Vísir - 17.10.1961, Síða 1
51. árg. Þriðjudagur 17. október 1961. — 23S. tbl.
LÍÚ vinni að nýjum
síldarsamningum.
Efnt var til fundar hjá
Landssambandi íslenzkra
útvegsmanna í gærkvöldi
til að ræða um væntanlega
síldarútgerð hér syðra í
haust og vetur.
Samningar eru víðast lausir
nema á Akranesi, og niðurstaða
fundarins í gær varð sú, að
fundarmenn samþykktu að
fela stjórn Landssambandsins
Peningar
fjúka.
MAÐUR nokkur kom í morg-
un inn á ritstjórnarskrifstofu
Vísis og hafði í hendi umslag,
sgm hann kvaðst hafa tekið
upp af götunni, þar sem það
var að fjúka fyrir vindinum.
Þegar hann gætti nánar að
voru í umslaginu rúmlega 300
krónur í peningum. Biðjið þann
sem hefur týnt peningunum að
vitja þeirra á ritstjórnaskrif-
stofu Vísis sagði hann, og ef
enginn gefur sig fram látið þá
peningana renna til Hornafjarð
arsöfnunarinnar.
að vinna að nýjum samningum,
svo að unnt verði að gera út á
þann hátt, að hlutur útvegs-
ins verði betri en nú eru horf-
ur fyrir með óbreyttum samn-
ingum.
Þeir samningar, sem verið
hafa í gildi undanfarin 13—14
ár, hafa verið á þann veg, að
meirihluti aflaverðmætis —
55 af hundraði — hefir runnið
til áhafnarinnar. Þannig var
það til dæmis á síðasta sumri,
að þess voru dæmi, að skip
komu að kalla slypp heim af
síldarvertíðinni fyrir norðan,
þótt hásetahlutur væri 40—60
þúsund krónur. Slíkt telja út-
gerðarmenn að sjálfsögðu al-
gerlega óviðunandi.
Eins og allir vita hefir orðið
bylting á sviði síldveiðanna á
tiltölulega skömmum tíma. —
Veiðarfæri eru gerð úr öðrum
efnum en áður og tekin hafa
verið i notkun fullkomin tæki,
sem eru óhemjudýr, en þau
verður útgerðin vitanlega að
borga úr eigin vasa. Framlag
hennar til veiðanna er þess
vegna orðið miklu dýrara en
áður var, að útgerðarmenn
geta ekki unað því að ekki
komi meira af aflanum í þeirra
hlut nú eftir þessi kostnaðar-
sömu umskipti.
Engin mænuveiki hér
Vísir spurðist fyrir um
það á skrifstofu borgarlækn-
is í morgun hvort nokkrar
sóttvamarráðstafanir • yrðu
gerðar vegna mænuveikifar-
aldursins í nágrannalöndun-
um, og vegna hinna miklu
samgangna okkar við þessi
lönd. i
Fulltrúi borgarlæknis, er
varð fyrir svörum sagði að
sóttvarnarráðstafanir í sam-
bandi við mænuveiki væru
miklum erfiðleikum bundn-
ar, enda yrði varla gripið ti)
þeirra nema í ýtrustu nauð-
syn.
Hins vegar væri mænu-
veikibólusetning í gang allt
árið, jafnt fyrir börn sem
fullorðna, og hún væri helzta
varnaraðgerðin sem unnt
væri að gera.
Bólusett hefur verið gegn
mænuveiki undanfarin ár, en
eftirspurn eftir þeirri aðgerð
misjafnlega mikil frá ári til
árs. í fyrra var sérstök áróð-
ursherferð gerð varðandi
bólusetninguna, enda má |
segja að þá hafi óvenju
margir komið tii að ‘iáta
bólusetja sig. Þess á milli
dregur úr áhuganum. Nú
virðist hins vegar sérstök á-
stæða fyrir hendi að áhug'-
inn vakni á nýjan leik þar
sem hættan er yfirvofandi
frá nágrannalöndunum.
Aðspurður kvaðst fulltrúi
borgarlækns ekki vita um
neitt mænuveikitilfelli hér
í Reykjavík eins og sakir
stæðu.
Ragnar Þórðarson í Markaðnum er nú að taka yfir rekstur „Flórsins“ við Fríkirkjuveg. En áður
en það getur orðið lætur hann gera stórfelldar breytingar á innréttingu hússins og kosta
miklu til þessa. Hefur heyrzt að hann láti jafnvel gera þar nýjar svalir. Þessa mynd tók Ijós-
myndari Vísis í morgun þar sem verið er að innrétta baðstofu uppi á Iofti á húsinu, en við
hliðina á baðstofunni verður bar.
Geigvænlegt afla-
leysi togaranna -
torveldar m.a. lausn lijara- \
deilu undirmanna.
Hagsmunafélög undirmanna
á togurum sögðu fyrir nokkru
upp sainningum, og er deilan
nú í höndum sáttasemjara.
Það er alllangt síðan sýnt
var, að aðilar mundu ekki geta
komið sér saman og deilunni
var vísað til sáttasemjara.
Hefir hann kallað deiluaðila
á fund einu sinni en enginn
árangur náðist. í morgun var
ekki vitað, hvenær efnt yrði til
næsta fundar, en sáttasemjari
mun að sjálfsögðu halda áfram
iandsfmdur Sjálfstæð-
’sflokksins íferður settur í
Gamla Bíó fimmtudaginn
19. |),m. kl. 20,30.
Á dagskrá fyrsta fund-
arins verður ræða vara-
formanns Sjálfstæðis-
flokksins, Bjarna Bene-
að þreifa fyrir og reyna að
finna lausn deilunnar.
Það eru átta félög, sem sagt
hafa upp samningum um kaup
og kjör á togurunum, og 4
þeirra hafa þegar samþykkt
heimild til vinnustöðvunar.
Eru það meðal annars sjó-
mannafélögin hér og í Hafn-
arfirði. Annars hafa öll félögin
samflot við samningana, því að
áttá menn eru í samninganefnd
þeirra, einn fyrir hvert félag.
Deila þessi verður vitanlega
diktssonar forsætisráð-
herra.
Landsfundarfulltrúar eru
beðnir að vitja fulltrúaskír-
teina sinnar í skrifstofu
flokksins í Sjálfstæðishús-
inu á morgun, miðvikudag 1
og verður þeim Jiá afhent
dagskrá fundarins.
mun erfiðari viðfangs fyrir þær
sakir, hvqrsu geigvænlegt afla-
leysi togaraútgerðin hefir átt
við að stríða að undanförnu.
Fyrir bragðið er hagur útgerð-
arinnar vitanlega enn verri en
ella.
Má nefna það þessu til sönn-
unar, að heildarafli togara Bæj
arútgerðar Reykjavíkur var 38
þús. lestir árið 1958, féll í 34
þús. lestir árið eftir, varð að-
tm. á bls. 5.
Mesta brim
síðan 1934
Húsavík, mánudag.
MESTA BRIM sem hér
hefur komið síðan á árinu
1934, gerði hér í dag. Var svo
mikill sjógangurinn að móta-
uppsláttur fyrir brjóstvörn á
hafnargarðinum sópaðist
fljótlega burtu, trillur voru
hætt komnar í liöfninni og
bátar sem héðan vo.ru á sjó
komust ekki inn fyrr en í
kvöld. Öðru hverju gerði
alldimm él, en á milli birti
upp og var stórfengleg sjón
að sjá til hafs er líkast var
sem samfelldir brotsjóir
væru milli lands og sjón-
deildarhrings.
«