Tölvumál - 01.01.1979, Blaðsíða 2
2
töl’v'umAl
NÖVEMBERFUNDURINN
Síðasta verkefni Skýrslutæknifélagsins á árinu 1978 var
félagsfundurinn um "Frumvarp til laga um kerfisbundna
skráningu á upplýsingum, er varða einkamálefni", sem
haldinn var 21.^nóvember í Norræna Húsinu. Fundinum
stjórnaði dr. Jón Þór Þórhallsson, varaformaður Skýrslu-
tæknifélagsins.
Á fundinum flutti dr. Ármann Snævarr, hæstaréttardómari,
yfirlitserindi um lagafrumvarpið. Ármann Snævarr er
formaður nefndar þeirrar er dómsmálaráðherra skipaði 25.
nóvember 1976 "til að vinna að undirbúningi löggjafar um
meðferð efnis í tölvum, er varða einkahagi manna".
Auk frummælanda töluðu á fundinum þeir Bjarni P. Jónasson,
fyrrv. forstjóri, og Elías Davíðsson, kerfisfræðingur.
Þeir gagnrýndu ýmis atriði í frumvarpinu og beindu spurn-
ingum til frummælanda.
Ármann Snævarr sv^raði síðan framkomnum spurningum og út-
skýrði nánar ýmsar greinar frumvarpsins.
Góður rómur var gerður að máli ræðumanna á fundinum.
Fundinn sóttu um 30 manns, sem er í'færra lagi. í fundar-
lok þakkaði fundarstjóri ræðumönnum fróðleg erindi og
fundargestum áheyrnina, og bauð til hefðbundinnar kaffi-'
drykkju x nafni félagsins.
FRÁ GJALDKERANUM
Gjaldkeri Skýrslutæknifélagsins
biður þá fáu féla^smenn sem ekki
hafa enn greitt félagsgjaldið
fyrir árið 1978, að gera nú skil
á því hið fyrsta.
DRÖG AÐ UMSÖGN SKÝRSLUTÆKNIFÉLAGS ÍSLANDS UM FRUM-
VARP TIL PERSONUGAGNALÖGGJAFAR .
Dómsmálaráðherra hefur beðið Skýrslutæknifélagið um um-
sögn um frumvarp það til laga um kerfisbundna skráningu
á upplýsingum, er varða einkamálefni, og lagt var fyrir
Alþingi á lögg^afarþingi 1977-78. Löggjöf þessi verður
hér nefnd persónugagnalöggjöf.