Vísir - 27.07.1961, Blaðsíða 10

Vísir - 27.07.1961, Blaðsíða 10
1P V I h I K Fimmtudagur 27. jú’í 1961 > BÆKUR OG HOFUNOA * Æntegjulegur feröufélugi. Góð bók. Síðla árs 1960 kom út bók eftir Birgi Kjaran, hagfræðing. Bar hún heitið Fagra land. Um þessa bók er þegar búið að skrifa svo mikið og að verð- leikum svo gott, að það er ef til vill að bera í bakkafullan lækinn að bæta þar nokkru við. stofu austur á Skógasandi og tökum myndir af forvitnustu sekpnum jarðar, selnum. Vestur í Hnappadal er hinn nýfundni hellir kannaður. Gullborgar- hellir heitir hann. Þar vaxa „steinblóm“ og þar má enginn stela dropasteinum. Á Suður- nesjum, þar sem loftið er En enda þótt svo sé og auk þess nokkuð umliðið, get eg ekki sleppt því með öllu að tjá höf- undi þakkir fyrir þetta ágæta verk, sem að mínum dómi er sérstakt í sinni röð. Höf. segist hvorki vera skáld eða náttúrufræðingur. En þar kemur bókin illa upp um „Strákinn Tuma“. Hver lína vitnar um hið gagnstæða. Djúp innlifun í frásögn og myndræn- ar lýsingar, sem bókin er svo auðug af, sanna þetta bezt. Er slíkt aðeins á færi þess, sem ,.gáfuna“ hefir hlotið. Enda þótt hér sé um ferða- þætti að ræða, er kjarni bókar- innar og aðal uppistaða frá- sagnir úr ríki náttúrunnar, sem kryddaðar eru margskonar fróð- leik svo sem lýsingum á héruð- um og atvinnuháttum þeirra, sögum, ljóðum og mörgu fleira. Það er ánægjulegt að vera ferðafélagi Birgis Kjaran. Hann tekur okkur við hönd sér og fer um byggðir og óbyeeðir, sýnir okkur eitt eftir annað og fyrir hans leiðsögn verður allt merkilegt og skemmtilegt. Við erum stödd við „ísmessu" í koldimmum neðanjarðarhvelf- ingum Hallmundarhrauns. Við horfum m-f' aðdáun vfir fjöl- skrúðugasta hektara Iandsins, •garð skáldsins“, þar sem Flóra skartar sínu fegursta. Sama dag setjum við upp ljósmynda- mettað dul þjóðsagnanna verð- um við vitni að sjóslysum og horfum á björgun úr sjávar- háska. Við heimsækjum sögu- ríkasta hérað landeins, Breiða- fjörðinn. Erum þar við messu í lítilli sveitakirkju. Spjöllum við Vilhjálm á Narfeyri— þann undramann. Fáum að vita nokkur deili á pólitískri skoðun hundanna. Horfumst í augu við sjálfan konung fuglanna, örn- inn, í hans eigin heimkynni. , -. /‘y* - ptT ' / Að lokum leiðir höfundur okkur á Örævaslóðir, meðal annars norður á Arnarvatns- heiði og Tvídægru. Þar finn- um við sannarlega „samhljóm aldanna“. Sagan verður þar oft hinn rauði þráður, fimlega slunginn undurfögrum nátt- úrulýsingum. Við kynnumst herskörum af útilegumönnum allar götur frá landnámsöld. Við sjáum ungan pilt og unga stúlku fara um þessar slóðir það var árið 1828 —. „Brosa blómvarir. Blika sjónstjörnur. Roðnar heitur hlýr.“ Níu árum seinna( |er þessi sami piltur um lþÖS'ááJ 1 sömu heiði — þá orðinn frægt skáld — og lýsir þá ógleymanlegri norðurljósadýrð. Sagan heillar en náttúrlega er þó seiðmagn hinnar djúpu örævakyrðar: „— — — Það stafar friði og ró af hverju strái. Það finnst manninum, sem horfist í augu við náttúruna. Þögn hennar kallar á mann- inn.“ (Bls 263). Þessi fáu orð höf., sem í hógværð sinni segja þó svo mikið, skilja þeir bezt er eitthvað hafa kynnzt hinum ósnortnu örævum landsins. —v— Eins og öllum má ljóst vera, segir þetta fátæklega yfirlit Heyrum fáeina kafla úr sögu fjarðar og eyja. Og höf. segir: „Minning eins dags hefur gróp- ast í hugann. klukknahljómur lítillar sveitakirkju, einn mað- ur, einn fugl — og sámhljóm- ur aldanna." (Bls. 155). sáralítið um bókina. Enda átti þetta aMrei að vera neinn rit- dómur. Tilgangur minn var annar. Með þessum fáu línum vildi eg vekja athygli á góðri bók, bók sem beinir huga lesandans út í víðáttur og inn í dulheima íslenzkrar náttúru, inn í þá ver- öld, sem allt of mörgum er lítt kunn eða jafnvel algerlega lokuð. Og þar sem að fer tími sumarleyfa, vildi eg segja við ungt fólk, sem nú fer sínar fyrstu ferðir til að kynnast landi og þjóð: Lesið þessa bók og njótið leiðsagnar hennar. Það er að vísu ekki einhlítt að lesa bækur til að verða reglu- legur náttúruskoðari. Við verð- um sjálf að vinna ríki náttúr- unnar, sjálf að opna þann „sesam“. Láta þögn hennar kalla á okkur og hlýða því kalli. En góð bók getur verið ómetanlegur leiðbeinandi. -----Okkar öld er öld tækn- | innar, hávaðans, öld hvæsandi véla og marrandi hjóla. Margir j óttast að mannfélagið bíði tjón! á sálu sinni við þær breytingar, sem orðið hafá. Og sennilega er sá ótti ekki ástæðulaus. En væri það ekki andleg heilsu- bót, ef við ættum meira sálufé- lag við villta ósnortna náttúru þessa lítt numda lands til hafs og til heiða, og — hlytum þegn- rétt í hennar ríki. Því vissulega er það vígsla til betra lífs að hlusta hugfanginn á hljóm- kviðu vaknandi vors, að horfa á óendanleg litbrigði hrannandi haustskýja, að sjá „blárof í skógi“ undir septembersól, að sofna og vakna við hljóðlátt skraf lítilla linda eða þrumu- gný fallandi fossp, að finna vit- und sína fá hlu'tdeild í hinni djúpu og dulmögnuðu öræva- kyrð, að héyra „samhljóm ald- anna“ í sögum og ljóði við kumbl og grafir horfinna kyn- slóða — — —. Eitt að lokum Birgir Kjaran: „Mættum við fá meira að heyra.“ Jón Þórðarson. Laugarvatni í júní. Æircf: Iðnvæðing og kjör verkfræðinga. f leiðara blaðs yðar dags. 21. 7. er rætt um framkvæmdar- áætlunina, sem nú er verið að vinna að. Meðal annars segir þar, að íslands standi á þrösk- uldi iðnvæðingar, en hafi fram að þessu verið vanþróað land í iðnaðarmerkingu. Á næstu árum verður ísland að gerast stóriðnaðarþjóð. Þetta er rétt og vonandi, að svo getd orðið, en mér er spurn; Er grundvöllurinn fyrir hendi? Framkvæmdaráætlunin verð- ur t.d. að gera ráð fyrir því, að þjóðin hafi á næstu árum á að skipa stórum hópi af fær- um verkfræðingum, vísinda- mönnum og slíkum, til að hrinda þessari iðnvæðingu í framkvæmd. Án þessara tækni sérfræðinga yrði það vonlaust verk. Að vísu höfum við hér nokkurn hóp sérfræðinga, sem gæti orðið kjarninn í væntan- legri iðnvæðingu. Gallinn er bara sá, að þjóðin virðist ekki hafa efni á að búa þessum mönnum sæmileg kjör og við- unandi vinnuskilyrði, hvað þá, ef þeir væru fleiri.. Nú er svo komið, að verkfræðingum hér fer fækkandi vegna þessa, og flytjast þeir búferlum til landa þar sem tæknikunnátta þeirra er mun meira metin og betur launuð en hér. Útkoman á nú- verandi kjaradeilu verkfræð- inga mun áreiðanlega hafa mikil áhríf á það, hvort verk- fræðingum fer hér fækkandi eða fjölgandi á næstu árum. Ef þeim heldur áfram að fara fækkandi, þá yrði lítið úr þeim lið framkvæmdaráætlunarinn- ar, þar sem gert er ráð fyrir mikilli iðnvæðingu næstu árin eða áratugi. Verkfræðingur. Málverkasýning Sigurðar Kristjánssonar. ÉG brá mér í gær suður í Boga sal Þjóðminjasafnsins, til þess að líta á málverkasýningu Sig- urðar Kristjánssonar. Hitti ég þar fyrir gamlan góðkunningja minn Kristján Guðmundsson. Hann er þarna sýningarvörð- ur. Hann fylgdi mér um sal- inn, og gaf mér margar góðar bendingar. Þar er margt merki legt að sjá: Ágætar landslags- myndir, og auk þess mörg lista verk, sem bera því glöggt vitni, að ímyndunaraflið er óbeizlað. Um listamanninn sjálfan er það að segja, að hann verður að teljast að mestu sjálfmennt- aður, en listeðlið sem í bloð borið. Og það er sannarlega at- hyglisvert, hve hann hefir miklu fengið afkastað á lista- ferlinum, þrátt fyrir allar ann- ir dagsins. Af listaverkunum nefni eg sérstaklega: Kvöldkyrrð, Land sýn, Snúið myndinni við, Á miðum, Steinar tala, Landslag, Þingvöllum. Þá mætti nefna myndina Stjáni blái, sbr. úr ljóði skáldsins Stjáni blái strengdi klóna, og stýrði beint á drottins fund“. Af þessari sniildarsýningu hafa selzt 12 listaverk. Á sýn- ingunni eru 60 málverk. Fólk. sem hefir yndi af fagurri list ætti að nota tækifærið. Sýn- ingunni lykur á sunnudaginn kemur. og fæst ekki fram- lengd. / Sigurði er sannarlega sómi að þessari sýningu. — S. A.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.