Vísir


Vísir - 25.09.1961, Qupperneq 13

Vísir - 25.09.1961, Qupperneq 13
Mánudagur 25. sept. 19öl VfSIB 13 Storm P. Krossgáta — Hugsið þér aldrei um gát- ur lífsins? — Eg sem geng mina kross- gátu eftir gangstéttinni á hverjum degi. — Útvárpiö — í kvöld: 420:00 Um daginn og veginn (Snorri Sigfússon námsstj.). — 20:20 Einsöngur: Sigurður Ólafsson syngur. — 20:40 Upp lestur: „Móhammeð ben Lhao- ussin", bókarkafli eftir Anto- ine de saint Exupery. Erlingur E. Halldór'sson þýddi. — Erling ur Gíslason leikari flytur. — V.V4*»V.W*W»W»V 21:00 Tónleikar: Fiðlukonsert nr. 4 í d-moll eftir Paganini. — 21:30 Utvarpssagan: „Gyðj- an og uxinn" eftir Kristmann Guðmundsson; XVI. (Höf. les). — 22:00 Fréttir og veðurfr. — 22:10 Um fiskinn (Stefán Jóns son f réttamaður). — 22:25 Kammertónleikar: Strengja- kvartett í C-dúr, op. 59 nr. 3 TVlVEGIS hefur gefizt tilefni til þess að undanförnu, að ræða eilítið um leigubílstjóra, þ. e. einstaka menn í þeirri stétt. 1 fyrra skiptið vegna sölu á eitr- uðu áfengi, og í hitt skiptið vegna okurs á vindlingapakka. Nú fyrir helgina leit einn af lesendum blaðsins inn á rit stjórnarskrifstofurnar, og sagð ist geta bætt við einni sögu í þennan hóp, sem þó væri kann ske ekki mjög alvarleg, en sýndi þó í senn ábyrgðarleysi og þá gróðafíkn, sem mjög virðist einkenna einstaka menn í stéttinni, og áður hefur verið vikið að. Hann sagðist hafa lagt leið sína á eina bifreiðastöð í Aust- urbænum nú í siðustu viku, — og reyndar viðurkenna, að hann hefði ekki verið kominn í sem löglegustum erindum. Hann var sem sé á leið á dans- ! leik, og þurfti á að halda ein- hverju áfengi. Nú er það ekk- ert launungarmál, að slík sala á sér stað i meiri og minni stíl, og eins og frásögumann grunaði, þá tókst eftir skamma stund að hafa uppi á miðaldra, gráhærðum og frekar kinn- fiskasognum manni úr stétt- inni, sem kvaðst geta leyst úr hinum bráða vanda komu- manns. Bifreiðarstjórinn bað hann tala við sig inn á salerni, og þar falbauð hann tvær hálf- flöskur af því sem hann kvað vera vodka. Sá er keypti innti hann eftir því, hvort víst væri, að hér væri ekki um að ræða ísvarn- arvökvann af Keflavíkurflug- velli, þar eð flöskurnar vorr áteknar. Bifreiðarstjórinn kvað nei við. Síðar, er kaupin höfðu farið fram, og komumaður var 150 krónum fátækari fyrir eina bjórflösku af ,,vodka“, var far- ið að smakka á veigunum. — Þótti þá svo einkennilegt bragð að, að tveir af þremur viðstöddum þorðu ekki ofan í sig að láta, og var ákveðið að láta efnagreina mjöðinn. Efnagreiningin leiddi í ljós, að hér var um að ræða spíri- tus, drykkhæfan að vísu, en saman við hafði verið hellt hitaveituvatni, því að nokkurt magn að kísil fannst i vökv- anum. Hefur það átt að gera bragðið þannig, að ekki væri hægt að skera úr í fljótu bragði hvað á flöskunni væri. Eitt er, eins og áður hef- ur verið sagt, að selja heiðar- leg áfengi, frá áfengisverzlun- inni, þótt lögbrot sé, en hitt er að selja mönnum falsaða vöru, spíra blandaðan með því, sem fólk leggur sér ekki almennt til munns. Hér ræður enn gróðrafíknin, því að hafa má nokkrum krón- um meira upp úr því, að kaupa smyglaðan spíritus, sem eng- inn veit, hvorki bílstjórinn sem selur hann, eða sá sem upp- haflega keypti hann, hvort um drykkjarvarning er að ræða eður ei. Það hefur marg oft komið fyrir, og verið frá því skýrt í blöðum á Norðurlönd- um, að sjómenn á skipum það- an hafa keypt spiritus í Hol- landi og Belgíu, og víðar, og misst siðar sjónina af neyzlu hans, eða þá hreinlega dáið. Nei, heldur skal verzla með slíka vöru, jafnvel þegar vitað er, að eitthvað magn er af eitr uðum spíritus í umferð, til þess að græða nokkrum krónum meira, en skeyta engu um af- leiðingarnar, fyrir þá sem kaupa. Skal hér komið á framfæri þeirri beiðni og áskorun við menn, að ef þeir endilega þurfa að skipta við þessa stétt með áfengi, þá skulu þeir ekki veita móttöku öðru en merkt- um flöskum úr áfengisverzlun- inni, — óáteknum. Heima er bezt, ágústhefti 11. árg. er komið út. 1 því eru tvær greinar helgaðar síra Eiríki Ei- ríkssyni, þjóðgarðsverði, önnur eftir Guðm. G. Hagalín, hin eft- ir Skúla Þorsteinsson. Halldór Ármannsson skrifar frásögu- þátt sem nefnist „Ljósið og hundurinn". Þá skrifar ritstjór- inn Steindór Steindórsson um plöntur á dýraveiðum og rit- stjórarabb sem hann kallar Á förnum vegi. Gísli Helgason skrifar um ræktunarmöguleika á Héraði. Sveinbjörn Beinteins- son skrifar um Sigurð Breið- fjörð, Daði Daviðsson um Brík- arhelli og Stefán Jónsson um Þarfasta þjóninn. Auk þess er í heftinu dægurlagaþáttur, framhaldssögur o. fl. ★ Tæknibóltasafn IMSl, Iðnskólahúsinu er opið alla virka daga kl. 13—19, nema laugardaga kl. 13—15 Skýringar við krossgátu nr. 4488: Lárétt: — Guðaveigakrús. 7 eignast. 8 sveit. 10 leiðinda. 11 ílát. 14 fylgt eftir. 17 á skipi. 18 blóma. 20 fæðu. Lóðrétt: — 1 Stendur fram- arlega. 2 tónn. 3 allt I lagi (erl.). 4 fá í hendur. 5 fugl. 6 flýti. 9 tilfinning. 12 fæða. 13 peninga. 15 hvíldarstaða. 16 skip. 19 sá. Lausn á krossgátu nr. 4487: Lárétt: — 1 Minkana. 7 ós. 8 óráð. 10 ama. 11 Rósa. 14 nisti. 17 in. 18 lind. 20 linar. Lóðrétt: — 1 Móarnir. 2 is. 3 kó. 4 Ara. 5 náma. 6 aða. 9 uss. 12 óin. 13 Atli. 15 iin. 16 adr. 19 na. MSÍSMl Eg þekki aðeins röddina í honum gegn um síma, en — mér heyrist hann vera íþróttamannslegur, með brún auga, og hökuskarð. eftir Beethoven. — 22:55 Dag- skrárlok. 266. dagur ársins. Sólarupprás kl. 06:19. Sólarlag kl. 18:19. Ardegisháflæður kl. 05:39. Síðdegisháflæður kl. 18:00. Nœturvörður er í Vesturbœj- arapóteki. Slysavarðstofan er opin all- an sólarhringinn Læknavörður kl. 18—8 Simi 15030. Minjasafn Reykjavikur, Skúla- túni 2, opið kl 14—Í6, nema mánudaga — Listasafn Isiands opið daglep kl 13:30—16. - Asgrimssafn, Bergstaðastr 74. opið þriðiu-, fimmtu- og sunnu daga kl 1:30—4 Listasafn Einars Jónssonar er opið á sunnud og miðvikud ki 13:30 —15:30 — Þjóðminjasafnið er opið á sunnud., fimmtud., og laugardögum kl 13:30—16 Bæjarbóksafn Reykjavikur, sími 12308 Aðalsafnið Þing- holtsstræti 29A Lokað sunnu- daga Lesstofa opin 10—10 virka daga nema laugardaga 10—4. Otibúið Hólmgarði 34. Opið 5—7 nema laugard og sunnud — Otibúið Hofsvalla- götu 16. Opið 5:30—7:30 nema laugard. og sunnudaga. SVKABARBAKKI ISBAIRBS AUSTURSTRÆTl 5 - REYKJAVtK 0TIBU AUSTURBÆ JAROTIBO. LAUGAVEGI 114 MIÐBÆIaRUTIBU. LAUGAVEGI j akureyri. STRANDGOTU 5 EGILSSTOÐUM Trygging fyrir innlánum er ríkisábyrgð auk eigna bankans sjálfs, enda er bankinn ríkiseign. Banklnn annast öll IniHend bankaviðskiptl, tekur á mútl fé I sparisjóð 09 hlauparelknlng. LIP KIRBY Eftir: JOHN PRENTIOE og ERED DICKENSON 1) — Hér er taflan yðar Hooker. — Eg hef þegar tekið mín- ar seinustu töflur. Látið mig í friði. 2) — Eg á ekki langt eftir Kirby. Þess vegna vildi ég tala við yður. — Eg mun gera, hvað ég get. 3) — Þér verðið að gera fyrir mig dálítið, sem ég treysti engum öðrum til; þá mun ég geta hvílt í friði.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.