Vísir - 12.08.1961, Qupperneq 6
6
VISIR
Laugardagur 12. ágúst 1961
ÚTGEFANDI: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR
Rltstjórar: Herstelnn Pólsson, Gunnar G Schrar.v
AðstoSarritstjóri: Axel rhorstelnsson. Fréttast|ór.
ari Sverrlr ÞórSarson, Porstelnn Ó. Thororensen.
Rltstjórnarskrlfstofun Lougavegi 27. Auglýsingar
og afgreiSsla: Ingólfsstrœtl 3. Áskrlftargjald er
krónur 30.00 ó mónuSi. - l lausasSlu krónur
3.00 eintakiS. Slmi 11660 (5 llnur). - Félags-
prentsmiwjar. h.f., Steindórsprent h.f., Eddo n.i.
.■.V.V.
■.v.v
.v.v.v.v.v.v.v-v.
v.v.
v.v.v.v.v
Japanir fara fram dr!
Eyjan í hafinu rauða.
Kommúnistar í Austur-Þýzkalandi — og raunar
víðar — eiga sér nú vart meira áhugamál en að ná
Vestur-Berlín á vald sitt, einangra borgina frá Vestur-
Þýzkalandi og gera borgarana þar sér undirgefna.
Þeir vilja svo að segja sökkva þessari eyju frelsisins í
hið rauða haf kommúnismans, sem umlykur borgina í
öllum áttum, og af síðustu ræðum Krúsévs virðist mega
ráða, að kommúnistar sé reiðubúnir til að láta framtíð
borgarínnar varða styrjöld, jafnvel heimsstyrjöld.
Það stoðar lítt að tala um friðarvilja og frelsisást,
þegar reynt er að undirstrika hvort tveggja með hót-
unum um dauða og tortímingu. Þeir, sem berja stríðs-
bumbur, eins og foringjar kommúnista gera, hafa eng-
an annan tilgang en að beita vopnum. Stríðsbumburnar
eru ekki til þess fallnar að lægja öldurótið í heims-
málunum.
Oft má deila um skyldur manna innbyrðis, en ekki
leikur á tveim tungum, að hinn frjálsi heimur á mikil-
vægum skyldum að gegna gagnvart þeim, sem búa í
Vestur-Berlín. Spurningin, sem hinn frjálsi heimur
verður að leggja fyrir sig, er þessi: Á hann að sam-
þykkja, að þær milljónir, sem í borginni búa, skuli
vera réttlausar — svo að segja réttdræpar — af því
að einhverjir menn austur í Moskvu hafa hom í síðu
þeirra? Svarið getur ekki orðið nema á einn veg, og
foringjar Vesturveldanna hafa tilkynnt, að þeir líti svo
á, að með því að vega að frelsi Vestur-Berlínar verði
vegið að frelsi allra manna.
Það er rétt hjá foringjum kommúnista, að þeir hafa
skapað sér mikið vald, en með valdinu hafa þeir ekki
skapað sér rétt. Hann verður aldrei skapaður með fall-
byssukúlum eða flugskeytum. Þess vegna verður réttur
Berlínarbúa aldrei frá þeim tekinn með fallbyssusmíð-
um austur í Rússlandi.
Úr vissu í óvissu.
Það er mjög skiljanlegt, að kommúnistar skuli vilja
hindra sífelldan straum flóttamanna úr Austur-Þýzka-
landi til Vestur-Berlínar og þaðan til V.-Þýzkalands.
Hann er versta auglýsing á ágæti kommúnismans, sem
hugsazt getur.
íslendingar eiga máltæki, sem hljóðar svo: „Fár
veih hvað átt hefir, fyrri en misst hefir.“ Kynni þýzkrar
alþýðu af kommúnismanum eru þau, að þar kjósa menn
hiklaust óvissuna — með tvær hendur tómar — en
allsnægtirnar og frelsið austur-þýzka, þ.e. vissuna. Og
menn eru ekki í rónni, fyrri en þeir hafa misst þessa
dýru eign!
Bretar ekki
lengur
samkeppn-
isfærir.
Japanir voru alræmdir
fyrir það fyrr á árum, að
þeir stældu ýmiskonar
iðnaðarframleiðslu ann-
arra landa og seldu hana
síðan á undirverði á
heimsmarkaðnum. Fyrir
slíka hugmyndaþjófnaði
urðu þeir óvinsælir á
Vesturlöndum og eimir
enn eftir af því að jap-
anskar vörur eru taldar
slæm eftirlíking á fram-
leiðslu annarra þjóða.
Á síðustu árum hefur
þó orðið veruleg breyt-
ing á þessu. Samtök hins
japanska iðnaðar beittu
sér fyrir því að mann-
orð iðnaðarins yrði
hreinsað. Síðan hafa
Japanir varið meiru fé
en flestar aðrar þjóðir
til iðnaðarrannsókna.
Afleiðingin hefur orðið
sú, að þeir þurfa nú ekki
lengur að stæla fram-
leiðslu annarra, eru sjálf-
ír komnir fram úr vest-
rænum þjóðum á ýmsum
sviðum.
Þessi staðreynd kom m. a.
í ljós nýlega í hinni alþjóð-
legu mótorhj ólakeppni sem^
fram fer árlega á eynni Mön
í frlandshafi. í þessari ■
keppni urðu japönsk mótor-1
hjól af svonefndri Honda-1
gerð í fyrstu fimm sætunum, ■
bæði 125 og 250 cc flokkun-j
um. Þetta er í þriðja skiptið*
sem Japanir taka þátt í mót-*
orhjólakeppninni á Mön og
vakti þessi fimmfaldi sigur
þeirra því hina mestu furðu.
Brezku mótorhjólafram-
leiðendurnir urðu sem
þrumu lostnir yfir þessu.
Fram til þessa höfðu þeir
ímyndað sér, að japönsk
mótorhjól væru lítið annað
en léleg eftirlíking á Harley
Davidson og öðrum brezkum
mótorhjólum. En nú keyptu
brezku fyrirtækin nokkur
japönsk mótorhjól, fóru með
þau í verksmiðjur sínar, og
skrúfuðu þau sundur til að
athuga byggingu þeirra.
Þeir urðu enn meira
undrandi er þeir sáu bygg-
ingu mótorhjólsins. Hún
var ekki eftirlíking af neinu
vestrænu, heldur byggð á
algerlega nýjum hugmynd-
um og það mjög góðum
fremst í framleiðslu mótor-
hjóla.
En tölurnar tala öðru máli.
Japanir hafa farið langt
fram úr Bretum í fram-
leiðslu mótorhjóla. Árið 1960
framleiddu Bretar 160 þús-
und mótorhjól. En á þessu
sama ári framleiddu Japanir
1,3 milljónir mótorhjóla.
Eitt einasta fyrirtæki í Jap-
an, Honda, sem smíðaði mót-
orhjólin er urðu svo sigur-
sæl á Mön, framleiðir fjór-
Sigurvegari í mótorhjólakeppninni var Bretinn Mike
Hailwood í japönsku 125 cc Honda motorhjóli.
hugmyndum. Og nú eru
menn farnir að velta því
fyrir sér, hvort brezku mót-
orhjóla-framleiðendurnir
neyðist ekki til að fara að
stæla hina japönsku fram-
leiðslu.
En þá kemur upp annað
vandamál. — Hvers vegna
eru Japanir farnir að taka
þátt í keppnismóti í Bret-
landi? — Skýringin er aug-
ljós, það er vegna þess, að
þeir hugsa sér að komast inn
á brezka markaðinn og Evr-
ópu-markaðinn með mótor-
hjól sín.
Bretum mun koma það
spænskt fyrir sjónir, ef
Japanir ætla að fara að
keppa á markaðnum heima
í Englandi, því að þeir hafa
jafnan litið svo á, að þeir
sjálfir stæðu allra þjóða
um sinnum fleiri mótorhjól
en öll framleiðsla Breta er.
Og nú er svo komið, að
mótorhjólamarkaðurinn í
Japan er að fyllast, enda þótt
íbúatalan sé 96 milljónir. En
verksmiðjurnar vilja halda
áfram að auka framleiðsluna
og bezta leiðin til þess er að
flytja út. Árið 1959 fluttu
þeir út 25 þúsund mótorhjól
og á s.l. ári 75 þúsund. Nú
leitast þeir við að marg-
falda útflutninginn. Þeir eru
sem óðast að þrýsta sér inn á
markaðina í öllum Asíulönd-
um, í Afríku og Evrópu. Og
nú stefnir óðum að því að
brezka mótorhjólaframleiðsl-
an er algerlega ósamkeppnis-
hæf. Japanir eru að taka
allan markað frá henni með
fullkomnari og ódýrarj mót-
orhjólum.
.-.V.V.V.V.V.V:
v.v.v.v.v.v.v.v.v,
.■.v.v.v.v,
Ódýrar ferðir á
reffutn 99Söffu.**
■I Ferðaskrifstofan Saga, sem
■Jer ein af þremur ferðaskrifstof
■|um í Reykjavík, sem hefur
■[leyfi til að selja farseðla, getur
•Iframvegis boðið upp á mjög ó-
■'dýrar einstaklingsferðir, svo-
g
■Jkallaðar „Inclusive Tours“.
\ Þessar ferðir eru bæð.i hag-
jlkvæmar og ódýrar ferðalagið
ýer skipulagt fyrirfram og greið
jjlist áður en farþeginn leggur af
'„■'stað. í verði farmiðanna er
ýmislegt innifalið, oftast gist-
ing og morgunverður, svo og
ferðir milli staða og stundum
er allt innifalið.
Ferðaskrifstofan Saga hefur ■
gefið út bækling þar sem tald-
ar eru upp fjöldi ferða, sem
skrifstofan hefur upp á að
bjóða. Hann mun liggja
frammi á skrifstofu Sögu og
verða afhentur ókeypis.