Vísir - 25.09.1961, Blaðsíða 8
VlSIR
Mánudagur 25. september 1961
ö
ÚTGEFANDI: BLADAÚ'GÁFAN VÍSIR
Ritstjórar: Hersteinn Pólsson, Gunnar G. Schram.
ASstoSarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjór-
ar: Sverrir ÞórSarson. Þorsteinn 6 Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur: Laugavegl 27. Auglýsingar
og afgreiSsla: Ingólfsstrœti 3. Áskriftargjald er
krónur 45.00 ó mónuSi — I lausasolu krónur
3.00 eintakiS. Sími I 1660 (5 llnur) — Félags-
prentsmiSjan h.f., Steindórsprent h.f., Edda h.f.
í sama fjölbýlishúsi.
Þegar maður kemur frá stóru landi í lítið og af-
skekkt ríki má vera að gesturinn haldi að óhætt sé
að gefa yfirlýsingar, sem enga stoð eiga sér í veruleik-
anum. Þannig fór skriffinninum Boris Polevoj og vin-
um hans á blaðamannafundi með íslenzkum blaða-
mönnum rétt fyrir helgina. Vísir rifjáði upp á laugar-
daginn ummæli Polevoj þessa sem bandaríski rithöf-
undurinn Howard Fast hafði eftir honum. Rússinn
hafði tjáð að vini þeirra beggja, rússneskum rithöfundi
einum liði vel og byggju þeir í sama fjölbýlishúsinu.
Síðar komst Fast að því að hér sagði Polevoj ósatt.
Rithöfundinn höfðu Rússar þá löngu tekið af lífi.
Á fundinum með íslenzku blaðamönnunum sagði
einn Rússinn, þegar hanri var spurður um rithöfund-
inn Dudentzev: Hann hefir það ágætt. Við búum í sama
f jölbýlishúsinu!
Þetta getur þýtt að Dudentzev hafi þegar verið
rutt úr vegi og þá væntanlega fyrir hinajágætu bók
sína ,,Ekki af einu saman brauði. Vera má líka að
Rússinn hafi í þetta sinn sagt satt: Dudentzev búi við
beztu kjör. Það skiptir hér engu höfuðmáli.
Hitt sýnir þessi saga, sem koma Rússanna hingað
hefir gefið tilefni til þess að rifja upp, að í Rússlandi
eru menn aflífaðir þegjandi og hljóðalaust fyrir það að
rita bækur, sem ríkisvaldinu falla ekki í geð. Og ekki
nóg með það. Menntaðir rithöfundar og blaðamenn víla
það ekki fyrir sér að hilma yfir glæpinn og ljúga því
umsvifalaust að erlendum kunningjum, að sá sem um
ræðir búi við beztu heilsu í næstu íbúð, þótt hann sé
löngu dysjaður í fjöldagröf kommúnista.
Það er ekki slæmt hjartalagið hans Polevoj, vara-
formannsins í íslenzk-rússneska félaginu í Moskvu.
Gott er að eiga slíka drengskaparmenn að vinum fyrir
einfalda smáþjóð sem okkur Islendinga.
Erfiðleikarnir minnka.
Greinargerðin um áhrif viðreisnarinnar hefir opnað
augu margra fyrir því að efnahagsástandið hefir farið
stórbatnandi, þrátt fyrir verkföll og annan mótbyr.
Gjaldeyrisstaða landsins hefir færzt mjög í betra
horf. Halli var jafnan á gjaldeyrisstöðinni en nú er
hann loks horfinn. Sparifé er undirstaða fjárfestingar
og verklegra framkvæmda. Það hefir stóraukizt í
bönkum landsins eftir að ríkisstjórnin hækkaði vext-
ina. Skattar voru stórlækkaðir og barnalífeyrir hækk-
aður og þannig var þeim sem minnstar hafa tekjurnar
veitt fjárhagsleg bót. Þrátt fyrir skattalækkunina voru
fjárlög afgreidd greiðsluhallalaus.
Flest ríki Evrópu hafa leyst sín efnahagsvandamál
með hagfræðilegum ráðum. Þeim ráðum höfum við ekki
viljað beita fyrr en nú, og árangurinn leynir sér ekki.
Nauðungarflutningar |
1
Nýr þáttur hins mikla
harmleiks á markalínu
Austur- og Vestur-
Berlínar er hafinn. Lög-
reglumenn kommúnista-
stjórnarinnar eru fam-
ir að framkvæma útburð
og nauðungarflutning
fólks úr húsum þeim
sem standa á markalín-
gefið merki til nágrannanna
sem bjuggu hinu megin við
götuna í Vestur-Berlín. Voru
því sóttir slökkviliðsmenn
og stóðu þeir viðbúnir með
segl til að taka á móti fólk-
inu og gekk þetta vel.
EyðusvæSi myndað.
Það virðist vera ætlun
kommúnista, að skapa al-
gert eyðusvæði á um það
bil 100 metra belti austan
síðustu daga safnazt saman
fyrir vestan múrvegginn til
að horfa á hina hræðilegu
nauðungarflutninga á fólki
úr íbúðarhúsunum. Það er
nú talið að um 80 flutninga-
vagnar, — stórir, yfirbyggð-
ir vörubílar hafi verið í
notkun við þetta að imdan-
förnu. Hefur það vakið reiði
fólksins sem á horfir vestan
megin. Það steytir hnefana
5
Flutningavagnar koma að. Vopnaðir lögreglumenn bera búslóð fólksins út, smala fólk-
inu saman og svo er ekið brott. Myndin er tekin á mörkxun Austur- og Vestur-Berlínar.
unni. Er ömurlegt að
horfa á það, þegar hin-
ir kommúnísku her-
menn og lögreglumenn
reka fjölskyldurnar
kveinandi og grátandi
út úr íbúðum sínum.
Flutningabílarnir koma
að og búslóðin er drifin
upp á þá. Svo er öllu
ekið brott, enginn veit
hvert.
Allar smugur notaðar.
Ástæðan fyrir þessum
flutningum er sú, að
kommúnistunum hefur enn
ekki tekizt að stöðva flótt-
ann vestur á bóginn. Það
hefur einkum verið nokkuð
algengt að undanförnu, að
fólk flýi gégnum þau hús,
sem standa alveg á marka-
línunni. Að vísu hafa komm-
únistarnir múrað upp í
glugga og dyr á neðstu hæð-
um, en það hefur ekki nægt,
flóttafólkið rennir sér í
böndum niður ú r gluggum
frá efri hæðum.
Eina nóttina komst heil
fjölskylda niður úr glugga
á 3. hæð. Fólk þetta hafði
við markalínuna. í þessum
tilangi eru íbúðarhúsin
miskunnarlaust rýmd og sum
þeirra jafnvel rifin niður.
Niðurrifssveitir kommúnista
hafa t. d. verið að verki í
garðhúsahverfi einu með-
fram mörkunum í suður-
hluta borgarinnar og hafa
þær jafnað garðhúsin við
jörðu, rifið niður tré og
klippt burt runna.
Samtímis þessu er mjög
hert á umferðarbanni með-
fram markalínunni. Hefur
austur-þýzka 1 ögreglan nú
ákveðnar skipanir um að
skjóta hvern þann sem í ó-
leyfi fer inn á eyðisvæðið.
Ekki er vitað hve margir
hafa verið skotnir á flótta á
eyðusvæðinu, en víst er að
þeir skipta nú þegar nokkr-
um tugum.
80 flutningavagnar.
íbúar Vestur-Berlínar hafa
og kallar reiðiyrðum til
hinna kommúnísku lög-
reglumanna, og þeir þá
stundum svarað með því að
varpa táragasi og reyk-
sprengjum vestur yfir marka
línuna.
Hjón aðskilin.
Einn ömurlegasti at-
burðurinn í sambandi við
þessa nauðungarflutninga
varð nú um helgina. Þá kast-
aði kona sér af þriðju hæð
út um glugga og kom niður
á gangstéttina, sem tilheyrir
Vestur-Berlín. Hún slasaðist
mikið og var flutt á sjúkra-
hús í borginni. Þó fór kann-
ske verr fyrir eiginmanni
hennar. Hann ætlaði að
stökkva á eftir henni út um
gluggann, ; en þá gripu
sterkir armar í hann og
drógu hann inn aftur. Lög-
regla kommúnista hafði kom-
ið inn í stofuna og hindraði
flóttatilraunina á síðustu
stundu. Þó að konan nái sér
eftir siysið, mun áreiðanlega
líða langur tími þangað til
hún sér mann sinn aftur, ef
það verður nokkru sinni
framar. Þannig er eitt smá-
atriði hins mikla harmleiks.
rw^wwgTj^^vuwwwwwwj^ywwwuw^wwwyj ■wyywjwwwwwwwvwwwvwwwvwwwwwwi