Vísir - 12.08.1961, Side 5
Laugardagur 12. ágúst 1961
V ÍSIR
5
MINIMINGARORÐ
GIJSTAV A. JÓNSSON,
RÁÐUNEYTISSTJÓRI
Hinn 13. f.m. lézt Gústav
A. Jónasson, ráðuneytisstjóri,
í Kaupmannahöfn, en hann
var þá nýkominn til Dan-
merkur ásamt eiginkonu
sinni, frú Steinunni Sigurð-
ardóttur. Hugðust þau dvelja
þar í landi um tíma sér til
heilsubótar eftir undanfarin
veikindi, er andlát hans bar
svo skyndilega að.
Gústav Adolf Jónasson var
fæddur 12. ágúst 1896, og
hefði hann því orðið 65 ára í
dag, en nú um mánaðamótin
eru 25 ár liðin síðan hann tók
við því starfi, er hann gegndi
til dauðadags.
Gústav fæddist að Sól-
heimatungu í Stafholtstung-
um. Voru foreldrar hans Jón-
as Eggert Jónsson, bóndi þar
og síðari kona hans, Kristín
Ölafsdóttir frá Sumarliðabæ
í Holtum. Eru beggja þeirra
ættir hinar merkustu og hafa
annarsstaðar verið raktar
svo að ekki er þörf úr að
bæta. Gústav lauk lögfræði-
prófi 1924 og stundaði fyrst
almenn lögfræðistörf, en
gerðist embættismaður 1927,
er hann varð fulltrúi lögreglu-
stjórans í Reykjavík, en 1934
var hann settur lögreglustjóri
í Reykjavík og gegndi því
starfi til ársins 1936, er hann
var skipaður skrifstofustjóri
í dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu. Því starfi gegndi
hann eins og áður segir til
æviloka.
Segja má að 34 ár sé lang-
ur embættisferill í erfiðum
og ábyrgðarmiklum störfum,
en þrátt fyrir erfiða heilsu
hin síðari ár átti Gústav til
síðustu stundar þá sönnu
vinnugleði og óbilandi skyldu-
rækni, sem ekki spyr að því
hvort treina megi sér hérvist-
ardagana með því að slaka á
kröfunum til sjálfs sín.
Svo sem kunnugt er leitaði
hugur Gústavs á yngri árum
víðar en að embættisstörfum.
Hann var þegar á skólaárum
kunnur hagyrðingur og varð
jafnframt þekktur sem einn
hinn mesti ,,húmoristi“ hér-
lendis, og urðu bæði gaman-
kvæði hans og önnur snilli-
yrði landfleyg, ekki sízt úr
gamanleikjum þeim, er hann
lagði hönd að á fyrri árum.
Á bókmenntum, og þá ekki
sízt Ijóðlist, hafði Gústav alla
tíð hinar mestu mætur og
bar flestum betur skjmbragð
á þær Iistgreinar. Sjálfur
lagði hann Ijóðagerð fljótlega
á hilluna og mun það hvorki
hafa stafað af því, að hann
tapaði gáfunni eða áhuga á
ljóðagerð, heldur hinu, að
hann helgaði skyldustörfum
sínum alla krafta sína. Þann
keim bar Gústav þó alltaf af
hinum fyrrnefndu hugðar-
efnum sínum, að honum var
alltaf lagið að vera léttur í
svörum og að sjá hinar skop-
legu hliðar mannlegs veik-
leika. Þessir hæfileikar
breyttu þó engu þar um, að
Gústav var í raun mikill al-
vörumaður, og urðu skyldu-
störf hans honum því jafn-
framt hugðarefni, sem hlutu
ávallt að sitja i fyrirrúmi.
Persónulegir hæfileikar
Gústavs og eigindir féllu
mjög vel að úrlausn starfa
hans. Mjög næm dómgreind
hans og heilbrigt mat á rök-
um og viðbrögðum manna,
veittu honum lítt brigðula
stoð við störf hans, sem efa-
laust er óhætt að fullyrða að
hafi lagt á hann þá byrði að
leggja úrskurð á fleiri og
fjölþættari vandamál sam-
borgara sinna en nokkur ann-
ar embættismaður í þessu
landi. 1 þeim störfum var og
mikilsvert, að hann var rót-
gróinn húmanisti og mildaði
það dóma hins stranga emb-
ættismanns.
Gústav starfaði um all-
mörg hin síðari ár í safnað-
arstjóm Dómkirkjusafnaðar-
ins í Reykjavík og féll það vel
við störf hans að kirkjumál-
um þjóðarinnar en þau voru
honum hugstæð, enda var
j Gústav trúmaður, þótt hann
' bæri ekki skoðanir sínar eða
tilfinningar á torg. Þess má
; ég að endingu ekki láta óget-
ið, að starfsfólki sínu var
Gústav kær og umburðar-
lyndur húsbóndi. 1 einkalífi
sínu var Gústav gæfumaður.
Eftirlifandi eiginkona hans,
frú Steinunn Sigurðardóttir
Sívertsens, prófessors og
vígslubiskups, var honum
hinn ástríkasti lífsförunaut-
ur og böm þeirra f jögur, öll
uppkomin, bera þeim hið
bezta vitni, enda samband
foreldra og barna mjög náið.
Eiginkonunni og bömunum
er vottuð .samúð við hið ó-
tímabæra fráfall, en vissulega
er bjart yfir þeim minning-
um, sem engan skugga ber á.
Baldur Möller.
SaSaT er örugg
hiá okkur.
Bifreiðar við allra hæfi.
Bifreiðar með afborgunum.
Bflarnir eru á staðnum.
BIFREIÐASALAN
FRAKRASTÍG 6
Símar: 19092,18966,19168
RAFVIRKJAR
PLASTSTRENGUK
2X1,5 q
3X1,5 q
G. Marteinsson h.f.
Umboðs- & heildverzlun
Bankastræti 10. Sími 15896
Reykjavík
VÍSITALA
framfærslukostnaðar
• Það er haft fyrir satt, að eyja-
skeggjar á Tíree, einni Suður-
eyja vestan við Skotland, þekk.
ist á göngulaginu. Þannig ligg-
ur í þessu, að sifelldir vestan-
vindar næða um eyjarnar, og
venjast menn á að ganga á-
lútir gegn veðrinu. Skotar kalla
þetta „Tiree-halla“.
• Helmingur jarðarbúa býr nú i
Asíu. Kringum árið 2000 er
búizt við að Asíubúar verði um
60 af hundraði jarðarbúa.
• Verkamaður í bandarískri borg
borðar að meðaltali 4,45 lbs. af
mat á dag. Verkamaöur í ind- j
verskri borg borðar hins vegar
aðeins 1,24 lbs. daglega, og 85
af hundraði þeirrar fæðu eru j
hrísgrjón.
Vísitala framfærslukostn
aðar hefur verið reiknuð út
og er hún einu stigi hærri en
í júli en hún var í júní —
eða -05 stig á móti 104.
Vísitalan er reiknuð út í
þrennu lagi, eins og sagt hef-
ur verið fyrr hér í blaðinu,
og er sýnt hér á eftir, hvem-
ig tölur breyttust innan ein-
stakra liða — þar sem um
einhverja breytingu var að
ræða — og er þetta allt mið-
að við töluna 100 í marz á
s. 1. ári (Fyrri dálkurinn mið-
ast við byrjun júlímánaðar
nú, en sá síðari við byrjun
júní-mánaðar).
A. Vörur og þjónusta
Hiti, rafm. o fl.. 126
Fatn. og álnavara .. 127
Matvörur.......... 112
Ýmis vara og þjón. 124
126
125
111
124
Samtals A 119 118
B. Húsnæði ..... 101 101
SamtalsAogB 116 115
C. Greitt opinberum
aðilum (1) og mót-
tekið frá opinberum
aðilum (II):
I. Tekjusk., útsv.
kirkjugarðsgj.
sóknargjald
tryggingarsj.gj.
sjúkrasamlagsgj.
námsbókargjald 79
og miðasmjörlíkis
1/3 1959 —1/4
79
II. Frádráttur:
Fjölsk.bætur (og
niðurgr. miðasmjörs
1960 .......... 333 333
Samtals C 21 21
Vísit. framf.kostn. 105 104
Útgjöldum vísitölu fram-
færslukostnaðar er hér skipt í
þrjá aðalflokka og er birt
vísitala fyrir hvern þeirra.
Auk þess er ubirtar vísitöl-
ur fyrir helztu liði tveggja
hinna þriggja aðalflokka vísi-
tölunnar. Með þessari sund-
urgreiningu er stefnt að því,
að sem gleggstar upplýsing-
ar fáist um verðlagsbreyt-
ingar almennt og um áhrif
verðbreytinga og skattbreyt-
inga á framfærslukostnað
,, ví sitöluf jölskyldunnar ‘ ‘.
A-ÞÝZKALAIMD B-lið - ÍSLAIMD
keppni í frjálsum íþróttum hefst á Laugardalsvelli kl. 4 í dag. Keppt verður í 110 m. grindahlaupi, kúluvarpi, þrí-
stökki, stangarstökki, 1500 m. hlaupi, 3000 m. hindrunarhlaupi, kringlukasti og 400 m. lilaupi.
Reykvíkingum hefur ekki áður geiizf kostur á að sjá slíka afreksmenn í fr jálsum íþróttum.
FRJÁLSÍÞRÓTTASAMBAND ÍSLANDS