Vísir


Vísir - 08.09.1961, Qupperneq 10

Vísir - 08.09.1961, Qupperneq 10
10 VtSIR Föstudagur 8. september 1961 Hundamálið á Seltjarnarnesi: Tillitssemi í garð , hundanna eða harnanna? Hundamálið svonefnda á Sel- tjarnamesi hefur verið mikið á dagskrá meðal hreppsbúa síðustu daga. Þó að hundarnir eigi töluverðu fylgi að fagna meðal hreppsbúa, þá cru tals- menn þess, að nú verði að hætta hundahaldij einnig marg- ir. Um daginn átti blaðið tal við nokkra á Nesinu um j)etta mál. Þeir voru harðsnúnir gegn því að skylda þá, sem hunda eiga, til þess að farga þeim. Lítillega ræddi blaðamaður frá Vísi mál þetta við Jón Tómasson sveitarstjóra Sel- tjarnarneshrepps. — Þær eru astl., er hún hafi verið á göngu með tveggja ára son sinn, skammt þaðan frá sem hún býr, að stór hundur af erlendu kyni, hafi komið á móti þeim. Hún kvaðst hafa látið hundinn afskiptalausan, en hann hafi strax farið að snuðra utan í barnið, unz hann allt í einu glefsaði í það. Barnið varð hrætt og hafði Margrét þá tek- ið það í fang sér, en hundur- inn hélt áfram að glefsa í barn- ið. Ég varð hrædd við hundinn og drengurinn ennþá hræddari, og meðan við vorum að reyna að komast hingað heim hélt hafa búið nokkur ár á Seltjarn- arnesi, og eiga mjög skemmti- legt hús. Þau hafa til skamms tíma átt hund. Nú síðast áttum við mjög fallegan hund, sem var líkur hinum fræga Lassie. En við höfum nú fargað hon- um, sagði Gottskálk. — Frú Guðrún sagði: Við sáum mikið eftir honum, en þegar málið liggur þannig fyrir að gera skal upp á milli hundsins og barna nágrannanna, þá er augljóst, hver útkoman verður. Við urð- um þess áþreifanlega vör, að mæður barnanna hér í götunni hafa áhyggjur af börnum sín- Kobbi og Júní v erða víst að víkja. ótaldar kvartanirnar, sem skrif stofu hreppsins og hreppstjóra hafa borizt í sumar frá mæðr- um, sem ekki hafa getað kom- ið börnum sínum út vegna hræðslu við hundana. Að mín- um dómi er það meiri skerð- ing á persónufrelsi en að leggja bann við hundahaldi. Um síðustu mánaðamót tók gildi fyrsta heilbrigðissam- þykktin fyrir Seltjarnarnes- hrepp. í þeirri samþykkt er svo kveðið á, að starfa skuli sérstök heilbrigðisnefnd hrepps ins. í einu ákvæði samþykkt- arinnar er lagt bann við hunda- haldi, hliðstætt því sem ákveð- ið er í öllum nágrannasveitum hreppsins. Það sem er að ger-' ast, er einfaldlega, að heilbrigð- isnefndin er hér að framkvæma einn lið samþykktarinnar. Ég vil ekki láta telja mig einhvern óvin dýra, þó ég telji að tímabært sé að leyfa ekki lengur hundahald hér á Nes- inu, sagði frú Margrét Péturs- dóttir Lindarbraut 2, í sam- tali við Vísi. Ég hef aftur á móti mjög slæma reynslu af því, að hundar skuli leyfðir hér, sagði frúin. Hún skýrði frá því, að í marzmánuði sið- hundurinn áfram að glefsa í drenginn. Það liðu margir mán- uðir, ég leitaði sálfræðings, vegna þess hve barnið hafði orðið ofsalega hrætt. Hann hafði mánuðum saman martröð og ógerningur var að koma honum út á daginn af ótta við hundinn, — jafnvel ketti hræðist hann líka. Taugaáfall- ið lýsti sér m.a. þannig, að hann fór að stama. Það er nú fyrir skömmu siðan, að hann virðist vera farinn að jafna sig á þessu, sem ég m.a. ræð af því, að hann fær nú ekki lengur martröð, sem lýsti sér í því að hundar voru að ásækja hann. Margrét kvaðst telja það ógerandi að heimila hundahald gegn ákveðnum skilyrðum, því þess myndi ekki gætt sem skyldi að fara eftir þeim tak- mörkunum, sem setja yrði. Og yfirleitt eru þessir hundar hér á Nesinu ekki í sambandi við búrekstur, heldur nánast leik- föng. Mér virðist sem mikil ábyrgð fylgi slíku. gagnvart nágrönnum sem ég vildi ekki á mig taka. Að Unnarbraut 20 búa Gott- skálk Þ. Eggertsson og kona hans, Guðrún Einarsdóttir, er um vegna hundanna. Og ég hef veitt öðru eftirtekt, sem snertir hundahaldið hér. Meðan þetta voru litlir hvolpar var vel um þá hirt, þvegnir og jafnvel bað- aðir. En eftir að þeir voru orðnir „stórir“, hefur það mjög viljað brenna við, sagði frú Guðrún, að þeir liggi hálfgert við opið. Hverjum manni hér á Nesinu mátti vera það ljóst, að bann við hundahaldi hlaut að koma, m.a. vegna nágrennis við Reykjavík. En þar, í Kópavogi, Garðahreppi og í Hafnarfirði er bann við hundahaldi. Þó að hér sé víða opið svæði og oln- bogarými, þá hefur byggðin aukizt svo hér á liðnum árum, að Seltiarnarnesið er ekki leng- ur friðsæl sveit. Gottskálk kvaðst líka vera þeirrar skoðunar að í þessu máli séu aðeins tvær leiðir, — að leyfa hundahald eða banna bað alveg. Það er ekkert milii- stig í málinu.' Það mætti líka setia dæmið þannig unn að segia. hvort heldur eiei að ráða eerðum hreppsvfirvaldanna. tillitssemi í garð þeirra sem Framh. á bls. 5. Pétur Sigurðsson: „Bjargið íslandi" Svo heitir greinarstúfur, sem birtist hér í blaðinu 1. september sl. Ég varð dálítið undrbndi, er ég las þessa grein. Upphrópunin hefði nú allt eins vel mátt ná til alls heimsins. Mörgum mun finn- ast, sem honum þurfi nú að bjarga. En þótt þróun þjóð- mála hér á landi sé vissu- lega allískyggileg, þar sem andstæð öfl hafa hag þjóðar- innar stöðugt á uppboði og óstöðvandi kaupskrúfa og verðbólga gera þessa mein- þróun æ geigvænlegri fjár- hagslegu sjálfstæði þjóðar- innar, þá erum við ekki ein- ir meðal þjóðanna um þessa ófarsæld, en slíkt er þó eng- in huggun. Ég tek hér til máls aðal- lega vegna þess, sem í grein- inni er sagt um kynnisför okkar 50 manna hópsins til höfuðstöðva MRA manna í Bandaríkjunum, í Mackinac. Hafi dr. Frank Buchman og samherjum hans þótt koma okkar þangað ekki bera æskilegan árangur, máttu þeir sjálfum sér um kenna að mestu leyti. Hér mætti minna á orð postulans um landsmenn hans: ..Það ber Útvarpið — Frh. af bls. 7. gefnar út, þær síðan gerðar upptækar, listmálurum lagðar lífsreglurnar, m. a. bannað að1 mála bert kvenfólk o. s. frv.l Dimitriu sér greinileg hnignun-1 armerki á mörgum beztu rit- höfundum lands síns, því þeim hefur verið sniðinn svo þröng- ur stakkur, að þeir fá engan veginn notið sín. Undir lokin heyrðum við lista yfir mennta- menn, sem ýmist eru i fang- elsum, í útlegð, eða hafa fram- ið sjálfsmorð. Dimitriu sagði menntamenn austantjalds ekki ætlast til þess, að stofnað yrði til heimsstyrjaldar til að þeir mættu endurheimta frelsi sitt, en „við þörfnumst siðferðislegs stuðnings sérhvers mennta- manns sem býr við frelsi.“ Flutningur Sigurðar á þessu merka erindi var ágætur. Mikið var leikið af góðri, sí- gildri tónlist og endaði dag- skráin með sinfónutónleikum, en þar heyrðum við 7. sinfóníu Bruckners. Nokkur galli var það, að hið þróttmikla og ágæta verk Mussorgskijs, „Myndir á sýningu“, var flutt af afar lé- legum hljómplötum. Þórir S. Gröndal. | ég þeim, að þeir eru vand- látir Guðs vegna, en ekki með skynsemd“. Áhuginn getur verið lofsverður, en þó helzt samfara gætni og hyggindum. Mér féll prýðilega við hina ágætu samferðamenn mína í þessari för, datt aldrei í hug að eyða svefn- tíma mínum í að forvitnast um það, hvort allir ungu mennirnir háttuðu nógu snemma, en hitt verður að segjast, að undirbúningur fararinnar var vissulega misráðinn. Keppt var að því að fylla flugvélina, 50 skyld- um við vera. Sennilega hefði þeim vestra fundist koma okkar notabetri, ef við hefð- um verið aðeins 15 í stað 50, og gef ég ekki frekari skýr- ingar á þvi. Dvöl okkar á þessum dásamlega stað, í þeim glæsilegu húsakynnum og við höfðinglega gestrisni og aðbúð var ekki nema nokkrir dagar, en eigi eitt- hvað dásamlegt að fæðast, verður meðgöngutíminn sennilega að vera lengri en átta dagar ekki sízt þegar um jarðundnar sálir manna er að ræða. Þegar ég kynntist fyrst siðgæðisvakningunni fyrir mörgum árum, hét hún Ox- fordhreyfing og var þá ó- pólitísk. Ég fagnaði henni, þó ekki öðru vísi en allri ann- arri góðri kristilegri starf- semi, sem keppir að því að bæta breytni þjóða. Mér hef- ur jafnan fundizt ég hafa þess þörf og auðvitað allur þorri manna. Hreyfing þessi lagði þá alla áherzlu á þetta. að ekk' væri nægilegt að játa kristna trú, við yrðum að lifa strangheiðarlegu. hreinu og óeigingjörnu lífi. Vissulega er þetta glæsilegl markmið. þótt það kunni að reynast okkur torsótt, en værum við allir samhuga um það. yrði sóknin léttari. Að öðru leytj en þessu hef ég ekki komið hér við sögu. Að siðbótarhreyfing þessi er nú pólitískari en upphaf lega. er mér vel skiljanleet Hún hefur vafalaust orðið fyrst fyrir árásum þeirra nólitísku "tefna. sem jafnan amast við allri slíkri starf semi og hefur þvi þokast í áttina til andstæðu við þær þótt hún vilii andlega heill þeirra, engu -síður en ann- arra. Flestar þjóðir hafa vissu- lega siðbótarþörf.íslendingar engu síður en aðrir, og gæti því MRA-hreyfingin orðið okkur góð hvatning og hef ég hug á að víkja nánar að bví síðar. Pétur Sigurðsson.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.