Vísir - 27.07.1961, Blaðsíða 16
VÍSIft
Fimmtudagur 27 júlí.
Síldarflutningaskipi hlekkist á
— Ægir reynir að bjarga skipinu.
Engir fundir.
ENGIR fundir hafa verið með
verkfræðingum og vinnuveit-
endum og enginn árangur fyr
irsjáanlegur.
Ástand er óbreytt í vega-
gerðarverkfallinu. Þar hafa
engir fundir verið haldnir og
sér ckki til samkomulags.
Farmcnn og vinnuveitendur
sátu á fundi fram eftir sl. nóttu
og ræddu um kjaramál, en
varð ekkert ágengt. Annar
fundur hefur verið boðaður í
kvöld kl. 21.
RAUFARHÖFN, 27. júlí: öðru hinna norsku síld-
arflutningaskipa, sem síldarverksmiðjurnar á Hjalteyri
og í Krossanesi tóku á leigu og verið hafa í síldarflutn-
ingum hlekktist á í nótt. Varðskipið Ægir og fleiri skip
komu Norðmönnunum til hjálpar og standa vonir til
að hægt verði að draga skipið til hafnar.
Það var klukkan rúmlega
hálf fjögur í nótt sem norska
skipið, sem heitir Tallis, sendi
út neyðarskeyti. Var það þá
um 15 mílur austur af Digra-
nesi. Þil í lest skipsins, sem
var full af síld, hafði sprungið
og síldin kastast til i skipinu
og kom á það veruleg slagsíða
til stjórnborða.
Fyrsta skipið sem kom á stað
inn, unl hálftíma eftir að neyð
arkallið var sent, var vélbát-
urinn Jón Gunnlaugs frá Sand-
gerði. En varðskipið Æg.ir var
ekki ýkja langt frá og hafði
skipherrann á Ægi, Haraldur
Björnsson, þegar snúið hinu
gamla varðskipi til hjálpar
hinu nauðstadda skipi.
Ekki mun skipstjórinn á
Tallis hafa talið öruggt fyrir
skipshöfn sína að vera um borð
í skipinu vegna hallans á því.
Klukkan sex í morgun hafði
hann gefið fyrirskipun um að
yfirgefa skipið. Var þá norð-
vestan 5—6 vindstig við skip-
ið og dálítill sjór.
Um það bil klukkutíma síð-
ar, eða um kl. 7, var Ægir kom-
inn á staðinn. Áhöfn norska
skipsins, 10—12 menn voru þá
Veiðiferð
Heimdallar
Ekki Berlín ein9
sem er í hættu.
HEIMDALLUR F.U.S. efnir til
veiðiferðar á Arnarvatnsheiði
um næstu helgi Lagt verður
af stað frá Valhöll á föstudags
kvöld og komið til Reykjavík-
ur á sunnudagskvöld.
Þar sem fjöldi þátttakenda
er mjög takmarkaður, eru fél-
agsmenn, sem áhuga hafa á
ferðinni beðnir að hringja í
síma 17100 í dag og verða þar
Hinni skorinorðu ræðu Ken-
nedys forseta var ágætlega
tekið meðal vestrænna þjóða
af stjórnmálaleiðtogum og í
blöðum. Kemur þar mjög fram,
að hann hafi gert öllum Ijóst
hvað í húfi er, ef ekki helzt ein-
ing og gripið er til nauðsyn-
legra varúðarráðstafana.
Það kemur og fram, að
hann hafi leitt þjóð sína
skilmerkilega í allan sann-
Ieika um það, að það er ekki
Berlín ein, sem er í hættu,
heldur þarf að vera á verði
og viðbúnaður nægur til þess
að mæta kommúnistahætt-
unni hvar sem er í heimin-
um.
Brezk blöð vitna talsvert í
þau atriði ræðunnar, þar sem
'/l • t J I
Kennedy kveðst reiðubúinn til
viðræðna. Daily Hcrald spyr
!af því tilefni hvaða tillögur
hann hafi fram að færa til frið-
samlegrar lausnar í Berlínar-
vandamálinu. Að því hafi hann
ekki vikið. Ekki sé við því að
búast, að hann leggi öll spilin
á borðið þegar, en æskilegt
hefði verið, að hann hefði gefið
í skyn hvað hann hefði í huga,
sem von væri um, að sam-
þomulag gæti náðst um. Þetta
er helzta gagnrýnin á ræðunni,
sem annars fær almanna lof
vestrænna þjóða. Austan tjalds
er ræðunni þannig tekið, að
Kennedy er sakaður um stríðs-
æsingar og vopnaskak.
Kanadísk Elotadeild
komnir um borð í Sandgerðis-
bátinn Jón Gunnlaugs.
Haraldur skipherra á Ægi
sendi fimm menn af skipi sínu
í skipsbátnum út í Tallis í því
skyni að reyna að koma drátt-
arvír í skipið. — Tókst það all-
greiðlega, því kl. laust fyrir
hálf átta í morgun var Ægir
lagður af stað með Tallis í eft-
irdragi og Ægismenn við stýri
skipsins, á leið inn til Vopna-
fjarðar. Eftir um það bil klst.-
siglingu var Ægir staddur um
10 mílur austur af Digranesi,
og var á Haraldi skipherra að
heyra, að ekki væri vonlaust
um að takast myndi að draga
Tallis inn til Vopnafjarðar. Ef
vel gengi ætti Ægir að koma
þangað laust eftir hádegi í dag.
Það mun vera með 3—4 þús.
mál síldar innanborðs.
— Fréttaritari.
SíSustu fréttir:
Um kl. 11,30 í morgun sím-
aði fréttaritari Vísis á Rauf-
arhöfn, að allar horfur væru
á því að Ægi myndi takast að
bjarga Tallis til hafnar á
Vopnafirði. Veður fór batnandi
og töldu Ægismenn að komið
yrði til Vopnafjarðar kl. 1,30 í
dag.
Á Tallis sem er með 4000
mál síldar, cr 10 manna áhöfn
og einn Islendingur, sem er
fulltrúi verksmiðjanna, Jón
Sigurðsson, að nafni.
Um borð í Tallis voru tveir
stýrimenn af Ægi ásamt þrem
hásetum.
til Reykjavíkur í ágúst.
KANADÍSK flotadcild er
væntanleg til Reykjavíkur upp
úr miðjum ágúst.
Hingað koma 4 kanadisk
skólaskip með 112 sjóliðsfor-
ingjaefni innanborðs. Þeir
standa við í 5 daga og fara í
kynningarferðir; taka þátt í í-
þróttamótum og ýmislegt fleira
verður þeim til dægrastytting-
ar.
Sendiherra Kanada á íslandi,
sem búsettur er í Osló, mun
koma hingað til að taka á móti
flotadeildarmönnum ásamt að-
alræðismanni Kanada, Hall-
grími Fr. Hallgrímssyni. for-
stjóra.
Samið í
nótt.
Dönsku stúdentunum í duggarapeysum hefir þótt heldur hlýrra á íslandi en þeir bjuggust við.
Ormagna leggjast þeir til hvíldar á Háskólatr öppurnar. (Ljósm. G. M. Jónsson)
VEITINGAMENN hafa nú sam
ið við starfsfólk sitt um kaup
og kjör næstu mánuði. í nótt
var samið við ófaglært starfs-
fólk, en áður hafði náðst sam-
komulag við þjóna og mat-
reiðslumenn. Endanleg afstaða
til samkomulagsins verður tek
in á fundum samningsaðila í
dag.
Ófaglært starfsfólk fær 18%
launahækkun. Eftirvinna greið
ist með 60% álagi á dagvinnu-
kaup, orlof verður 6% og fjöldi
frídaga óbreyttur. Sjúkrasjóðs-
gjaldið verður greitt beint til
starfsfólksins í launum þess, en
gengur ekki í sérstakan sjóð.
Samningurinn gildir frá 1. júlí
sl. til 1. júní á næsta ári.
Einnig hefur verið samið við
þjóna og matreiðslumenn.
Laun hækka um 10—13%. Mat
reiðslumenn fá 5 daga til við-
bótar við fyrri frídagafjölda.
Eitt prósent rennur í sérstakan
sjúkrasjóð. Að öðru leytd er
samkomulagið við matreiðslu-
menn hliðstætt samkomulag-
inu við ófaglært starfsfólk.
Þjónar fá nú vinnuföt frá
veitingahúsinu og 20% þjón-
ustugjald 5 daga ársins í stað
15% áður. Framleiðslumenn
féllu frá kröfu sinni um skipti
vinnu í vínstúkum.
Starfsfólkið, þjónarnir og’
matreiðslumennirnir höfðu
boðað verkfall frá næsta laug-
ardegi, en þvi verður væntan-
lega aflýst eftir fund þeirra 1
dag.
Veðurhorfur:
NA-kaldi,
bjartviðri.