Vísir - 27.07.1961, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 27. júlí 1961
V I S I K
S
Skemmtiferöask ipið Fritz Heckert.
A-þýzka skemmtiferðaskipið.
Framh. af 1. síðu.
— Hvernig líst ykkur á
Reykjavík?
— Hún er alveg dásamlega
falleg í sólskininu, svaraði
einhver. Hvar er háskólinn?
— Hann sést ekki, svaraði
ég, því hann er beint á bak við
Morgunblaðshúsið. Og hvaða
hús er þetta og þetta og þetta
og hvar er pósthúsið?
— Bíðið þið nú við, það var
ég sem var kominn til að in-
tervjúera ykkur, en ekki þið
mig.
Vostok eða Moskvits.
— Jæja, svaraði einn í hópn-
um. Við erum næstum öll lækn- | hann svarað, að ekkert gæti
ar. Eg er frá Dresden. Og ég' bilað. Svo að rússneska geim-
er frá Dessau. Og ég er frá
Berlín. 80% af farþegunum eru
læknar.
— Hvað gerist þá ef einhver
verður veikur um borð. Hefur
hann þá nokkurn frið fyrir öll-
um þessum urmul af læknum?
— Það gerist ekki, að neinn
verði veikur.
— Jæja, það er gott hjá
ykkur. Þið svarið bara eins og
Gagarin. Og ég fór að segja
þeim frá komu Gagarins á
Keflavíkurflugvöll og að ég
hefði spurt hann hvað hann
hefði gert ef eitthvað bilaði, en
ir versna.
Ekkert viðhatd vikuwn
suutttn.
EKKERT viðhald fer nú fram
á vegum hér um sunnan og
vestanvert landið vegna hins
óvenjulega verkfalls sem A.S.Í.
fyrirskipaði meðal vegagerðar-
manna. Lítið hefur rignt síðan
verkfaUið hófst, en þeir sem
daglega fara austur fyrir Fjall
og aka um Suðurnesjaveginn,
sem annars heitir Reykjanes-
braut, telja ástandið fara mjög
versnandi.
Mjólkurbílstjóri frá Mjólkur
búi Flóamanna, sem ekur X-
1010 sagði í morgun, inn í
mjólkurstöð, að vegurinn væri
orðinn slæmur, en svo heppi-
lega vill til að lítið hefur rignt,
en þá væri líka vegurinn miklu
verr farinn. Hann kvað sig
ekki enn hafa orðið fyrir nein-
um beinum töfum fyrir það
hve slæmur vegurinn er, en ef
hann færi að rigna myndi hann
fljótlega stórspillast,
Bífstjórar, sem aka Suður-
nesjaveginn kvarta mjög und-
an veginum. Vegna vegagerð-
arverkfallsins hefur ekkj verið
unnt að halda veginum við og
er hann því óvenju slæmur.
Kemur þetta einkum hart nið-
ur á ökumönnum sérleyfisbif-
reiðanna, sem aka þennan veg
oft á dag. Vegurinn hefur löng
um verið illræmdur, en nú
mun þó fyrst kasta tólfunum.
Vinsamleg
filmæli.
Roskin kona, sem býr að
Grundarstíg 19, hefir beðið
Vísi að koma eftirfarandi á
framfæri fyrir sig:
Hún er ekki svo efnum bú-
in, að hún eigi kæliskáp til að
geyma mjólkurlekann sinn í,
svo að hún hefir hann á palli
úti fyrir húsdyrunum. Nú er
einhver farinn að leggja í vana
sinn að stela mjólkinni, og vill
konan biðja þann hinn sama að
stela heldur frá einhverjum
öðrum, sem meiri hefir efnin,
því að hún hefir ekkert nema
ellilaunin til að lifa af. Kem-
ur Vísir þessu á framfæri við
hinn fróma mann.
-^Frétt frá Bolzano, Ítalíu,
hermir, að ítalska lögreglan
hafi handtekið flesta
skemmdarverkamcnn, sem
léku lausum hala í Tyrol
nýlega. Yfir 100 eru í haldi.
skipið væri víst fullkomnara
tæknilega en Moskvitarnir.
Við þetta hlógu skemmti-
ferðamennirnir dátt. En svo
sagði einn: — Ef einhver veik-
ist, þá er skipslæknir á skip-
inu. við erum í fríi.
Gífurlegur
læknaskortur.
— Hvernig er að vera lækn-
ir í Austur-Þýzkalandi?
— Það er ágætt. Stjórnar-
völdin bera okkur á höndum
sér. Það er nú orðin svo gífur-
legur læknaskortur í landinu.
Hugsið yður borg eins og
Chemitz. Fyrir stríð voru 30
eyrnalæknar í henni, nú eru
þeir aðeins 3.
■— Jæja, hvað eru margir
íbúar í henni?
— Um 360 þúsund.
Blaðamaður Vísis gat aðeins
sagt við þessu: — Fúí, helm-
ingi meira en íbúatala íslands.
Þögn
sló á hópinn.
— Má ég leggja fyrir ykkur
eina spurningu? sagði ég og
bætti síðan við vandræðalega:
— Þið verðið að afsaka að hún
Nú sló ægilegri þögn á hóp-
inn.
— Af hverju spyrjið þér
svona?
— Hafið þið ekki heyrt ræðu
Kennedys Bandaríkjaforseta?
— Nei, hvað sagði hann?
— Hann sagði að Vestur-
veldin myndu alls ekki láta
hrekja sig frá Vestur-Berlín og
þau myndu láta hart mæta
hörðu.
— Já, þessu mátti búast við
og fólkið kinnkaði kolli þenkj-
andi.
— Eruð þið ekki hrædd um
að nýtt stríð komi.
Þá gekk fram úr hópn-
um roskin kona og hafði orð
fyrir öllum hinum. í hörku-
legan svip hennar virtust
skráðar með sterkum drátt-
um þjáningar tveggja heims-
styrjalda.
— Við vonum og trúum
að hvorugur aðilinn verði
svo heimskur að hrinda af
stað nýrri styrjöld.
Þar með var það mál útrætt.
Danssalur
og vínbar.
Barbara Lange starfsstúlka
skemmtiferðaskipsins hélt nú
áfram að sýna mér skipið. Það
er alveg nýtt, var tekið í notk-
un 1. maí sl. og er hið glæsi-
legasta skip. Þar eru veitinga-
salir stórir, dansstaður og all
myndarlegir vínbarar. Ekki
hélt fylgdarstúlkan þó að Skoti
fengist þar, en nóg var tiJ af
Vodka. Næsta för skipsins verð-
ur með verkalýðsleiðtoga til
Miðj arðarhaf ^ins.
f dag ætlaði ferðafólkið að
skoða Reykjavík, en á morgun
fer það í skemmtiferð til Gull-
foss og Geysis.
Austur-þýzka fylgdarstúlkan Barbara Lange í forsal skemmti-
ferðaskipsins. Hún er ættuð frá Leipzig. Hér stendur hún við
liliðina á fána skipsins.
er pólitísk. Eg vil ekki koma
ykkur í nein vandræði og þið
þurfið þá ekki að svara henni.
Nú skellihlógu þeir.
—Hvað haldið þið um Ber-
línarmálið. Haldið þið að það
verði ný heimsstyrjöld um
Berlín?
Viðtal dagsins —
Framh, af 4. síðu.
Kastklúbbur íslands. Kast-
klúbbur íslands er aðili fyr*-
ir íslands hönd að Alþjóða-
kastssambandinu og mun
hafa fengið tilkynningu um
alþjóða-heimsmeistaramót í
Osló núna í ágúst, og það
hefur tilkynnt tvo menn til
keppni, þá Albert Erlings-
son og Einar Þóri Guð-
mundsson. Stangaveiðifélag
ið hefur farið þess á leit við
klúbbinn að aðrir tveir
keppendur yrðu skráðir til
þátttöku frá félaginu, og þá
yrði ég líklega annar þeirra,
en svar hefur ekki bordst
ennþá, svo að allt er raunar
í óvissu um það.
Annars geri ég mér engar
gyllivonir um heimsmet, því
þeir eru margir sleipir til
erlendis í þessu, eins og
raunar hér heima. En hvað
sem því líður mundi mér
finnast það ómetanlegt fyr-
ir mig að fá að læra eitt-
hvað á slíkri keppni, kynn-
ast öðrum keppendum og
um leið gera mitt bezta.
.... og ef hans bezta er
ekki nógu gott, þá skuluð
þið láta vita.
GK.
Frh. af 2. síðu.
að öllum líkindum Reykjavík-
urmeisturum Fram í úrslitum.
IV. flokkur B:
Miðsumarsmóti þessa flokks
er lokið og bar KR sigur úr bít-
um vann Fram í úrslitaleik 1:0.
V. flokkur A:
í A-riðlinum hefur Víkingur
sigrað, en í B-riðlinum standa
Fram, Valur og Akranes jöfn.
V. f'Iokkur B:
Keppni er þar lokið, en úr-
slit hafa enn ekki fengizt þar
sem bæði Víkingur og Fram
standa jöfn að stigum, 7 stig
hvort. Leika þau væntanlega
úrslitaleikinn seinna.
Svör við
Myndsjá.
Svör við Myndsjá á bls 3.
1. Bandaríkin.
2. ísland.
3. Frakkland.
4. Rússland.
5. Tyrkland.
6. ísrael.
Blökk, bandarísk söngkona,
Grace Bumbry frá St Luois,
vann mikinn söngsigur á
Wagner músikhátíðinni í
Bayreuth, er hún sönn
Tannhauser Wagners. —
Hlaut hún svo góðar undir-
tektir, að slíks munu fá
dæmi, en skömmu áður en
Wagnerhátíðin hófst bárust
tugir bréfa frá Þjóðverjum,
sem mótmælú að hún fengi
að syngja þar — vcgna þess
að Iiún er blökk.