Vísir - 05.09.1961, Qupperneq 4
Vf SIR
Þriðjudagur 5. september 1961
„Eg sá eldana úr
flugvél, eftir að tekið
var að skyggja. 1 rökkr-
inu urðu þeir að eldhafi.
Annars sá ég aðeins
reykinn, á daginn. Þeir
voru um allt landið, er
mér sagt. Kviknuðu upp
á 100 stöðum í einu, og
það þykir ekki einleikið
um upptökin.“
Jón Arngrímsson, skrif-
stofustjóri hjá varnarliðinu
er nýkominn frá Nýfundna-
landi, þar sem hann var í
kynnisför, vegna starfa síns
á vegum bandaríska flotans.
Hann sá hina miklu skógar-
elda, sem geisað hafa um
Nýfundnaland og hafa valdið
tjóni, sem ekki verður svo
auðveldlega virt, en um
hundruð milljóna króna er
að iræða. Vísir sagði frá
þeim fyrir fáeinum dögum
og náði í Jón strax og hann
kom heim. Hann sagði um
Gander-flugvöllinn, sem við
þekkjum:
— Um tíma leit út fyrir
að eldurinn mundi leggja
Gander í eyði. Eldlínan var
þá kominn með vestanvindin-
um stuttan spöl frá flugvell-
inum. Þá var flugvellinum
lokað og fólkið flutt í burtu.
En vindáttin breyttist skyndi
lega og snérist til baka í
glæpamenn
vestur og það varð til að
bjarga flugvellinum. En
hann var lokaður í tvo daga,
á meðan þess var beðið, sem
verða vildi:“
Þegar Jón var að koma til
Nýfundnalands, frá íslandi,
flaug hann inn yfir hálend-
ið í- norðurhluta landsins,
þar sem heitir Long Range-
fjallgarðurinn. Þá voru eld-
ar hér og þar um fjalllend-
ið, einskonar eldrjóður, sem
vörpuðu logalit sínum á
himininn og lögðu allt- í
eyði.
iðnaður er aðalatvinniíveg-
ur fólksins á Nýfundnalandi,
svo að nærri má geta að tjón-
ið er alvarlegra en svo,að það
verði bætt á næstu árum, og
dugir ekkert til bóta nema
erlend aðstoð komi til. Þetta
verður þeim mun alvarlegra
þegar haft er í huga, að
helmingur þjóðarinnar er
atvinnulaus og lifir á opin-
berum styrkjum. Þorp lögð-
ust í eyði, og sögunarmyllur
eyðilögðust með öllu, sum-
ar voru meðal þeirra
stærstu í landinu.
— Orsakirnar?
— Enginn gat sagt um
það með nokkurri vissu. En
fólkið hélt því fram, að um
glæpastarfsemi hefði verið
að ræða. Að vísu höfðu ver-
ið þarna óvenjulega miklir
— Annars barst eldurinn
svo fljótt yfir, að stofnarnir
urðu eftir, kolsvartir, en
blöðin og nálarnar brunnu.
Þetta sá eg greinilega þegar
eg ók í bifreið suður frá St.
Johns á vesturströndinni til
bæjar, sem heitir Argentia,
nokkurra klukkustunda
akstur. Þá sáust sárin í land-
inu bezt. Hæðirnar voru all-
ar eyddar, og annars staðar
voru sviðnir stofnarnir, og'
ekkert líf.“
— Tjónið?
— Það nemur hundruð-
um milljóna aðeins í tækj-
um. Ómetið er landið sem
eyddist. Skógarhögg og trjá-
þurrkar. Veðrátta hefir verið
að breytast svo mikið und-
anfarin ár. Ekki hafði komið
dropi úr lofti frá því í júní
þar til í lok ágústmánaðar.
Þá kom tveggja daga rign-
ing, og það hjálpaði auðvitað
til við slökkvistarfið. Áður
hafði verið mjög lítil úr-
koma í marga mánuði svo
skógurinn var ákaflega við-
kvæmur fyrir eldinum.
En eins og eg sagði, þá
talaði fólkið um glæpastarf-
semi. Skömmu áður en eld-
arnir kviknuðu hofði forsæt-
isráðherra fylkisins haldið
ræðu þar sem hann
sakaði bandaríska verka-
Jón Arngrímsson.
lýðsforingjann James Hoffa
um undirróðurs- og glæpa-
starfsemi í verkalýðsfélög-
um landsins. Ráðherrann var
ekki að skafa utan af hlutun
unum, þegar hann talaði til
fólksins og sagði að Hoffa og
menn hans væru ,,púkar úr
víti, sendir af djöflinum".
Enda þótt Nýfundnaland til-
heyri Kanada og hafi gert
það í rúmlega 20 ár, þá var
hinn bandaríski verkalýs-
maður að reyna að ná öllum
töglum og högldum í verka-
lýðsfélögum fylkisins. Hon-
um hefir orðið vel ágengt
vegna þess að atvinnuleysið
er svo mikið og menn hans
lofuðu að berjast fyrir hærr:
atvinnuleysisstyrk. En eftii
að forsætisráðherrann hafðí
haldið ræðu sína, sem tók
tvær klukkustundir í sjón-
varpi og útvarpi, hefir lepp-
um Hoffa verið ýtt út úr
áhrifastöðum á mjög skömm-
um tíma.
Eldarnir eru hefnd þessa
Hoffa, sagði fólkið. Hann og
samtök hans eru gífurlega
voldug og rík. En þar fer
fram geysileg glæpastarf-
semi. Kennedy-stjórnin hef-
ir reynt allt, sem hún getur,
til að berja starfsemina nið-
ur, en ekki tekizt enn þá,
þótt eitthvað sé tekið að
halla undan fæti fyrir Hoffa.
— Er þetta trúlegt?
— Eg sá blöðin aldrei
skrifa um þetta svona, en
það var ekki hægt að mis-
skilja fólkið .
— Hvernig ætli slökkvi-
starfið hafi gengið?
— Eftir því sem mér skild-
ist voru 5—7000 manns við
slökkvistarfið auk 2000
kanadiskra hermanna. Þeir
gátu ekkert gert annað en
reyna að einangra eldinn.
Nokkrir fórust, eitthvað inn-
an við tíu menn. En blöðin
rómuðu mjög frammistöðu
slökkviliðsins. Forsætisráð-
herrann hafði lýst yfir neyð-
arástandi í landinu svo að
heimilt var að kalla út alla
þá, sem gátu tekið þátt í
slökkvistarfinu. Nú hefir sem
sagt tékizt að einangra eld-
inn, og hann breiðist yfirleitt
ekki meira út, en brennir allt
sem fyrir er á þeim svæðum,
þar sem hann lifir.
Er DC-6B hávaia-
samari en fiotur?
2S
Reykurinn og eldurinn breiðist út./
Eins og skýrt var frá á
sínum tíma, voru gerðar
sérstakar hávaðamælingar
í sumar, er Caravelle þotan
kom hingað til Reykjavík-
ur. Notaði hún þá m.a.
braut þá sem liggur til
norðurs að miðbænum. —
Eftir komu hennar voru
gerðar mæhngar á hávaða
frá þeim flugvélum sem ís-
lenzku flugfélögin nota. I
ljós kom, að DC-6B vélar
íslenzku flugfélaganna
valda mestum hávaða í
flugtaki, en Caravelle og
Viscount gefa frá sér minni
hávaða.
Þetta er í fyrsta skipti sem
slíkar mælingar eru gerðar hér
á landi, og var í því skyni not-
aður mælir sem fenginn hafði
verið að láni hjá ríkisútvarp-
inu. Hann er frábrugðinn þeim
mælum sem notaðir munu al-
mennt við slíkar mælingar er-
lendis, að því leyti, að hann
mælir allt tíðnisviðið, en ekki
hverja áttund fyrir sig, eins og
venjulegt mun.
Þetta tæki sýndi, eins og fyrr
segir, að DC-6B vélarnar eru
hávaðasamari en hinar tvær
tegundirnar, Viscount og Cara-
velle. Hins vegar er þess að
geta, að þetta gefur ekki heild-
arniðurstöðu um það hvort háv-
aðinn frá D-6B er óþægilegri.
Ef mæld er hver áttund fyrir
sig, eins og gert hefur verið
ytra,, kemur í Ijós, að sá. hávaði
sem þoturnar gefa frá sér, mæl-
ist aðallega á efstu áttundun-
um. Af þessum orsökum eru
þessar mælingar hér ekki sam-
bærilegar við aðrar og þurfa
því ekki að gefa rétta niður-
stöðu, eins og áður segir.