Vísir - 24.10.1961, Qupperneq 2
2
yisiB
Þrdðjudagur 24. október 1961
Fimm lenda í a!i
miklum slysum.
Sjú En-Læ í ræðustól á þinginu.
Deilur koma í Ijós
milli Rússa oq Kína.
Á flokksþingi kommúnista í
Moskvu hefur orðið opinbcr og
mjög ábcrandi deila milli
Rússa og Kínverja út af af-
stöðunni til albanskra komm-
únista. Réðist Krúsév í fyrstu
ræðu sinni harkalcga á al-
banska kommúnista fyrir það,
að þeir fylgdu kenningum
Stalins. — Forsætisráðherra
Rauða-Kína, Sjú En-læ, flutti
skömmu síðar ræðu, þar sem
hann ámælti Krúsév fyrir að
Brotizt inn í
sumarbústaói.
Hafnarfjarðarlögreglan skýrði
blaðinu svo frá í gær að að-
faranótt sunnudagsins hefðu
skemmdarvargar verið á ferð-
inni í sumarbústaðalöndum
Hafnfirðinga og farið þar um
eyðileggjandi og stelandi. Var
brotizt í marga bústaði í Sléttu-
hlíð, á leiðinni í Kaldársel og
í bústaði við Urriðavatn. Riffli
var stolið í einum bústaðanna,
vindsæng í öðrum og fleira smá-
vegis. Það eru vinsamleg til-
mæli lögreglunnar til þeirra,
er kynnu að hafa orðið varir
við ferðir þessara manna, að
gera aðvart.
Aðfaranótt laugardagsins var
innbrot framið í sundhöll Hafn-
firðinga. Þjófurinn sprengdi
upp skúffu, og fann þar pen-
ingakassa, sem í voru ca 3000
krónur í peningum, en auk þoss
bankabók með 8000 kr. inn-
stæðu, svo og tékkahefti. Var
kassanum stolið með öllu sam-
an.
láta koma opinberlega í Ijós á-
greining innan kommúnista-
ríkjanna. Virtist hann vera
Krúsév hinn rciðasti yfir þessu
og sagði bað hað væri hin vcrsti
óvinafagnaður að hefja slíkar
deilur á opinbcrum vettvangi.
skoraði Sjú á Krúsév að lcysa
slíkar deilur á iokuðum fund-
um.
Sjú gekk út.
Nokkru síðar flutti Krúsév
aðra ræðu, sem fjallaði um
hina nýju stefnuskrá kommún-
ista. Gerðist það oftsinnis undir
ræðu hans, að allur þingheim-
ur klappaði honum lof í lófa.
Vakti þá ekki litla athygli og
furðu, að Sjú klappaði ekki
fyrir honum, heldur sat allan
tímann með hendur í vösum.
Er Krjúsév hafði loklð ræðu
sinni, gekk hann til hinna er-
lendu gesta og tók í hendur
þeirra. Þá gerðist það, að Sjú
En-læ stóð upp og strunsaði
út úr salnum eins og hann vildi
ekki heilsa Krúsév.
Beinist gegn Kína.
En þegar fundur hófst næst
gengu þeir þó saman inn í sal-
inn Sjú og Krúsév og höfðu
þeir verið á fundi saman. Virt-
ist þá gott samkomulag með
þeim. Þó hafa væringarnar
haldið áfram. Deilurnar stand.a
um kommúnistaflokk Aibaníu,
en talið er að árás Krúsévs á
hann beinist fyrst og fremst að
kinverska flokknurrt, sem helci-
ur enn við Stalinismann líkt
og Albanir.
Járnbrautarslys varð nálægt
Kalkutta sl. föstudag og
meiddust á annað hundrað
manns, en 20 biðu bana.
Mikið var um slys hér í bæn-
um um helgina og hafði lög-
reglan bókað slys á þrcm
drengjum og tveim fullorðnum,
sem allir voru fluttir til Iæknis-
aðgcrða í slysavarðstofunni.
Meðal hinna slösuðu voru
tveir þriggja ára drengir, sem
báðir voru fyrir bílum. Annar
þeirra varð fyrir bíl á laugar-
daginn kl. 5 síðdegis á Snorra-
braut. Hann slasaðist talsvert,
en læknar héldu við fyrstu at-
hugun að meiðslin væru ekki
alvarlegs eðlis. Hinn drengur-
inn var fyrir bíl í Steinagerði í
gærdag. Meiðsli hans voru lítil
talin.
Þá var bifhjóli ekið á hjól-
ríðandi dreng, 8 ára gemlan í
fyrrakvöld um áttaleytið.
Drengurinn meiddist á höfði og
hjólið stórskemmdist. Maður-
inn á bifhjólinu, sem ók á
drenginn, fór sína leið án þess
að stanza eða skýra frá at-
burðum.
í fyrrinótt um eitt leytið datt
maður við Menntaskólann.
Hann rotaðist við fallið og
skrámaðist auk þess á höfði.
sömu nótt lenti maður utan í
bifreið á Grensásvegi og meidd-
ist á hendi.
f gærmorgun, um sexleytið,
datt maður í Reykjavíkurhöfn.
Menn komu honum strax til
bjargar og honum mun ekki
hafa orðið meint af volkinu.
Penmgum
stolið.
Á föstudaginn var stolið hér
í íbúð í bænum 6000 krónum
í peningum. Hafði eigandi pen-
inganna skilið veski sitt eftir
í yfirhöfn í forstofu.
Grunur féll á mann, sem kom-
ið hafði í húsið. Hann náðist í
leigubíl á laugardaginn með
þrjár flöskur af brennivíni og
sjálfur fullur eins og í hann
komst. Á sunnudaginn viður-
kenndi hann að hafa stolið pen-
inn peningalítill og drykkjar-
föng á þrotum. Hann hafði ekki
eytt öllum peningunum, og gat
greitt að nokkru það, sem á
vantaði, en 100 kr. varð hann
að fá greiðslufrest á.
Enskur bóka-
klúbbur
Mr. Donald Brander, M. A.,
sendikennari við Háskóla fs-
lands og Snæbjörn Jónsson &
Co. h.f., The English Bookshop
hafa í hyggju að stofna í Reykja
vík bókaklúbb til þess að kynna
enskar bókmenntir. Meðlimir
klúbbsins kaupa eina ákveðna
bók í byrjun hvers mánaðar.
lesa hana og hittast svo í lok
mánaðarins og ræða innihald
hennar. í vetur yrðu lesnar 3
vasabrotsbækur og 3 nýjar
hún
Morðmál, sem vekur mikla athygli,
fyrir rétti í Sviss.
í Geneve eru hafin réttar-
liöld í morðmáli, sem vakið hef-
ir mikla athygli, því að annar
hinna ákærðu e: sakaður um
föðurmorð
Þannig er mál með vexti, að
Richard og Josette Bauer eru
ákærð fyrir að hafa myrt föður
Josette í nóvember 1957. Ástæð-
an fyrir morðinu var sú, að fað-
ir Josette var maður auðugur,
en skötuhjúin töldu, að þau
hefðu ekki nægt fé handa í
milli og hafði Richard Bauer pó
góða atvinnu. Lögðu þau því á
ráðin um að myrða föður Josette
og vann maður hennar ódæðið,
barði tengdaföður sinn fyrst í
höfuðið með barefli en stakk
hann síðan með hníf sjö sinnum,
unz hann var dauður.
í fyrstu beindist grunur ekki
að dóttur hins myrta eða manni
hennar, svo að þau fengu sitt
fram — þeim var greiddur arf-
ur eftir hinn myrta, 3.5 millj.
króna. En illur fengur illa for-
gengur og að hálfu öðru ári
liðnu höfðu þau sólundað
hverjum eyri í glæstar flíkur
og skemmtanir.
Richard Bauer hefir játað á
sig morðið, en kona hans neitar
að hafa átt nokkurn þátt í því
og bendir á, að hún hafi verið
víðs fjarri, er það var framið.
Richard hefir hinsvegar sagt,
að hún sé ekki síður sek en
hann, þótt hún hafi ekki haldið
á neinu morðtóli.
bækur og umræðu-kaffifundir
haldnir sex sinnum, en bækurn-
ar munu meðlimir klúbbsins fá
með 10% afslætj:i hjá Bóka-
verzlun Snæbjai,nar. Nóvember-
b.ók klúbbsins verður „Eating
People is Wrong“ eftir Malcolm
Bradbury. Gert er ráð fyrir að
20 manns verði í flokki og mun
Mr. Brander verða formaður
klúbbsins og stjórnar umræðu-
kaffifundunum og fara umræð-
ur fram á ensku.
Gagarin
©B
veikur.
Brezk blöð birta fréttir
um það frá Moskvu, að ekk-
ert verði af Indlandsför
geimfarans Yuri Gagarins,
vegna veikinda hans.
Áður hafði verið frestað fyr-
irhuga&ri Ítalíuför hans og þeg-
ar flokksingið var sett í vik-
unni sem leið var þess sérstak-
lega getið í fréttum frá
Moskvu, að hann hefði ekki get-
að verið viðstaddur vegna veik-
inda sinna.
Ekkert hefir verið látið uppi
um, hvað gangi að Yuri Gaga-
rin.