Tölvumál - 01.08.1982, Side 7

Tölvumál - 01.08.1982, Side 7
TÖLVUMÁL 7 DAGSETNINGASTAÐALLINN ÍST 8 Til þessa hefur blásið óbyrlega fyrir dagsetningastaólinum (ÍST 8 - Ritun dagsetninga með tölustöfum), sem gefinn var út 1. mai 1974. Um staðalinn hefur staðið styr, og sér ekki fyrir endann á því. Ýmsir, sem telja sig hafa tekió upp ritun dagsetninga sam- kvæmt ÍST 8 (þ.e. í röðinni ár, mánuður, dagur) hafa ekki gert þaó rétt. Af þvi hefur m.a. leitt, að dagsetningar, sem þessir menn rita, eru oft misskildar, stundum með slæmum afleióingum. Sióan er skuldinni skellt á staóalinn. Tökum dæmi: Samkvæmt staólinum skal rita dagsetningu, t.d. 19. júni 1922, þannig með tölustöfum: 1922-06-19 eóa 1922 06 19 Þetta á ekki aó þurfa aó valda misskilningi. Hitt er svo önnur saga, hvort menn yfir höfuð fella sig við aó rita dagsetningar meó þessum hætti. Ef þessi sama dagsetning er á hinn bóginn rituð 22.06.19 eins og oft sést, fer gamanið aó kárna og misskilningi er boðið heim. Hér eru geróar tvær skekkjur: I fyrsta lagi ber samkvæmt staðlinum að rita ártalió með fjórum stöfum (nema þar sem það getur ekki valdið misskilningi), og x öðru lagi skal nota bandstrik eða eyður (stafabil) til að aógreina þætti dagsetningarinnar (ekki punkta). Átta ár eru nú liðin síðan staðallinn ÍST 8 var gefinn út. Ef ekki á aó festast við hann það óorð til frambúðar, að hann hafi einungis orðió til að valda ruglingi og leióindum i þjóðfélaginu, þarf nú aó dusta af honum rykið og ákvarða hvort hann er á vetur setjandi óbreyttur eða ekki. Staóalinn, breyttan eóa óbreyttan, þarf svo að kynna ræki- lega fyrir almenningi. Óttar Kjartansson STAÐLAÐIR SAMNINGAR OG RITVINNSLUTÆKNI Eins og lesendum Tölvumála er kunnugt, gaf Skýrslutækni- félagið út svokallaða "staðlaóa sanininga", eða ramma að samningum um kaup, leigu og viðhald á tölvubúnaói, í árs- byrjun 1979. Fjögurra manna starfshópur hafði þá unnió aó gerð þessara samninga í tæplega eitt ár, sbr. Tölvumál, 2. og 3. tölublað 4. árgangs 1979. All flestir seljendur tölvubúnaðar hafa tekið mió af þessum samningum Skýrslutæknifélagsins síðan þeir komu út og nokkrir hafa notaö þá lítið sem ekkert breytta.

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.