Vísir - 24.10.1961, Blaðsíða 6

Vísir - 24.10.1961, Blaðsíða 6
6 VISIR Þriðjudagur 24. október 1961 fKmSTiLEfj AriADEIUIA VERÐI I SKALHOLTI Maðurinn, sem tók við völdum í Sýrlandi, þegar slitið var sambandinu við Egyptaland, er Kuzbari, sem hér sést vera að tala við blaðamenn á einum fyrsta fund- inum, sem hann átti með þeim. Fimm ára minning ungversku bylt- ingarinnar. Á Hinum almenna kirkju- fundi, sem hófst á sunnudag- inn, flutti Páll V. G. Kolka læknir, erindi um kirkjulega menningu og framtíð Skál- holts. Þar hreyfði hann hug- myndinni að stofnun kristi- legrar akademíu í Skálholti, er hann ræddi um framtíð þessa fomhelga staðar. Hér á eftir fer útdráttur úr erindi læknisins. Kirkjan er móðir vestrænn- ar menningar, því að á hinum myrku miðöldum, eftir hrun Rómaveldis varð hér ljós í myrkrinu og við það ljós lærðu barbararnir bókleg fræði og betri siðu. Vér viss- um lítið um fommenningu Evrópu, ef kirkjan hefði ekki varðveitt leifar hennar, m. a. unum í Skálholti og á Hólum og í klaustrum landsins. Á síðustu tveimur öldum hafa þrjár voldugar stefnur risið gegn kirkjunni, skynsemistrú arstefnan á 18. öld, efnis- hyggjan og kommúnisminn á 19. öld. Þetta var kirkjunni sjálfri að- kenna, hún varð að spilltu ríkisvaldi á 18. öld, stirðnuð í bókstafstrú á 19. öld og vanrækti þá-það alda- gamla hlutverk sitt að vera líkn lítilmagnanum og mál- svari undirokaðra stétta. Fræðslukerfi nútímans er reist á þeirri hjátrú 18. ald- arinnar, að maðurinn sé í eðli sínu svo góður, að þurfi að- eins þurra fræðslu til þess að verða sambúðarhæf félags- vera. 20. öldin hefur afsannað þetta áþreifanlega. Sú hug- sjón að gera þjóðfélagið að allsherjarmötuneyti, þar sem steiktar gæsir fljúga í munn manna um allar aldir, getur ef til vill sameinað fátæka og fmmstæða þjóð í bili, en þeg- ar velmeguninni er náð, grotnar slík menning án trú- arlegs innihalds innanfrá, eins og farið er að sýna sig á Vesturlöndum og átakan- Iega sýndi sig í Róm hinni fomu, sem lagði undir sig all- an hinn þekkta heim, en þjóð- in glataði sál sinni. Aldrei hefur þessu verið lýst snilld- arlegar en í kvæði Einars Benediktssonar: Kvöld í Róm. Þrátt fyrir alla storma og eigin mistök hefur kirkjan staðizt og aukizt að ytra áliti og innra mætti á þessari öld, því að mennimir hafa þörf fyrir hana og þann boðskap, sem hún flytur. Trúarþörfin er ein af upprunalegustu þátt um mannlegs eðlis, eins og mannfræðin — authropotogi- an — sýnir, og nútíma sálar- fræði veit, að það táknræna orkar miklu sterkar á breytni manna en þurr fræðsla, en trúarsetningar eru ekki ljós- myndir eða línurit af sann- leikanum, heldur táknrænar myndir þess sannleika, sem era æðri mannlegum skiln- ingi. Islendingar fálma milli tveggja siða, milli trúar og trúleysis í uppeldismálum, milli austurs og vesturs í stjómmálum, milli þjóðlegr- ar meriningar og erlendra engin útgjaldaukning nema því aðeins, að gera eigi allt fræðslukerfið að fabrikku, sem skilar stajidard-pródúkti, svo að allir verði sem mest steyptir í sama móti eins og einseyringar. verðlaunar ökumenn Sambandsþing Bindindisfé- lags ökumanna var haldið í 3. sinn í Reykjavík 14.—15. þ.m. með fulltrúum víða af landinu. Samþykkt var að ráða sér- stakan svæðisstjóra fyrir Norðurland til aðstoðar fram kvæmdastjóra félagsins. Einn ig var ákveðið að athuga og undirbúa almenna keppni um féíagaöflun og veita rífleg verðlaun, efla blað félagsins, stækka það og auka upplag, kanna fjáröflunarleiðir, sjá um þýðingu og útgáfu um- ferðarbókar, taka upp góð- akstra út um landið, og und- irbúa 10 afmælishald félags- ins 1963. Árstillag var ákveð- ið 100 krónur frá næstu ára- mótum. Formaður var endur- kjörinn Sigurgeir Albertsson svo og þeir, sem áttu að ganga úr stjórn skv. lögum. 1 sambandi við þingið var 8 mönnum veitt verðlaun. Þeir eru Geir Þorsteinsson, forstj. Rv. 1. vl., Úlfar Svein- Kirkjulegur skóli í Skál- holti á að leggja áherzlu á menntun hjartans með trúar- legum áhrifum og á mennt- un heilans með því að veita yfirsýn yfir sögu kirkjunnar, þróun menningarinnar og ný | kristileg viðhorf í vísindum, bókmenntum og list. Jafnvel I með þeim húsakosti, sem þar i er nú, má stofna vísi að kristilegri akademíu, halda þar námskeið í kennimann- legri guðfræði, í kirkjulegri hljómlist, ýmsu safnaðar- starfi, svo sem sunnudaga- skólahaldi, og í sálgæzlu og geðvernd sameiginlega fyrir kennara, presta og lækna. Þar eiga síðar að koma aðrar kirkjulegar stofnanir og leið- ir þá biskupsstóll af sjálfu sér. Kirkjan á að vera sjálf- stæð stofnun, vakandi sam- vizka þjóðarinnar, en ekki vera mýld af pólitískum vald- höfum hverju sinni, því á rík- ið að afhenda kirkjunni Skál- holt'til fullrar eignar og um- ráða og virða þannig minn- ingu þeirra ágætu Haukdæla- ættar, sem gaf staðinn kirkju Krists, landi og lýð til bless- unar, en Guði til dýrðar. — Erinda Kolka mun verða flutt í heilu lagi í Útvarpið í kvöld. bjarnarson magnaravörður Rv. 2. vl., Kristiinn Snæland, Selfossi, (kona hans tók við verðlaunum hans), og Vilhj. St. Vilhjálmsson verzl.m., Rv. báðir með 3. verðl., Kristinn Gíslason kennari, Rv. og Ing- þór Haraldsson verzl.m., Rv. báðir með 4 verðl., Jón Ingi- marsson lögfr., Rv. 5. vl. og Ólafur Guðmundsson ftr. Rv. 6. verðlaun. Teikningar í Bankastræti. Undanfama daga hefur Helgi M. S. Bergmann hald- ið sýningu á teikningum eftir sig í Bankastræti 7, uppi. Eru þetta teikningar af þekktum borguram, bfugðið upp dálítið skringiiegri mynd af sumum þeirra — ekki ó- svipað þeim myndum, sem Ungverjinn Strobl gerði af I mörgum þekktum mönnum ' hér um árið. Aðsókn hefur verið góð hjá Helga og á sunnudag seldi hann 30 af teikningunum. Sýningin verð- ur senn á enda, en hún er op- in kl. 2—4 síðdegis. I gær voru 5 ár liðin frá upphafi byltingarinnar í Ung- verjalandi. Hingað er kominn í tilefni þessa minningardags á vegum Frjálsrar menning- ar rithöfundurinn og blaða- maðurinn Tibor Méray. Sátu fréttamenn fund með honum í gær ásamt stjóm Frjálsrar menningar. Kynnti Jóhannes Nordal hann og boðaði, að hann flytti erindi í kvöld á vegum Frjálsrar menningar um Ungverjaland og kommúnista löndin 5 árum eftir bylting- una. Á undan erindinu flytur Páll Kolka læknir ávarp. Er- indið verður í Tjarnarbíói og hefst kl. 8.30. Öllum er frjáls aðgangur. Tibor Méray hefur verið bú settur í París lengst af síðan er hann flýði land, en hann komst til Júgóslavíu 1956 og svo til Frakklands 1957. Hann tók mjög virkan þátt í uppreisninni og var þar með- limur í byltingarráði ung- verskra menntamanna. Eftir að hann komst til Parísar hafa komið út eftir hann fimm bækur og f jölda greina hefur hann ritað í blöð og tímarit. Hann er fæddur 1924. Lauk háskólaprófi í ungversk um og latneskum bókmennt- um. Er fyrrverandi kommún- isti, vann fyrir miðstjórn kommúnistaflokksins 1946— 1955, var fréttaritari í Kóreu 1951—1953 og hefur ferðast um Kína og mörg Evrópu- lönd austan tjalds. Það var í ársbyrjun 1955 sem hann var rekinn frá blaði kommúnista- flokksins vegna hægrivillu. — Tibor Méray nýtur álits og virðingar sem rithöfundur og hefur m. a. hlotið hin frægu Kossuth bókmenntaverðlaun. Hánn kvaðst trúa því, á þeim tímum örra breytinga, sem nú væri í heiminum, að sá dagur myndi öragglega upp renna, er Ungverjaland og önnur lönd austan tjalds endurheimtu sjálfstæði sitt. Bandaríkin lána 14 herskip. Kennedy forseti hefur fall- ist á að lána nokkrum banda- lagsríkjum Bandaríkjanna 14 herskip. öll eru þessi herskip gerð sérstaklega í þeim tilgangi, að granda kafbátum. — Sex þeirra fara til Danmerkur og Grikklands, tvö til Pakistan, og 6 til Formósu og Suður- Kóreu. Öll skipin eru tekin úr vara-flota Bandaríkjanna. Áhafnir þeirra verða þjálfað- ar í Bandaríkjunum. gert latínuna að allsherjar- tízkuáhrifa í lífsskoðun, bók- máli, sem gerði mönnum frá menntum og list. Vér þurfum útkjálkum álfunnar fært að gróðrarstöð, þar sem ræktuð sitja við beztu menntabrunna er kristileg og þjóðleg menn- samtíðar sinnar. Fombók- °g hún á að vera í Skál- menntir Islendinga hefðu ekki holti, hinu foma helgisetri og orðið til, ef þjóðin hefði lært menntastöð. Þjóðinni fjölgar að lesa og skrifa á bók i skól- sve ört, að reisa þarf f jöldá skóla á næstu árum, að stofn- un slíks skóla í Skálholti er B. F. Ö

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.