Vísir - 17.10.1961, Side 3
Þriðindagur 17. október 1961
V f S I R
Konan hér á myndinni heitir frú
Repetto} og var maður hennar höfðingi
eyjarskeggja.
Þessi mynd er tckin úr norðausturátt og sýnir vel lögun
eyjarinnar, en J»ar gnœfir hæst eldfjall, sem er jafnhátt
Öræfajökli — eða kannske réttara sé að segja, að fjallið
var jafnhátt, því að vel getur verið, að eyjan sé sokkin í
sjó, þegar þetta kemur fyrir sjónir lesenda blaðsins.
Þegar konurnar kemba ullina, eru
þær vánar að koma saman heima hjá
einhverri úr hópnum, og svo skrafa þær
saman, meðan á kembingunni stendur.
Hálfrar annarrar aldar búsetu
er lokið á eyjunni Tristan da
Cunha í Suður-Atlantshafi. Menn
settust þar að í upphafi síðustu
aldar til að forðast ofstjórn og
áþján á Napoleonstímanum, en nú
hafa náttúruhamfarir hrakið þá
þaðan um síðir. Myndir þær, sem
Vísir birtir hér, eru teknar úr bók-
inni ,,Rock of Exile“, sem út kom
fyrir fáeinum árum og er eftir
Englending, sem sendur var til
að starfa þar sem loftskeytamað-
ur. Þykir sú bók ein bezta heimild,
sem til er um daglegt líf á af-
skekktustu eyju heims.
Þegar bátur Itcmur að landi, hjálpast allir við að draga
hann á þurrt — konur jafnt og karlar.
Þess hefir verið getið í fréttum, að eyjarskeggjar eti
einkum fiskmeti og kartöflur. Myndin hér að ofan sýnir,
hvernig fjölskyldurnar skipta kartöflugörðununi með stein-
veggjum. Þessi mynd gæti næstum verið frá liðnum árum
hér á landi.
Það eru einkum konurnar, sem vinna við garðræktina,
því að'karlarnir verða að nota hvert tækifæri sem gefst til
að komast á sjóinn. Þar er engin höfn og verður að draga
báta á land að hverjum róðri loknum. Lífsbaráttan var
hörð.