Vísir - 08.09.1961, Qupperneq 2
z
vtsjiR
Föstudagur 8. septeno®>er 1961'
"pESi i
W&
m
D^>
V//A
Þetta cru íslandsmcistarar Vals í III. ílokki A. Sumarið hefur sannarlcga verið viðburðarríkt
fyrir þcssa stráka, því þeir unnu Rvk.-mótið í vor og fóru síðan í keppnisferð til Danmcrkur.
Valur vann Rvk-mót III. fl. B.
17 landsliðsmenn í einum leik
ÐórÖM&r i*. ekki
KR og AKRANES hafa nú
endanlega gengið frá liðum
Danska deildar-
keppnm.
Úrslit í dönsku deildarkeppn-
inni:
1. deild:
B 1909 — B 1913 4—2.
OB — B 1903 2—3.
Köge — OIA 1—2.
Vejle — KB 3—4.
AGF — Fredriksh 7—0.
Skovs.h.oved — Esbjerg 1—2.
sínum eins og þau ciga að
vera á sunnudaginn. KR-lið
ið verður þannig skipað:
Hcimir Guðjónsson, Hreið
ar Arsælsson, Bjarni Felixs-
son, Garðar Arnason, Hörð-
ur Felixsson, Helgi Jónsson,
Orn Steinscn, Gunnar Fclixs
son, Þórólfur Beck, Ellcrt
Schram og Gunnar Guð-
mannsson.
í Akranesliðinu verða:
Helgi Daníelsson, Helgi
Hanncsson, Björn Finsen,
Sveinn Teitsson, Gunnar
Gunnarsson, Kristinn Gunn
laugsson, Halldór Sigur-
björnsson, Skúli ^Hákonar-
son, Yngvar Elísson, Jón
Lcósson, Þórður Jónsson.
Mikið hefur verið talað
um að Þórður Þórðarson
léki með, en meiðsli hans
eru enn það alvarleg að ekki
er tækt að stilla honum upp.
Akurnesingar færa því Jón
Leósson í framlínuna en
skipa ungum mönnum í öft-
ustu vörnina. Annars er það
athyglisvert að í báðum lið-
samanlagt eru 17 landslðs-
menn, svo fólkið ætti að fá
eitthvað fyrir peningana.
2. deild:
Fram — AB .............. 1—0.
B 93 — HIK ............. 1—4.
Brönshöj — AaB......... 3—0.
Ikast — Frem Saks .... 0—5.
KFUM — Od. KFUM . . 1—2.
Randers — B 1901 ...... 5—2.
Miði nr. 160
Knattspyrnusamband ís-
lands efndi til happdrættis
í tilcfni af Englandsförinni.
Hefur nú verið drcgið í því
og kom upp miði nr. 168. —
Vinningurinn er fármiði hjá
Flugfélagi íslands ti! Lond-
on og til baka aftur. Hefur
vinnandinn þannig tækifæri
á að fara með landsliðinu á
fimmtudaginn. Aðeins var
dregið úr 360 miðum.
Sveinameistaramét
Reykjavíkur.
Sveinamcistaramót Reykja-
víkur fór fram á Melavellinum
sl. föstudagskvöld. Tvö met
voru sctt á mótinn, Skafti Þor-1
grímsson, ÍR, setti nýtt sveina-!
met í 300 m hlaupi, 39.0. sclc.
og Sigurður Ingólfsson Á, hætti
svcinametið í hástökki stökk
1.75 cm. Þcssir tveir piltar scttu
mcstan svip á mótið, Skafti
varð fjórfaldur meistari og Sig-
urður tvöfaldur. Auk bess var
Sigurður annar í 100 metra
hlaupi.
Sveinamestarar urðu þessir:
100 m. hlaup: Þcrkell Guð-
brandsson KR 12.1.
Stangarstökk: Kári Guðmunds-
son Á 3.00
600 m. hlaup: Ásg. Theódórs-
son KR 1.43.2
60 m. hlaup: Skafti Þorgríms-
son ÍR 7.5.
Kringlukast: Sig. Ingólfsson
Á 41.88
300 m. hlaup: Skafti Þorgríms-
son ÍR 39.00
Kúluvarp- Jakob Hafstein ÍR
14.16
Hástökk: Sig. ngóifsson Á
1.75
Sleggjukast: Jakob Hafstein ÍR
30.27
Langstökk: Skafti Þorgríms-
son ÍR 6.01
4X100 m. boðhlaup: Sveit ÍR
49.7.
14 ára fallbyssuskytta.
UTANFARAR Víkings kölluðu
á blaðamenn í gærdag og
skýrðu þeim frá förinni > heild.
f gærdag birtum við mynd af
stúlkunum og úrslitum leikj-
anna svo ckki er þörf á að end-
urtaka það.
Hinsvegar sáum við ýmsar
blaðaúrklippur um leiki Vík-
ingsstúlknanna. Dómarnir eru
misjafnir, en eru þó á einu máli
um að Víkingur hafi sýnt góð-
an og taktiskan leik, ekki fjöl
j breytilegan en árangursríkan.
'Þar sem Víkingar höfðu látið
boð ganga á undan sér, að lið
þeirra hefði verið í úrslitum
fslandsmótsins, bjuggust and-
stæðingar þeirra oftast við
þeim sem stórum og stæðileg-
um stúlkum með fjölda lands-
liðskvenna í liði sínu. Komu
því hinar ungu og léttu Vík-
ingsstúlkur mjög á óvart, bæði
að útliti og getu. Mesta athygli
virðast hafa vakið mark-
vörðurinn Herdís Jónsdóttir,
Guðrún Jóhannesdóttir, Rann-
veig Laxdal og Elín Guð-
mundsdóttir. Elín er aðeins 14
ára, en skoraði fjöldann allan af
mörkum og var í einu dönsku
blaðanna kölluð „íslenzka
fallbyssuskyttan“. — Annars
voru flestar stúlkurnar á aldr-
inum 17—18 ára, en engin var
eldri en 19 ára. Tvær voru 14
ára og aðrar tvær 15 ára. Vík-
ingur tapaði 6 leikjum, gerði‘l
jafntefli og vann 5 leiki.
Itölsk knatt-
spynta.
.Úrslit í ítölsku deildarkeppn-
inni:
Atlanta — Venezia .... 3—1.
Fiorantina — Samdoria 0—0.
Lecco — Bologna .... 2—2.
Mantova — Udinese .. 2—0.
Milan — Catania .... 3—0.
Padova — Juventus .. 2—1.
Palermo — Spal..... 1—3.
Roma— Inter ....... 2—3.
Torino — Lanerossi .. 303.
Haustmótin hafin.
Haustmótin í knattspyrnu 3. fl. A Valur—Vík. 12—0.
hófust um síðustu helgi og 4. fl. A Valur—Vík. 4—2.
urðu úrslit sem hér segir:: 5. fl. A Vík.—Valur 2—1.
2. fl. A Valur — Vík. 10—1. 5. fl. B Vík.—Valur 1—0.
5. fl. A KR—Þróttur 1—1. 5. fl. C Vík.—Valur 4—1.
3. fl. A KR—Þróttur 1—0. 2. fl. A KR—Þróttur 0—3.
4. fl. A KR—Þróttur 3—0. 1. fl. KR—Þróttur 8—2.
„Knnglufnálið" fyrir
démstól ÍBR í gær.
f gærkvöld kom fyrir íþrótta-
dómstól ÍBR hið margumtalaða
kringlumál, um meint brot Þor-
steins Löve í landskeppninni
við A-Þjóðvcrja.
Fyrir hönd ákærðra mætti'
Páll S. Pálsson, lögfræðingur,
og lagði hann fram gögn sín í
málinu. Einnig var mættur Hall-
grímur Jónsson, sá er lagði
fram kæruna á sínum tíma.
Enginn dómur hefir enn ver-
ið kveðinn upp í málinu, þar eð
vitnaleiðslum er ekki enn lokið,
en ljóst er að málið er flókið
og getur því liðið okkur timi
þar til dómur verður kveðinn
upp.
í íþróttadómstóli ÍBR eiga
sæti eftirtaldir menn: Jón
Manússon lögfræðingur, sem
jafnframt er formaður dóm-
stólsins, Þorgils Guðmundsson,
íþróttakennari, og síra Bragi
Friðriksson.
Pírie híeypur
ekki nreir.
Maðurinn sem sett hefur sjö
sinnum heimsmet og verið sá
íþróttamaður Breta sem mestan
svip hefur sett á frjálsar íþrótt-
ir undanfarin ár, hefur nú ver-
ið víttur af brezka frjálsíþrótta
sambandinu og fær hvorki að
taka þátt í landskeppnum þeim
sem brezka landsliðð heyr
þessa dagana, né heldur öðrum
keppnum.
Pirie sem hafði áður tilkynnt,
að hann mundi hætta keppni í
haust, hefur því líklega hlaupið
sitt síðasta hlaup.