Vísir - 08.09.1961, Side 8

Vísir - 08.09.1961, Side 8
8 VÍSIR Föstudagur 8. september 1961 Ritstiórar: Hersteinn Pólsson, ^unnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjór- ar: Sverrir Þórðarson. Þorsteinn Ó Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur: Laugavegi 27. Auglýsingar og afgreiðsla: Ingólfsstrœti 3. Áskriftargjald er krónur 45.00 á mónuði — I lausasölu krónur 3.00 eintakið. Sími 1 1660 (5 línur) — Félags- prentsmiðjan h.f./ Steindórsprent h.f.# Edda h.f. Skattarnir lækkaðir. 1 grein sinni hér í blaðinu í fyrradag gat Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra þess að jafnhliða endur- skoðun tollamála hefði farið fram að undanförnu gagnger endurskoðun á skatta- og útsvarslögunum. I ráði er að framkvæmdar verði ýmsar breytingar á skattalögunum, er varða atvinnufyrirtæki, þannig að skattlagning komi ekki í veg fyrir eðlilega uppbygg- ingu og þróun þeirra. Munu þessar fyrirhuguðu breyt- ingar koma til meðferðar Alþingis í næsta mánuði, er þing kemur saman. Hér er um síðari þátt þeirra endurbóta á skatta- löggjöfinni að ræða, sem núverandi ríkisstjórn hefir gengizt fyrir. I fyrra var sem kunnugt er framkvæmd stórfelld lækkun á tekjuskatti og útsvari einstaklinga. Var sú lækkun opinberra gjalda það mikil að meðal- fjölskylda með 100 þús. kr. árslaun greiðir nú til dæmis' ekkert í tekjuskatt, en greiddi áður á sjötta þúsund krónur. Utsvar hennar hefir stórlækkað að sama skapi. Og meðal fjölskylda með 1 20 þús. krónur árslaun greiðir nú aðeins um fimmtán hundruð króna tekjuskatt, en greiddi áður nær ellefu þúsund krónur. Mörgum mun ekki hafa verið ljóst hve stórfelld skatta- lækkun átti sér stað, en þessi dæmi, sem fengin eru frá sjálfri Skattstofunni, sýna svart á hvítu að hér er um verulegar upphæðir að ræða. Margar ríkisstjórnir hafa rætt um það að nauðsyn- legt væri að færa skattamálin í réttlátara horf, en þær hafa látið sitja við orðin tóm. Það er fyrst sú ríkisstjórn sem nú situr, er hefir framkvæmt áætlanirnar — og með stórlækkun opinberra gjalda fært allri þjóðinni verulegar kjarabætur. Ungir Sjálfstæðismenn. I kvöld koma ungir Sjálfstæðismenn saman á þing á Akureyri. Sjálfstæðisflokkurinn hefir lengi átt því láni að fagna að hin nýja kynslóð, sem upp vex í landinu hefir skipað sér í raðir hans. Þar er að finna meginskýring- una á því að hann er lang stærsti og áhrifamesti stjórn- málaflokkur landsins. En það er heldur engin tilviljun að æska þessa lands hefir fjölmennt undir fána Sjálf- stæðisflokksins. Þar kemur til sú víðsýni og það frjáls- lyndi, sem Sjálfstæðisflokknum er eiginlegt. Þar geta ungir sem aldmr unnið að sameiginlegum verkefnum, hvort sem þeir búa til sveita eða við sjó. Þar berst stétt með stétt fyrir hagsmunamálum lands og þjóðar. Það er eðlilegt að ungir menn marki stefnuna að miklu leyti og svo mun verða um ályktanir þessa þings ungra Sjálfstæðismanna. Framundan eru mikilsverðar ákvarðanir í efnahags- og utanríkismálum. Þeim fram- tíðar verkefnum munu ungir Sjálfstæðismenn reynast vaxnir og vinna heilhuga að hag lands og þjóðar á komandi árum. ■.V Erikson á sundi yfir Michigan-vatn. Seinasta spölinn sótti svefninn á hann. — Mesta Það er talið mikið þrek- virki fyrir sundmenn að komast yfir Ermarsund. — Fræknasi þolsundmaður ís- lendinga fram til þessa, Eyj- ólfur Jónsson, hefir gert nokkrar tilraunir til að kom- ast yfir, en þær hafíp aIlfl!Pí¥ mistekizt. Að miklu leyti hefir þetta verið því að kenna, að Eyjólfur hefir ekki haft fjárráð til að ráða hina hæfustu fylgdarmenn, einhvern þeirra fáu báta- formanna í Dover, sem bezt þekkja sjólag og strauma þarna. Að einhverju leyti er þetta kannske því að kcnna, að Eyjólfur er ekki nógu hraðsyndur. Það skiptir t. d. feikilega miklu máli að komast nógu fljótt út frá frönsku ströndinni áður en aðfallið utan af Atlantshafi kemur. Listin við að komast yfir Ermarsund er þannig fyrst og fremst í því fólgin, að kunna að nota sér sjávar- föllin. Kunni sundmaðurinn eða fylgdarmaður hans á þau geta þeir notað þau líkt og seglbátur notar vindinn og látið þau skila scr upp að strönd Englands. Erfiðar sundraunir. Sundið yfir Ermarsund er heimsfrægt, en víða annars staðar í heiminum eru háð löng og erfið þolsund, sum þeirra miklu erfiðari en það. T. d. eru háðar langar sund- keppnir niður Nílarfljót, og niður Missisippi, yfir St. Lawrence flóa, yfir La Plata flóa í S.-Ameríku og á fjölda annarra staða. ^yrir nokkru var þó unnið sundafrek, sem lengi verður í minnum haft. Það er ein hin allra mesta þraut á þessu sviði sem vitað er um. Var það að synda yfir Michigan- vatn frá Chicago og þvert yfir vatnið. Leið þessi er hvoþki meira né minna en 58 km og þar er ekki um að ræða að notfæra sér á neinn hátt sjávarföllin. 100 dollarar fyrir míluna. Ríkur Chicagóbúi hét fyrir nokkrum árum hverj- um þeim manni háum verð- launum, sem gæti unnið það afrek að synda yfir vatnið á þessun. stað. Verðlaunin skyldu vera 100 dollarar fyrir hverja mílu eða 3.675 dollarar. Það vantar ekki, að marg- ir ' afa reynt þetta sund, en jafnan hafa þeir gefizt upp við það. Er þessu nú líkt far- ið og með sund yfir Ermar- sund, að haldin er árleg keppni seint í ágústmánuði, þegar vatnið er hlýjast. í ár tóku sex þátt í keppn- inni, þrír karlmenn og þrjár konur. Var lagt af stað árla morguns. Eini atvinnusund- maðurinr. var 24 ára kona, Mary Margaret Revell, en ekki tókst betur hjá henni en svo að hún varð að gef- astu upp eftir fjórar mílur vegna kuldakrampa. 36 klst. á sundi. Hitt sundfólkið þoldi leng- ur, tvö gáfust loks upp eftir 26 og 29 mílur. Sá síðasi, sem lengst þraukaði og hafði það loks yfir var 33 ára Banda- ríkjamaður af sænskum ætt- um, Ted Erikson að nafni. Þykir hann hafa unnið geysilegt afrek, svo að varla mun nokkurt sund standast samanburð við það. Hann synti alla 58 kílómetrana, en það tók hann hvorki meira né minna en 36 klst. og 37 minútur. Er þetta alveg ó- trúleg þolraun. Má geta nærri, að sundmanninum hafi þótt síðustu klukku- stundirnar lengi að líða, þeg- ar svefninn sótti á hann. Léttist um 8 kg. Til dæmis um áreynsluna má geta þess, að Erikson léttist um 8 kg, en það sak- aði ekki svo mjög, því að hann vó 100 kg. fyrir Áður en hann lagði af stað í sund- ið hafði hann æft sig í heilt ár. Hann hafði hætt að reykja og drekka. Upphaf- lega hafði hann verið 80 kg, en hafði þyngzt um 20 kg. Er það mjög þýðingarmikið, vegna þess að líkamsfita skýlir manni fyrir kulda vatnsins, gerir menn léttari í sjónum og gefur manni nær- ingarbirgðir. Þegar Erikson var stiginn á land var hann mjög mátt- farinn. Fyrst þurfti hann að fara í bað til að ná af sér ull- arfitunni, sem sundmenn bera á sig. Síðan lagðist hann til svefns og svaf í tvo sólarhringa samfleytt. .V.V.V.V.'.WAW.V

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.