Vísir - 12.08.1961, Qupperneq 3
Laugardagur 12. ágúst 1961
VÍSIR
3
YFIR
ERMARSUND!
Nú er senn á enda ,,uppskerutíminn“
við Ermarsund, það er að segja það tíma-
bil ársins, þegar fjöldi manns úr öllum
áttum gerir tilraun til að synda yfir sundið
og öðlast nokkra frægð. Vísir hefir ekki
á takteinum tölur um þann fjölda, sem
hefir reynt að vinna þetta þrekvirki á
þessu sumri, en vafalaust skipta þeir
nokkrum tugum, þótt þeir hafi ekki kom-
izt í blöðin, af því að tilraunirnar hafa
mistekizt — sumir aðeins komizt örstutt-
an spotta áleiðis, en aðrir jafnvel lang-
leiðina, áður en þeir urðu að gefast upp.
En hér birtum við myndir af tveim mönn-
um, sem ljósmyndarar Associated Press
hafa kosið „skringilegustu Ermarsund-
farana“ á þessu ári. Annar mannanna
ætlaði að fara á sjóskíðum yfir sundið og
„lét í haf“ frá ströndinni rétt við Dover.
Hann fór mjög nærri ferjuleiðinni frá
Dover yfir til Calais, og öldugangurinn frá
ferjunum hafði þau áhrif á hann, að hann
leitaði hið bráðasta til sama lands aftur.
Hinn hafði útbúið baðker til siglingar yfir
sundið, fest einskonar ,,kjölfestu“ á stál-
ramma , sem aftur var festur við farkost-
inn, svo að hann væri sem stöðugastur.
En „snekkjan var svo djúprist, að aldrei
gerði nægilega lygnan sjó til þess að hægt
væri að fara nema nokkrar mílur. Þá varð
að leita lands á nýjan leik.
í hinni nýju dömuverzlun, London, við Pósthússtræti.
Nýtízku kvenfataverzlun.
Kaldar kveðjur
í gær var opnuð stór viðbót
við dömudcild verzlunarinnar
London í Pósthússtræti. Þang-
að til hafði hún verið í 10 fer-
metra húsnæði, en nú bættust
við 80 fermetrar í kjallara
verzlunarinnar.
Um leið fjölgar vörutegund-
I um verzlunarinnar svo að nú
I eru á boðstólum hverskonar
| kventízkuvörur, kjólar, undir-
i fatnaður, peysur, sokkar blúss-
ur og ennfremur uilargarn. Á
næstu mánuðum munu og bæt-
ast við fleiri vörutegundir.
Hin nýju húsakynni eru mjög
ÞEIR, sem síldarleitinni
stjórna, munu vart eiga heitari
ósk varðandi það verkefni, en
að hægt væri að hafa skip við
leit samfleytt alla síldarvertíð-
ina, sagði Jakob Jakobsson
fiskifræðingur í símtali við
blaðið í fyrradag, út af „hátta-
lagi Ægis“, eins og fréttaritari
blaðsins á Raufarhöfn kemst
að orði í frétt í fyrradag í
blaðinu. Það var ákveðið er
skipið fór til síldarleitar og
síldarrannsókna fyrir Norður-
landi, að skipið kæmi a. m. k.
einu sinni í mánuði til Reykja-
víkur. Það er svo á einskis
manns færi að meta það ná-
kvæmlega, hvenær þörfin fyrir
smekkleg, teiknuð af Halldóri
Hjálmarssyni húsgagnaarkitekt.
Húsgangaverzl. Birkir smíð-
aði innréttingarnar en Magnús
Helgason smíðaði annað tré-
verk. Verzlunar stjóri er Fann-
ey Helgadóttir. Eigandi verzl-
unarinnar er Ketill Axelsson.
skipið sé mest. Það hefði getað
komið sér verr, ef síðar heíði
verið farið, því enn er síldin
á sömu slóðum. Það er aftur á
móti mjög nauðsynlegt fyrir
hinar umfangsmiklu rannsókn-
ir sem staðið hafa nú óslitið í
tvo og hálfan mánuð, að skip
verði til rannsóknarstarfa á
komandi vikum, til þess að
fylgjast með síldargöngunum.
Við leggjum af stað aftur í
kvöld. En okkur á Ægi þykir
mönnum skjótt gleymast öll sú
aðstoð sem Ægis-menn hafa í
sumar veitt síldarflotanum og
því þykja okkur þetta kaldar
kveðjur frá Raufarhöfn, sagði
Jakob.
Á eynni Skye er nú hafin
framlciðsla á nýrri gerð
klæðaefnis (tweed), sem er
handofið, og hvergi fram-
leitt annarsstaðar í heimin-
um. Þetta efni er ólíkt
Harris Tvvced (frá Hebrides
eyjum) og verður Skye
Bedell Smith
látínn.
í fyrradag lézt í Washington
Walther Bedell Smith fyrrum
hershöfðingi og síðar aðstoðar
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna.
Bedell Smith var foringi her-
ráðs þess sem var til ráðuneytis
Eisenhower hershöfðingja, er
hann stjórnaði innrás fyrst í
Norður-Afríku, síðan á Ítalíu
og loks í Normandy. Hann var
talinn heilinn á bak við allar
helztu hernaðaráætlanir Eisen-
howers.
Síðar varð hann sendiherra
Bandaríkjanna í Moskvu í þrjú
ár og loks um tíma aðstoðarut-
anríkisráðherra í stjórn Eisen-
howers.
Hann var 65 ára er hann lézt
af hjartaslagi í fyrradag.
Tweed selt á meginlands- og
Bandaríkjamarkaði.