Tölvumál - 01.08.1982, Qupperneq 3

Tölvumál - 01.08.1982, Qupperneq 3
TÖLVUMÁL 3 SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ISLANDS GERIST AÐILI AÐ NORDISK DATAUNION I framhaldi af "Datadeginum '82", sem Skýrslutæknifélagið og Nordisk Dataunion (NDU) héldu á Hótel Loftleiðum síðast- lióió vor og fundi í stjórnarnefnd NDU, sem haldinn var í tengslum við "Datadaginn", var Skýrslutæknifélaginu boðió að gerast formlegur aðili að samtökunum. í framhaldi af þessu sótti undirritaður, fyrir hönd Skýrslutæknifélagsins, NordDATA ráðstefnuna, sem haldin var í Sviþjóð að þessu sinni og stjórnarnefndarfund NDU, sem haldinn var í tengslum við ráðstefnuna. Tilgangur fararinnar var tviþættur: í fyrsta lagi var til- gangurinn sá, að sækja stjórnarnefndarfundinn, en þar var umsókn Skýrslutæknifélagsins um aðild að NDU rædd og sam- þykkt. í öðru lagi var NordDATA ráðstefnan sótt. Skýrslutæknifélögin á Norðurlöndunum Á Norðurlöndunum eru nú starfandi sex félög á sviði tölvu- tækni og gagnavinnslu, auk hins islenska. í Noregi er eitt félag (Den Norske Dataforening), sem telur um 3.800 félaga. í Sviþjóð starfa tvö félög (Svenska Dataföreningen og Svenska Samfundet för Informationsbehandling), sem samtals telja um 5.200 félaga. í Finnlandi stariar eitt félag (Finska Dataförbundet), með um 12.000 félaga og loks er i Danmörku eitt félag (Dansk Databehandlingsforening) og telur það um 1.500 félaga. Nordisk Dataunion eru siðan samtök framangreindra félaga og er Skýrslutæknifélag Islands nýkomið i þann hóp, eins og áóur segir. Einnig er fram komið, að NDU stendur fyrir hinni árlegu NordDATA ráóstefnu, sem haldin er til skiptis á Norðurlöndunum. Þá gefur NDU út tvö þekktustu tölvu- og gagnavinnsluritin á Norðurlöndum, þ.e. DATA og DATA-NYTT, og samtökin hafa forgöngu i margvislegum öðrum sameiginlegum málefnum félaganna. Meðal þess sem nu er verið að undirbúa er svokölluð DATA-vika, sem gert er ráó fyrir aó haldin verði haustið 1983. Stjórnarnefnd NDU kemur saman fjórxim sinnum á ári, til skiptis i aðildarlöndumum. Hina árlegu NordDATA ráóstefnu hafa jafnaðarlega sótt um 2000 manns, sem m.a. geta valió úr um 150 fyrirlestrum til aó hlióa á. Skýrslutæknifélag íslands gengur í NDU Á stjórnarnefndarfundi NDU, sem undirritaður sótti og haldinn var i Gautaborg i júni sl. var Skýrslutæknifélag íslands formlega samþykkt sem aðili að Nordisk Dataunion. Fyrst um sinn veróur um aukaaðild að ræða og án annars beins til- kostnaóar en þess, aó sækja stjórnarnefndarfundina, sem haldnir eru fjórum sinnum á ári. 1 fimmta hvert skipti verða þeir fundir haldnir hérlendis. Avinningur okkar af þvi að ganga i NDU Augljósasti ávinningurinn fyrir okkur nú i upphafi eru þau einstöku kjör, sem NDU býður okkur á áskriftum ritanna DATA

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.