Vísir - 24.01.1962, Page 1
Þilfarsplötur í
Drangajökli sprungu
ÓVENJULEGT atvik kom
fyrir um borð í hinu nýja frysti-
skipi Drangajökli, er hann var
úti fyrir Norðurlandi á áramót-
unum. Allt í einu kvað við
brestur svo hár að skipið nötr-
aði. — Á þessu fekkst ekki skýr-
ing fyrr en skipið kom til meg-
inlandsins og hafði losað farm
sinn.
Þegar hinn mikli brestúr
kvað við héldu skipverjar, að
skipið hefði rekizt utan í eitt-
hvert rekald án þess þó að það
hefði valdið neinum sjáanleg-
um skemmdum.
Þegar búið var að losa skip-
ið, sem var með fullar lestar
af fTyst.iim-f-iski.-til Rotterdam,
kom skýringin á brestinum í
ljós. Þrjár stálplötur í milli-
dekki, lestarops og síðu höfðu
sprungið. Við nánari athugun
kom í ljós, að voldugur þilfars-
biti þarna við lúguna hafði
sprungið verulega, en þó ekki
í sundur. Hann er eins og T í
laginu, sem stendur á haus og
hafði leggurin sprungið.
Þetta mun mjög sjaldgæft
fyrirbrigði, en er þó þekkt um
borð í nýjum skipum sem raf-
soðin eru. Getur þá myndazt
staðbundin spenna í stálið og
það brostið. Líklegt er og talið,
að yfir 20 stiga frosts í lestinni
hafi gætt hér. Ekki var skipið
þó í hættu statt vegna þessa.
þrotabú togara-
á ísafiröi
ekki hafa tekið á sig miklar
skuldbindingar vegna togara-
útgerðarinnar, sem er einka-
fyrirtæki.
Kátar hnátur
Þær voru hressar í bragði
þessar góðu vinkonur, sem
Vísir hitti að máli í hinu
íýja tómstundaheimili Æsku-
lýðsráðs Reykjavíkur. —
Það er rnunur að eiga svona
húsnæði, sögðu þær allar í
kór. (Ljósm. Vfsis I.M.)
Lögfræðingar á vegum
hins opinbera hafa verið á
ferðinni vestur á Isafirði nú
undanfarið. Þar er búizt
við að hið mikla útgerðar-
félag ísfirðingur h.f. verði
teldð til gjaldþrotaskipta
nú lun mánaðamótin.
Grein f jármálaráð-
herra er á bls. 9
Það liggja ekki fyrir öruggar
upplýsingar um það hve kröf-
ur á hendur útgerðarfélaginu,
sem á sínum tíma var lífakkeri
atvinnulífsins í bænum, nemi
mörgum milljónum króna. En
vitað er að þær skipta tugum
milljóna og hafa heyrzt þar
nefndar 50—60 milljónir kr.
Uppboðið á eigum ísfirðings
h.f. mun fara fram í þrennu
lagi. Nú einhvern hinna næstu
daga verða lausafjármunir fé-
lagsins seldir, en ákveðið er að
togararnir ísborg og Sólborg
sem legið hafa við festar þar
fyrir vestan verði boðnir upp,
ásamt hinu mikla fiskiðjuveri,
mánudaginn 29. janúar. Fisk-
iðjuverið er nú starfrækt að
miklu leyti og leggja þar upp
3 bátar.
Þess skal að lokum getið, að
bæjarsjóður ísafjarðar mun
Verkfalli
lokið
Lokið er verkfalli vagnstjóra
almenningsvagnanna á Suður-
nesjaleið. Samningar tókust í
fyrrinótt fyrir milligöngu sátta-
semjara.
Sveifarásinn
óskemmdur.
SVO slysalega tókst til fyrir
nokkru, er setja skyldi aðalvél-
ar togarans Sigurðar af stað
að vélamönnum, sem eru starfs-
menn hjá vélsmiðjunni Héðni,
láðist að opna fyrir smurolíu-
geymi inn á legur aðalvélar-
innar. Gekk vélin í nokkrar
mínútur áður en vélgæzlumenn-
irnir áttuðu sig á þessum mis-
tökum.
Nú hefir vélin verið „opnuð“
og skemmdirnar á henni kann-
aðar. Helzt var að óttast að
sveifarás vélarinnar hefði orðið
fyrir skemmdum. En athugun-
in á honum hefir leitt í ljós að
hann er með öllu óskemmdur.
Verður því hægt að gera vél
togarans jafngóða aftur að á-
liti sérfræðinga. Fá verður að
utan legur óg fleira, sem end-
urnýja þarf. Hve langan tíma
tekur að gera við togarann er
ekki vitað, það fer eftir því
hvenær vélahlutarnir áð' utan
koma hingað.
Gerist áskrifendur að Vísi sími 1-16-60