Vísir - 27.07.1961, Blaðsíða 8

Vísir - 27.07.1961, Blaðsíða 8
B VISI R Fimmludagur 27. júlí 1961 ÚTGEFANDI: BIAOAÚTGÁFAN '/ÍSIR Rítstjórar- Herstelnn Pólsson Gunnar G Schrarn. Aðstoðarritstjóri: Axel fhorstelnsson Fréttastjór- ar: Sverrlr Þórðarson, Porsteínn ó Thororensen. Ritstjórnarskritstofur: Laugavegi 27 Auglýslngar og afgreiðsla: Ingólfsstrœti 3. Áskriftargjald er krónur <0.00 ó mónuði - f lausasölu krónur 3.00 eintakið Simi 11660 (5 linur) - Félops prentsmíwjar h.f., Steindórsprent h.t. Eddo n.» Ræða Kennedys. Ræða Kennedys um BerlínarmáliS markar þátta- skil í utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Sjö vikur eru liðnar frá því að Kennedy Kitti Krúsév í Vínarborg og ræddi við hann Berlínardeiluna. Á þeim fundi var Krúsév venju fremur óbilgjarn og Kennedy hvarf heim með þá vitneskju í vegarnesti að Rússar hyggðust hrekja Vesturveldin úr Berlín í haust. I ræðu sinni í fyrrakvöld gaf Kennedy þá mikils- verðu stefnuyfirlýsingu að Bandaríkin myndu ekki láta Rússa hrekja. sig úr borginni og gaf í skyn að þau myndu fyrr grípa til vopna en ofurselja íbúa Vestur- Berlínar í hendur kommúnistum. „Okkur langar ekki til þess að berjast,“ sagði Kennedy, „en við höfum fyrr gripið til vopna.“ Hér eru notuð stór orð og sú herkvaðpmg, sem nú fer fram í Bandaríkjunum sýnir að það er alvara að baki þeim. En ef svo hörmulega tækist til að til átaka kæmi í Berlín í haust, þá er ljóst hvoru megin sökin Iiggur. Vesturveldin hafa lið sitt í Berlín sam- kvæmt ótvíræðum alþjóðasamningi sem gerður var milli sigurvegaranna að styrjöldinni lokinni. Einhliða rof Rússa á þeim samningi er algjörlega ólögmætt. Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í ræðu sinni að Banda- ríkin væru fús til þess að skjóta deilunni til alþjóða- dómstóls til úrskurðar. Sú lausn er sanngjörn og vissu- lega ættu Sovétríkin að fallast á slíka málsmeðferð ef þau virtu lög og rétt. Saga undanfarinna ára sýnir hinsvegar að í þeirra augum eru alþjóðasamningar einskis virði og vafalaust munu þeir ekki samþykkja tilboð forsetans um dómsúrskurð. Ræða Kennedys tekur af öll tvímæli um afstöðu Bandaríkjanna í Berlínarmálinu. Aftur verður nú ekki snúið. En allur heimurinn væntir þess að friðsamleg lausn finnist á deilunni áður en það ófriðarbál tendrast, sem í sögunni mun verða kallað þriðja heimsstyrjöldin — ef nokkur verður þá lífs til þess að skrá þá sögu. Ríkissjóður hallalaus. I grein sem fjármálaráðherra, Gunnar Thoroddsen, ritaði hér í blaðinu í gær gaf hann þær upplýsingar að ríkissjóður hafi verið hallalaus á s.l. ári. Undanfarin ár hefir hinsvegar jafnan verið halli á ríkissjóði, enda flest árin undir handleiðslu Eysteins Jónssonar. Tímmn ætti að hugleiða þessa staðreynd, sérstak- lega á þeim stundum, sem hann lofar mest „hina ör- uggu fjármálastjórn“ Eysteins. Flóttafólk frá A.-Þýzkalandi þyrpist í skráningarskrifstofu í V.-Berlín. Venjulega voru skráðir 4—500 á dag eftir stríð, en nú konia um 1500 á dag — hafa aldrei verið fleiri eftir uppreisnina 1953. A.-Þýzkaland óviðbúið öngþveiti út af Berlín. J^ustur-þýzka kommúnista- stjórnin er mjög illa við- búin alvarleguip átökum út af Berlín. Hún stendur sann- ast að segja svo illa að vígi að draga verður í efa, að Krúsév forsætisráðherra hafi athugað igu vandlega tillögur sínar og áform varð- andi Berlínarmálið. Ber hér fyrst að nefna, að algerlega virðist hafa mistekzt, að treysta efnahagskerfi Iands- ins undir átökin. Þrátt fyrir fullyrðingar Walters Ulbrichts, höfuðleið- toga A.-Þýzkalands um sov- ézka aðstoð, bendir allt til, að sú aðstoð reynist of lítil og komi of seint. Austur-þýzku stjórninni tókst að knýja fram loforð um sovézka aðstoð snemma á þessu ári. er hún óttaðist, að vestur-þýzka stjórnin myndi grípa til viðskipta- banns á Austur-Þýzkaland. ef til öngþveitis kæmi vegna Berlínar-málsins. Um afleiðingar slíks banns þarf ekki að efast, því að A.-Þýzkaland fær aðalstál- birgðir sínar og vélar frá V.-Þýzkalandi. Auk þess gat hugsast að vestrænar þjóðir. sem A.-Þ. skiptir við, styddu slíkt vestur-þýzkt viðskipta- bann, ef til kæmi. |Jrúsév hefir gert áætun sína þannig, að ef til slíks banns kæmi. kynni það að skella á þegar A.-Þýzkalandi kemur verst. vegna land- búnaðarkreppunnar. minnk- andi iðnaðarframleiðslu og sívaxandi flóttamanna- straums. Meðal flóttamanna eru verk- og vélfræðingar og verksmiðjufólk, tækni- lega sérþjálfað fólk, sem í rauninni er lífsnauðsyn að halda í. Hér er ekki eingöngu um að ræða hættuna af að auka vandræði og öngþveiti í A.- Þýzkalandi sjálfu — afleið- ingin af rýrnun mikilvægis A.-Þýzkalands sem iðnaðar- lands gæti haft alvarlegar afleiðingar í kommúnista- löndum álfunnar yfirleitt um ófyrirsjáanlega langan tíma, því það hefir verið ein höfuðstoð iðnaði A,- Þýzkalands sem og Tékkó- slóvakíu, að framleiða iðn- aðarvörur handa hinum kommúnistalöndunum. jþegar. V.-Þýzkaland síðastl. haust stofnaði til við- skiptabanns um stundarsak- sem gagnráðstöfun varð Ijóst, að A.-Þvzkaland hefir ekki haldið velli lengi án stór- felldrar sovézkrar aðstoðar. Þegar svo austur-þýzkir leið- togar flugu til Moskvu i febrúar bentj allt til, að sov- étleiðtogarnir hefðu falizt á þð með tregðu að veita að- stoðina og ákveðið að fara sér hægt. Samkomuagsum- leitanir tóku einn mánuð. < Þá var lofað stáli, málm-! grýti, olíu, aluminíum, > timbri og vélum „til viðbót-1 ar“ hráefnum og vörum, i sem A.-Þýzkaland fengi I með viðskiptum við Sovét- < ríkin, en helmingur alls út- < flutnings A.-Þýzkalands fer i til Sovétríkjanna. — Sagt < var í tilkynningu um þetta, i að hér væri um mikla fórn ! að ræða af Sovétríkjanna, hálfu, því þau hefði sjálf! þörf fyrir það, sem lofað var. En austur-þýzkir leiðtogar ! urðu að leggja upp í aðra ! flugferð til Moskvu í maí sl., en ekki hefir borið á því, að neinar stórbirgðir frá Sovét- ríkjunum séu farnar að koma — m. ö. o. orðið fremur lítið úr efndunum, — jafnvel ekki í borizt aðstoð til að bæta úr matvælaskortinum, sem er afleiðing landbúnaðarkrepp-, unnar. Og sama á við um i fylgiríkin kommúnistisku, að því er kom fram í Austur- Berlín snemma í þessum I mánuði, þ. e. að jafnvel hefði! brugðizt, að frá þeim kæmi! venjulegt magn matvæla og , skepnufóðurs, en þetta var! réttlætt með erfiðleikum af náttúrunnar völdum í komm-! únistalöndunum — m. a. í! Kína. Þaðan áttu að koma! 180.000 lestir af sojabaun-! um, en komu ekki. En um þetta sama leyti voru kín- verskir kommúnistar að selja sojabaunir á lækkuðu verði á mörkuðum Vestur-Evrópu. Fyrir hálfum mánuði sagði Erich Honnecker, sem á sæti Frh. á 7. s.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.