Vísir - 05.02.1962, Síða 5
Mánudagur 5. febrúar 1962
V í S I R
5
- . || - .sjij
ibúðargata í næsta úthverfi borgarmnar malbikuð á nokkrum dögum.
TAK7AN FKANTICALLV
SLANCEP' ASOUT ANP
SAWTHATALAKSE
V S0UL7EK WAS
A 5ALANCEP7 ASOVE
bSL THE 7UNNEL
w\ ENTKANCE—
lET the,<a
COAAEl!
1««
ASfCUf'TLX ther:e was a
THUNI7EKOUS CKA&H—
ANP' THE SELLOWINS
SOKILLAS WEKE
IC0S5EI7 OF VICTCfO/!
I andafundi —
Framh at 9 siðu
Osló“. Atburður þessi er
heitasta deilumál milli anda-
trúarmanna og andstæðinga
þeirra.
þannig stóð á þessu, að Ein-
ari Nielsen var boðið árið
1921 að koma til Oslóar og
framkvæma líkamninga-
myndun undir nákvæmasta
og harðasta eftirliti vísinda-
manna við Olóar-háskóla.
Skyldi hann hafa fimm mið-
ilsfundi undir eftirliti þeirra.
Áður en hver tilraun hófst
létu hinir ósveigjanlegu
eftirlitsmenn Nielsen ber-
hátta sig. Síðan voru læknar
fengnir til að skoða munn,
nasir og kok miðilsins og
skyldu þeir staðfesta, að
Nielsen gæti ekki falið neitt
á þessum stöðum. Sían varð
miðillinn að klæða sig í önn-
ur föt en sín eigin, þröngar
prjónabuxur og dökkbláa
prjónapeysu. Loks festu
menn fyrir vit honum eins-
konar munnkörfu en í hana
ætluðu hinir vísu menn að
veiða hluta af útfryminu.
Tveir læknar leiddu Einar
Nielsen til sætis síns. Hófst
nú fundurinn eins og venju-
lega. Nielsen sat í hinum
tjaldaða klefa, en læknarnir
stóðu hjá honum og horfðu
fullir tortryggni á hann.
Nielsen féll í dásvefn, en
nú brá svo undarlega við að
ekkert útfrymi kom í ljós.
Er Nielsen vaknaði af
transinum var honum sagt
þetta og svaraði hann þá
með því að mótmæla því
stranga, nærgöngula og tor-
tryggna eftirliti. Sagði hann
að eftirlitið mætti ekki ganga
. svo nærri sér, að hann gæti
ekki einbeitt sér í verki sínu.
Fóru læknarnir nú að ósk
hans frá honum og leið lang-
ur tími, upp undir klukku-
stund, þegar loksins birtist
eitthvað hvítt efni út frá vit-
um hans og þegar athugað
var í munnkörfuna á eftir
fannst í henni um 40 senti-
metra langt efni sem líktist
gas-bindi. Miðillinn hélt því
fram, að þetta væri útfrymi.
★
^ fimmta og síðasta anda-
fundinum í þessari ná-
kvæmu rannsókn. þann 5.
marz 1952, var höfuð og
WlMW.WAWAW.VAV.1
hendur miðilsins bundið inn
í poka úr gas-efni. Prjóna-
fötin sem hann var í, voru
enn vandlega skoðuð, svo að
ekki kæmi til greina að um
fataskipti væri að ræða. Síð-
an gat tilraunin hafizt.
Eftir nokkra stund vall
um 20 sentimetra langt út-
frymisband í munnkörfuna.
Enn var beðið um stund, en
þegár ekki birtist meira út-
frymi, var fundinum slitið
og læknarnir komu til að
framkvæma nákvæma rann-
sókn. Þá fundu þeir merki,
sem bentu til þess, að miðill-
inn hefði dregið hægri hönd-
ina úr pokanum sem hún var
í og ennfremur gat á höfuð-
pokanum, er virtist holað
með fingri. Þetta þótti mik-!
ið hneyksli og var mikið um
það talað, að Nielsen hefði
þrátt fyrir allar varúðarráð-
stafanir tekizt að koma ein-
hversstaðar fyrir svindlefni,
sem hann hefði svo gripið
til.
★
JJn með þessu var rannsókn-
unuín lokið og standa
harðar deilur enn um það,
hvað þær hafi í rauninni
leitt í Ijós. Rannsóknarnefnd-
in gaf út skýrslu, þar sem
hún kemst að þeirri niður-
stöðu, að miðillinn hafi falið
á sér hluti til blekkingar og
að hann hafi ekki náð sam-
bandi við anda heldui við-
haft sjónhverfingarlistir
töframanna. — Lokasetning
skýrslunnar var á þessa
leið: „Nefndin er þeirrar
skoðunar, að útfrymis fyrir-
bæri Einars Nielsens bygg-
ist á svikum.“
Þar við bætist að sjón-
hverfinga og töframenn, sem
sýna listir sínar á skemmti-
stöðum upplýstu vísinda-
mennina um það, að auðvelt
væri að framleiða útfrymis-
myndir úr örþunnu gas-efni
eða úr chiffon og þýzki sál-
fræðingurinn prófessor
Henning, sem hefur gagn-
rýnt þessar tilraunir harð-
lega segir: „Það er hægt að
leggja ótrúlega stór stykki
úr þessum efnum saman svo
að hægt sé jafnvel að fela
þau í holri tönn eða inn í
hlustargöngum. Eg hef séð
sérstaka tegund vefnaðar frá
Austur-Asíu, sem var ekki
Bærinn okkar
Framh af 7 síðu
sem byggja þarf upp frá grunni
til þess að taka á móti mikilli
þungaumferð.
★
Vel gerð akbraut er höfuð-
nauðsyn, en gatan er ekki full-
gerð fyrr en jafn vel hefir ver-
ið fyrir gangstéttinni séð. Mik-
ið vantar á það hjá okkur að
þetta tvennt fylgist að, og eru
gengstéttirnar, afdrep gang-
andi fólks, .mjög látnar sitja á
hakanum, en ofaníburður
þannig, að veldur sandfoki eða
í hann myndast forvilpur, allt
eftir veði'i. Þetta er með öllu
ófært. Gangstéttin verður að
koma jafnhliða hinni frágengnu
akbraut, og lágmarkskrafa að
jafnt tillit sé tekið til fótgang-
andi manna og ökutækja. —
Fyrir stuttu síðan fjallaði borg-
stærri en einn rúmsentimetri
þegar hann var samanþjapp-
aður, en þegar hann var blás-
inn út kom fram „loftbelg-
ur“ sem var fimm metra í
þvermáli.“
Þessar skýrslur og yfir-
lýsingar nægðu þó ekki til
að draga úr stuðningi fylgis-
manna Nielsens. Þeir telja
allar þessar árásir gersam-
lega út í hött, og líta á hann
sem einn merkilegasta miðil
sem uppi hefur verið.
arverkfræðingur um þessi at-
riði í fréttaauka útvarpsins, og
lýsti á greinargóðan hátt erf-
iðleikum þeim, sem á þessu
væru vegna hins mikla kostn-
aðar, og gat þess að við meðal
malbikaða íbúðargötu mundi
kostnaðurinn við gangstéttir
vera álíka mikill og gatan sjálf.
Þetta má vel vera rétt, en er
þá yfirleitt tekið nægilega til-
lit til þeirra staðreynda, þegar
fjárveitingar til gatna eru á-
kveðnar, að gangstéttin þurfi
að koma um leið og gatan? Ein-
hvernveginn finnst mér liggja í
loftinu að sú staðreynd sé höfð
útundan, og gangstéttin megi
bíða von úr viti. Er þar sjón
sögu rikari, en vonandi að
stefnubreytingar sé hór að
vænta. Það er aðkallandi verk-
efni að snúa sér strax að því
að fullgera allar þær götur, sem
þegar hafa verið malbikaðar
eða steyptar, með því að ganga
jafn vel frá gangstéttunum, og
að engin ný framkvæmd verði
hafin, nema þetta hvorttveggja
fylgist að. Borgarverkfræðingi
er vel treystandi til þess að
skipuleggja að slík sjálfsögð
vinnubrögð séu viðhöfð innan
þess ramma, sem fjárhagsáætl-
un á að gera ráð fyrir.
De Gaulle
Framh. af 1. síðu.
í Alsír hafa verið teknir
höndum um 100 OAS-menn
og stuðningsmenn þeirra og
fluttir til Frakklands og er
þessum handtökum haldið
áfram. — Fara handtökur
þessar fram að mestu án þess
mikla athygli hafi vakið,
cnda reynt að forðast það.
Daglega eru drepnir 10—
20 menn í borgum Alsír og
segja fréttamenn, að þessi
daglegu manndráp og
sprengingar séu varla frétta-
efni lengur, þar sem þetta
endurtaki sig dag eftir dag.
• o.,«• # e *» os «•_«» m a
Tarzan leit í skyndi í
kringum sig, og sá að stór
klettur stóð tæpt á brún við
opið.
Hann spyrnti við fæti og
kletturinn geysist af stað í
fang apanna.
Þeir þeyttusi um koll, og
nú virtust sigurvonir þeirra
litlar.
Mikilvægar yfirlýsingar.
f fréttum frá París segir, að
menn séu yfirleitt ekki trúaðir
á, að það hafi við nokkuð að
styðjast, sem mjög hefur verið
rætt utan Frakklands, að De
GauIIe kunni að boða vopna-
hlé í Alsír og greina frá sam-
komulagi milli ríkisstjórnar
sinnar og serknesku útlaga-
stjórnarinnar, heldur muni
hann ræða ástand og horfur al-
mennt og hvetja menn til sam-
hcldni og stuðnings við stefnu
sína. Þó segja fréttamenn í Par-
ís, að það eins og liggi í loftinu,
að eitthvað mikilvægt muni
vitnast bráðlega. Er m. a. á það
bent að serkneska útlagastjórn-
in hefur komið saman á fund
í Túnis og Ben Khedda vcrið
í forsæti, og muni að vænta
yfirlýsingar frá henni varð-
andi samkomulagsumleitanir
þær, sem fram liafa farið milli
hennar og frönsku stjórnar-
innar.
tV" Stjórnarskrárleg ráðstefna
er hafin í London um sjálf-
stæði eyjarinnar Jamaica í
brezku Vestur-Indíum fyrir
lok þessa árs.