Ofan þaðan og niður eftir slakkanum, fram hjá kirkjunni, í suð-vestur liggur laut i túnið. Sagt var að hún væri þar sem jarðgöngin frá bæ Hrafns Sveinbjarnarsonar lágu niður í brattann ofan við sjóinn. Sagan segir að synir Hrafns hafi við aðförina að föður þeirra komist eftir jarð- göngunum og niður hæðina að sjónum og þaðan á báti yfir fjörðinn í Hranfssonagjótur, gil í fjallinu andspænis Rafns- eyrarbænum. Þetta og margt fleira sagði fólkið á staðnum. Lýsing á Arnarfirðinum verður látin liggja milli hluta enda voru henni gerð rækileg skil í Vísi á laugardaginn. Allan tímann meðan á hátíð- inni stóð var rigningarsuddi og norð-austanátt og kaldi. Aðeins einu sinni varð vart sólar og þá aðeins dauft og um skamman tíma. Hátíðargestir voru komn- ir allsstaðar að og reiknaðist sumum að þarna væru um eitt þúsund manns. Það er kannke of há tala en heldur ekki gott að gera sér grein fyrir tölunni. Að hléinu loknu hófst skemmtunin á ný. Sýndir voru þjóðdansar og Ásmundur Guð- mundsson þingvörður fór með skemmtiþátt. Þrátt fyrir rign- inguna var tekið til við al- mennan dans þegar um klukk- an 19. Þá voru forsetahjónin og fylgdarlið þeirra nýkomin aftur um borð í varðskipið og verið að flytja aðra farþega um borð. Klukkan 20 hélt varðskip- ið svo áleiðis til Reykjavíkur og var komið þangað á sunnu- dagsmorgun í björtu og stilltu veðri, Skipið sigldi á lensi alla leið til Reykjavíkur og mátti segja að það haggaðist ekki. Var haft við orð hve skipið færi vel í sjó — en því var einnig bætt við að um leið mætti þakka góðri skipstjórn Eiríks Kristóferssonar, skipherra.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.