Vísir - 24.10.1961, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 24. október 1961
V ! S I R
9
Stórsprengjan.
Allir góðir fslendingar
styðja eindregið, að fsland
hefir gerzt meðflytjandi að
tillögu á þingi Sameinuðu
þjóðanna um að skora á
Rússa að hætta við að
sprengja risaatómsprengju,
sem jafngildir að sprengi-
mætti 50 milljón tonnum af
TNT sprengiefni. En búizt
er við að við þessa einu
sprengingu muni myndast
næstum eins mikið -geisla-
virkt ryk og af öllum kjarn-
orkusprengingum í heimin-
um fram til þessa.
Það er ótrúlega að nokkr-
um manni geti verið hlátur
í hug, þegar fréttir berast af
því næstum á hverjum degi,
að nýjar og nýjar vetnis-
sprengjutilraunir séu gerð-
ar í íshafinu austur af fs-
landi. f
Að þesu sinni hefir enginn
leyft sér að halda því opin-
berlega fram, að sprenging-
arnar séu aðdáunarvert skref
í áttina að sigri sósíalismans.
Þótt tveir fulltrúar Al-
þýðubandalagsins sitji á
flokksþingi austur í Moskvu
og taki undir lófaklapp og
fagnaðarlæti, er Krúsév boð-
ar fyrirhugaða risasprengju,
þá er hinum óbreyttu flokks-
mönnum enginn hlátur í hug.
Atómsprengingar Rússa hafa
komið þeim í mikinn vanda
og eru orðnar erfiðasta sam-
vizkuspursmál þeirfa, jafn-
vel erfiðara að kyngja því
en Ungverjalandsmálinu á
sínum tíma. Enn ein rottáríT
sem stendur í hálsinuA, svo
notað sér orðalag Krúsévs.
Og við þetta opnast augu
manna. Skilningurinn vax-
andi á varnarmálunum. Ný-
lega ákváðu stúdentar að
gera stúdentadaginn 1. des-
ember að baráttudegi fyrir
vestrænni samvinnu. Var
auðvitað kominn tími til að
hætta að hafa varnarmálin
sem feimnismál, sem ekki
mætti ræða vegna misskildra
hlutleysisreglna. Það er sjálf
sagt að það fari að koma
betur fram að ísland er ekki
hlutlaust, heldur virkur að-
ili í bandalagi vestrænna
þjóða.
Menn hafa spurt, hver sé
eiginlega tilgangur Rússa
með atómsprengjutilraunun-
um. Ýmsar getgátur hafa
verið uppi um það, svo sem
að þeir séu með því að reyna
ný vopn. Sjálfsagt er það
ein af ástæðunum. En full-
nægjandi skýring eða til-
gangur verður fundinn í
því, hve Rússar hafa fram-
kvæmt margar sprenging-
ar, þar sem þær eru nú á
IV2 mánuði farnar að nálg-
ast 30.
Er engu líkara en að Rúss-
ar séu beinlínis að leika sér
að þessu.
Hver kjarnorkustrókurinn
á fætur öðrum rís nú upp í
háloftin yfir heimsskauts-
eynni Novaja Zemlja og and-
rúmsloftið heldur áfram að
eitrast af þessum aðgerðum.
Þannig er hinn óskemmtilegi
strompleikur Rússa í heim-
skautsauðnunum.
Þó er kjarnorkustromp-
leikur þeirra aðeins einn lið-
urinn í miklu víðtækari
stríðshótunum. í allt sumar
hélt Krúsév uppi sífelldum
hótunum í ræðum sínum um
styrjöld og kjarnorkuárásir.
Það sama fólst í flotaæfing-
um Rússa við austurströnd
fslands og flugsýningunni
miklu í Moskvu. Allar þær
hótanir hverfa þó í skuggann
af þeirri ógnun sem fylgir
undum frekar miðaður við
að hlýða á, en að þeir geti
tekið virkan þátt i ræðuhöid-
um og áðrum þingstörfum.
Annars er áberandi, hve
Krúsév er orðinn allsráðandi
Grein þessi er rituð,
áður en fregnirnar bár-
ust um stórsprengingu
Rússa í gærmorgta, en
verður engu að s'ður
birt hér óbreytt, bar
hún á erindi til roargra.
Því meir er Krúsév lyft upp
til skýjanna og vekur það
ekki litla furðu, þegar svo
skammur tími er liðinn frá
því persónudýrkun var for-
dæmd. Hin nýja persónu-
dýrkun tekur á sig hinar
hlægilegustu myndir. Ekki
þorir t. d. einn einasti þing-
fuiltrúi að lýsa hug sínum
yfir stórsprengjunni. í stað
þess að ræða efnislega um
viðfangsefnin stendur röð
ræðumanna upp á pallinn á
flokksþinginu til að dásama
hinn mikla foringja Krúsév
með barnalegu þakkarkvaki.
Allt á Krúsév að hafa leyst.
Strompleikur Rússa
atómsprengingunum. Þar
hóta Rússar ekki aðeins
kjarnorkustríði heldur með
mögúleikanum á hægfara
tortímingu mannkynsins án
stríðs, en með síauknu geisla
virku ryki í andrúmsloftinu.
Eru sumir jafnvel farnir að
óttast, að Rússar ætli í valda '
æði sínu, að setja umheim- ***
inum úrslitakostina — dauð-
ur eða rauður, — þ. e. að
annað hvort skuli þjóðir
heims falla fram og tilbiðja
hinn rússneska herra, eða að
þeir grípi til óyndisúrræða
og kveiki í hvellhetfunni sem
tortímir öllum.
6000 fulltrúar —
og einn sem ræður.
22. flokksþing rússneska
kommúnistaflokksins er hald
ið um þessar mundir í nýju *
söngleika og samkomuhúsi i
Kreml, sem minnir að sumu
leyti á Háskólabíó, nema
hvað það tekur 6 sinnum
fleiri í sæti.
Þarna hafa nú um 6000
fulltrúar flokksdeildanna úr
hverjum hreppi Sovétríkj-
anna safnazt saman og var
ætlunin að Ijúka þingstörf-
um á þremur dögum. Á þing-
inu á m. a. að samþykkja
nýja stefnuskrá flokksins, þá
þriðju síðan kommúnistar
komust til valda 1917. Upp-
kast að henni var lagt fram
í byrjun ágúst. Er það geysi-
mikið skjal, með greinar-
gerðum nærri 200 vélritaðar
blaðsíður. Má geta nærri að
skalinu verður ekki breytt
á þessu þingi. né vfirhöfuð
nokkrar mikilvægar ákvarð
anir teknar nema að frum
kvæði eða samþykki Krú
sévs. Er að því leytinu við
eigandi. að halda þingið
söngleikahúsi, að öll þing
störfin eru eitt sjónarspil
sem er sett á svið og fjöldi
fulltrúanna sem skiptir þús-
Nikita Krúsév.
1 Rússlandi. Þær hugmyndir,
að hann þyrfti að óttast
gamla Stalinista og herfor-
ingja hafa reynzt rangar, eins
og vænta mátti. Alræði sitt
hefur hann byggt upp bæði
á nokkrum vinsældum, sem
hann hefur hlotið fyrir að
slaka - svolítið til á hinni
gömlu ógnarstjórn og með
því að koma upp kringum
sig sterku kerfi fylg'smanna
í flokknum. Hann hefur
upphækkað sjálfan sig með
bvi að fordæma Stalin óg var
þó sjálfur trúasti þjónn hans.
Nú er Stalin ekki lengur til,
nafn hans þurrkað út úr sögu
Rússlands. Hann er hvergi
nefndur í hinni nýju st^fnu-
skrá.
Erfið vandamál
óleyst.
í hinni nýju stefnuskrá
lofar Krúsév mörgu fögru,
svo sem að læknishjálp, raf-
magn og einföldustu matvæli
verði ókeypis. Allt er þetta
óraunverulegt og laust við
jörðina, enda gerir það ekk-
ert til. Skjalið er ekki í eðli
sínu nein' raunsæ fram-
kvæmdaáætlun heldur áróð-
ursplagg, þáttur í leiksýn-
ingunni. Þar er meira að
segja fals í falsinu. því að
þegar Krúsév talar um að
Rússar verði t. d. árið 1980
komnir fram úr Bandaríkja-
mönnum, á hann oftast við,
að þá verði þeir komnir fram
úr því stigi sem Bandaríkja-
menn eru á í dag.
Tvö vandamál hafa reynzt
Rússum svo erfið, að Krúsév
hefur nokkrum sinnum feng-
ið reiðiköst út af þeim opin-
berlega, líkt og reiðiköst hans
í New York og París. Vanda-
mál þessi eru í fyrsta lagi
siðspillingin, drykkuskapur-
inn, sviksemin og þjófnaðir
meðal hinna opinberu em-
bættismanna og meðal stjórn
enda fyrirtækja. Þessi spill-
ing virðist nú jafnvel vera
útbreiddari en á keisara-
tímunum. Heimafyrir í Rúss
landi er þetta nú talinn svart-
asti blettur sósíalismanum.
Margar ræður Krúsévs
heima fyrir fjalla um þetta.
Hitt vandamálið er land-
búnaðurinn. Það hefur kost-
að Krúsév margar áhyggju-
stundir og andvökunætur. í
fyrra stóðst hann ekki lengur
mátið en fór eins og eldi-
brandur suður um alla Ukra-
inu, kornforðabúr Sovétríkj-
anna. Þar skammaðist hann
og reifst og rak menn um-
vörpum úr stöðum fyrir svik,
vesaldóm og þjófnaði, en allt
kemur fyrir ekki. Nokkrum
vikum síðan sleppti hann sér
á fundi með bændum í Kas-
akstan og hrópaði: „Getið
þið ekki skilið það. að ef það
er matvælaskortur, þá eigið
þið að slátra hestunum, —
hrossaket er bezta ket.“
Rússar tilkynna að upp-
skeran verði sæmileg í Ukra-
inu í ár og þó eru öli kurl
ekki komin þar til grafar.
Stundum hafa erfiðleikar
rússneska landbúnaðarins
verið skýrðir svo, að þeir
stafi af því að við aukinn
iðnað í borgunum hafi fækk-
að svo fólki í landbúnaðin-
um, að hann geti ekki lengur
haft við. En þessi skýring
fær ekki staðizt.
Því að enn er svo ástatt í
Sovétríkjunum, að 40%
þjóðarinnar lifa af landbún-
aði. Menn rekur og minni til
þess að Þorsteinn í Vatns-
leysu lýsti því eftir Rúss-
landsferð, að nóg vinnuafl
virtist í landbúnaðinum, þar
sem fjósameistararnir austur
þar héldu m. a. fjósaskóflu
.undir kýrnar til þess, að
flórinn óhreinkaðist ekki.
Þessi 40% þjóðarinnar hafa
ekki við að framleiða mat-
væli í hin 60%. Með öðrum
orðum, hver bóndi í Rúss-
landi framleiðir aðeins mat-
væli handa sjálfum sér og
1% manni til viðbótar.
í Bandaríkjunum er þessu
öðru vísi farið. Þar starfar
aðeins 10% þjóðarinnar við
landbúnað. Það er að segja,
hver bóndi þar framleiðir
matvæli handa sjálfum sér
og 9 manns til viðbótar. Og
meira en það, framleiðsla
bandaríska landbúnaðarins
er svo mikil, að þar eru
Frh á 10. síðu.