Vísir - 25.09.1961, Blaðsíða 3

Vísir - 25.09.1961, Blaðsíða 3
VÍSIR J Allar norrænu fegurðardísirnar með verðlaun, eftir að úrslitin höfðu verið tilkynnt í „Miss Norden“- Kassarnir eru frá Sportveri, Álafossi og Belgjagerðinni, úlpa frá Belgjagerðinni og „anarakkur" frá Álafossi. keppninni. — Sportveri og Það ríkti mikil eftirvænt- ing í sölum Hótel Borgar um miðnætti á laugardagskvöld, þegar tilkynnt var að nú mundu úrslitin í fegurðar- samkeppninni „Miss Nord- en“ verða tilkynnt. Dísirnar gengu allar fram og stilltu sér upp við hl.jómsveitar- pallinn. Einar Jónsson, sem kynnti hina nýju fegurðar- drottningu, gekk franf, tók í hcndina á „Ungfrú Noreg- ur“ og leiddi hana fram á mitt dansgólfið. Þcssi stúlka hafði verið kjörin „Ungfrú Norðurlönd“ 1961. Fagnaðar- læti áhorfenda glumdu í salnum. Fegurðardrottningin svar- aði með fallegu brosi. Fagn- aðarlætin mögnuðust enn. I hanastélsboði í Naust- inu á laugardag milli kl. 16 og 18 hafði Einar Jóns- son skyndilega birzt með stórt umslag: „Hér eru úr- slitin“, kallaði hann. Allir áttu von á því að fá að heyra stórfréttirnar, en Einar var nú ekki á þeim buxunum. Þau voru geymd innsigluð hjá frú hans, þar til um miðnætti. En þarna upphóf- ust miklar umræður, hver hafði hlotið titilinn, allt var metið og vegið til að komast að niðurstöðu, reynt að „pumpa“ dómnefndina en árangurslaust. Dómurinn hafði verið kveðinn upp í kóngabásnum á Nausti og það voru allir í óvissunni nema dómnefndin. En allir voru mjög spenntir og eftir- væntingarfullir, ekki sízt fegurðardrottningarnar sjálfar. Þegar fegurðardrottningin hafði verið krýnd, gengu stúlkurnar í röð eftir sölum Hótel Borgar og kynntu sig fyrir gestum hússins. Fegurðardrottning íslands María Guðmundsdóttir (t.v. og sænski þátttakandinn í keppninni, Inger Lundquist (t.h.) óska Rigmor Trengreid til hamingju með sigurinn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.