Vísir - 12.08.1961, Blaðsíða 12
VISIR
Laugardagur 12. ágúst.
Fimm ára áætlun Póllands
í hættu vegna verðbólgu9
Það er mikið
talað um Berlín
og framtíð henn-
ar um þessar
mundir — í
Lendon og Par-
ís og Washing-
ton og Moskvú,
en færri spyrja
um, hvað Ber-
línarbúir hafist
að. Búa þeir sig
ekki undir efiða
tíma á næst-
unni? Jú, þeir
gera það, því að
þeir draga að sér
allskonar birgðir
um þessar mund-
ir, eins og þess-
ar myndir frá
AP-fréttastof-
unni gefa ótví-
rætt til kynna.
Efri myndin er
af flutningabíl
— einn af mörg-
um hundruðum,
sem koma til
borgarinnar á
degi hverjum
með. allskonar
nauðsynjar —
og hin sýnir
verkamenn vera
að koma fyrir
vkurbirgðum í
hlaða.
21 eyrir og tveir krabbar.
ANDRI HEIÐBERG kafari,
sem svo mjög kom við sögu í
sumar er hann kafaði niður að
braki úr flaki franska hafrann-
sóknarskipsins Pourquis Pas?,
vinnur um þessar mundir við
að hreinsa ýmislegt lauslegt
upp af botni Reykjavíkurhafn-
ar. Á fimmtudaginn er hann
var út af Grófarbryggjunni
fann hann í botnleðjunni
skjalatösku sgm var bundin
við bíltjakk. Þannig hafði
henni verið sökkt. Nú hefur
rannsóknarlögreglan kannað
töskuna og komist að uppruna
hennar.
f febrúarmánuði 1960 voru
framin stór innbrot í skrifstofur
ýmissa fyrirtækja í húsinu
Túngata 5. M. a. í skrifstofur
Sakaruppgjöf
fyrirtækisins Kirkjusandur h.f.
en það rak þá frystihús.
Þjófarnir sem handteknir
voru allöngu siðar játuðu að
hafa' verið þarna að verki.
Skjalataskan var geymd í pen-
ingaskáp. „Lykillinn“ að því
hvernig hann skyldi opnaður lá
á miða í borðskúffu og var því
auðvelt fyrir þjófana að kom-
ast í skápinn. Það var mjög
mikið fé geymt í töskunni,
launaumslög sem verkafólk
hjá fyrirtækinu j átti og þau
fundu þjófarnir.7
Þegar Andri Heiðberg fann
töskuna, og farið var að kanna
innihald hennar, kom í ljós af
umslögum og kvittunum, að
þetta var taskan úr peninga-
skáp Kirkjusands. Ofaní henni
fannst 21 eyrir í peningum og
önnur taska, axlartaska eins
og innheimtumenn nota mjög,
-----og loks tveir litlir krabb-
ar.
Dóms- og kirkjumálaráðu-
neytið hefur tilkynnt, að for-
seti íslands hafi gefið færeysK-
um kúttera-skipstjórum upp
sakir. Voru þeir teknir á hand-
færaveiðúm við Kolbeinsey í
júníbyrjun, og dæmdir í fjár-
sektir.
SA-kaldi —
rigning öðru
hverju. Hiti
II—13 stig.
sem stafar af of mrklum launahækkunum
og aukrnni neyzlu almennings.
3 í árekstri.
í gærdag varð hörkumikill
bílaárekstur á Miklubrautinni,
og lentu þrír bílar saman, og
skemmdust allir meira og
minna og piltur sem ók jeppa
er var einn hinna þriggja bíla
skaddaðist í andliti.
Áreksturinn varð með þeim
hætti, að skammt frá gatnamót-
um Stóragerðis, var sendiferða.
bíl snúið við á götunni. Bar
þá að tvo bíla, jeppa og vcru-
bíl, báðir inn í bæinn. Jepp-
inn ætlaði að skjótast fram úr
vörubílnum, en um leið skauzt
sendiferðabíllinn fram fyrir
vörubílinn, og skullu jeppinn
og sendiferðabíllinn saman af
miklu afli. Kastaðist jeppinn á
vörubílinn og dældaði mjög
húsið. Sem fyrr segir meiddist
ungur maður er jeppanum ók.
Var hann fluttur í læknavarð-
stofuna.
★ í Strangeways-fangelsinu í
Manchester veiktust nýlega
30 fangar af matareitrun.
Það er greinilegt af
fréttum frá Póllandi, að
verðbólga er ekki síður
þekkt í hagkerfi kommún-
ísmans en annars staðar,
og getur reynzt hættuleg
efnahagsþróuninni.
Vikublaðið „Zycie Gosp
Odarze“, sem er helzta mál-
gagn ríkisstjórnarinnar og
kommúnistaflokksins á sviði
efnahagsmála hefir komizt svo
að orði, að framkvæmd fimm
ára áætlunarinnar pólsku sé í
alvarlegri hættu. Er jafnframt
sagt, að viðurkennt sé af opin-
berri hálfu, að stjórnin hafi
misst stjórn á þróuninni.
Blaðið bendir á, að orsak-
irnar megi rekja beint til
ófyrirsjáanlegra launahækk-
ana og samsvarandi aukn-
ingar á neyzlu almennings,
en vegna ónógs vörufram-
boðs, munj óeðlilegrar
spennu gæta á markaðnum
á næstu manuðum.
Jafnframt er þess getið, að
ekkj hafi bólað á þeirri auknu'
framleiðni. sem gert hafi verið
ráð fyrir við framkvæmd fimm
ára áætlunarinnar, og fer blað-
ið ekki dult með að áætlunina
hafi þegar#borið upp á sker,
svo að grípa verði til sérstakra
ráðstafana til að koma lagi á
hlutina.
Akureýri í morgun. —
Akureyrarlögreglan handtók
í fyrradag ungan pilt af Suður-
nesjum, sem játaði við yfir-
heyrslu að hafa brotizt inn í
benzínafgreiðslu á Egilsstöð-
um um verzlunarmannahelg-
ina og stolið þar á 4. þús. kr.
í peningum.
í sambandi við þetta bendir
blaðið á tvær leiðir úr vandan-
um, en vill þó ekki mæla með
þeim:
1) Kjör almennings séu
skert að meira eða ininna
leyti og jafnframt dregið úr
fjárfestingu.
2) Hætt verði við 5 ára
áætlunina og viðurkennt,
hvcrnig komið sé með því
að auka neyzluvörufram-
leiðslu og breyta fjárfesting-
arstefnunni í iðnaðinum.
Piltur þessi hafði verið á síld
veiðiskipi, en komið til Seyðis-
fjárðar rétt fyrir verzlunar-
mannahelgina. Fór pilturinn
upp á Héra'ð og brauzt inn á
Egilsstöðum. Að því búnu tók
hann bifreið á leigu, ók henni
fyrst niður á Seyðisfjörð, en
síðan áleiðis til Reykjavíkur.
En áður en hann komst svo
langt hafði grunur fallið á
hann og var Akureyrarlögregl-
an beðin að stöðva bifreið hans.
Var það gert og við yfir-
heyrslu játaði pilturinn á sig
innbrotið.
Blaðið er andvígt þessum
leiðum, og vill synda milli skers
og báru með því að ganga ríkt
eftir því, að verkamenn vinni
fyrir launum sínum og svíkist
ekki um. Haldið verði áfram
fjárfestingu í þungaiðnaði, en
jafnframt reynt með sérstökum
ráðum að auka framboð neyzlu-
vara, svo að dregið verði úr
þrýstingi, er hefir verðbólgu
í för með sér.
Augljóst er af hinum
opinskáu skrifum þessa
pólska kommúnistablaðs,
að hagkerfi kommún-
ismans er haldinn sömu
kvillum og séreignaskipu-
lagiS og ráðin til úrbóta
eru hin sömu.
Síldin.
Síldarleitin á Seyðisfirði,
sagði blaðinu í gærkvöldi, að
dauft hefði verið á miðum síld-
arbátanna í gærdag allan og
fram á kvöld, en þá var eins og
tæki að lifna yfir henni á ný.
Logn var en þoka og voru skip-
in í 60—70 mílna fjarlægð
undan Dalatanga.
Kunnugt var um þessi skip í
gærkvöldi á leið inn: Dofri
400 tunnur, Akraborg 200, Eld-
borg 700 og Jón Gunnlaugsson
200.
Þjofur af Suðurnesjum
tekinn á Akureyri.