Vísir - 15.02.1962, Blaðsíða 2
Fimmtiidagur 15. feþr,úar 19 62
fortíð og framtíð
Eftir 50. skjaldarglímuna
komu glímumenn, ungir sem
aldnir, saman til kaffidrykkju
og ræddu áhugamál sitt, glím-
una. Margir urðu til að leggja
orð í belg. Frægir kappar sögðu
frá því sem þeir minntust helzt
frá sínum beztu árum á glímu-
palli.
Glíman, eins þjóðleg íþrótt
og hún óneitanlega er, er
annars að verða allt of lítið
iðkuð og hópurinn, sem æfir
hjá Reykjavíkurfélögunum,
U.M.F.R. og Ármanni er sannar
lega ekki stór miðað við t. d.
greinar eins og handknattleik,
körfuknattleik og knattspyrnu.
Áhorfendur láta sig líka vanta,
er mót eru haldin.
Er hér ekl^i hægt að bæta
úr? Eru reglur glímunnar vel
til þess fallnar að laða hugi
manna, annað hvort til þátt-
töku eða til að horfa á?
Reglur -annara íþróttagreina
hafa ár frá ári verið að breyt-
ast. Annað hvort í þá áttina
að gera þær réttlátari, eða bein-
línis til að gera leikinn skemmti
legri og fjölbreyttari. Þetta er
það sem glíman þarf og þarna
er verkefnið fyrir þá, sem vilja
reisa glímuna við og búa henni
þann sess sem hún bjó við
áður fyrr.
Gamlir glímumcnn rabba saman um gamla daga — — og framtíðina. Þeir eru Ingimundur
Guðmundsson, Ágúst Kristjánsson og Þorgeir Jónsson. Lengst til hægri er íþróttafulltrúi ríkis-
ins, Þorsteinn Einarsson.
Þrjú handknatt'
leikslið í vor?
Nokkrar líkur eru til að þrjú
handknattleikslið verði gestir
hér í vor. í fyrsta lagi koma
hér Svíarnir LUIGI, mjög
sterkt sænskt lið, sem heyr nú
baráttu við Heim, sem var hér
í fyrra í boði Vals. Annars
staðar á síðunni er sagt frá
sænsku deildakeppninni, sem
er um það bil að ljúka.
í öðru lagi munu K.R.-ingar
fá hingað danska liðið HELS-
INGÖR, fyrst í maí en þeir
komu hingað fyrir nokkrum
árum. Er hér um aukaheimsókn
að ræða. Helsingör er mjög
sterkt lið eins og flestum mun
kunnugt og er nú eins og mörg
undanfarin ár meðal efstu lið-
anna í 1. deild.
Ew'lendar
Sréttir
Það voru kúluvarparanum
Gary Gubner mikil von-
brigði á dögunum, er hann
bætti innanhúss heimsmetið
í 19.46 metra, að Parry
O’Brien skyhli ekki mæta til
keppninnar. Ástæðan var sú,
að flugvélinni, sem O’Brien
kom með seinkaði vegna
slæms veðurs og kom hann
af þeim sökum of seint til
keppni. Gubner varð því að
láta sér lynda að vera keppn-
islaus. Gubner er aðeins 19 j
ára en ekkert smásmíði, veg
ur 260 amerísk pund.
fNn
Gary Gubner.
Nú hefur frétzt um liðið
FREIBURG, sem mun vera,
allsterkt þýzkt lið, og kemur
til mála að leiki hér einn eða
tvo leiki, en liðið kemur hér
við á leið til Bandaríkjanna.
Aðalfundur
Skíðafélags
Reykjavíkur
Aðalfundur Skíðafélags
Reykjavíkur var haldinn fyrir
nokkru.
í stjórn fyrir næsta kjör-
tímabil voru kosnir:
Stefán Björnsson formaður,
Lárus Jónsson, varaform.
Sveinn Ólafsson, ritari,
Brynjólfur Hallgrímsson,
gjaldkeri
Leifur Múller, Jóhannes Kol-
beinsson og Ragnar Þorsteins-
son.
Töflur
Eftirtaldir eru nú markhæstir
I. deildinni á Handknattleiks-
móti íslands:
Mörk
Ragnar Jónsson, FH 26
Birgir Björnsson, FH 17
Kristján Stefánsson, FIi 14
Gunnlaugur Hjálmarss., ÍR 14
Hermann Samúelsson, ÍR 13
Reynir Ólafsson, KR 11
Pétur Antonsson, FH 10
, /w
'/////;m<'//////,mxr?////A
ÁS? cpí DrT
pt. ,=n
\///////Æl M
Örn Hallsteinson, FH 9
Karl Jóhannsson, VR 8
Ingólfur Óskarsson, Fram 8
Örn Ingólfsson, Val 7
Rósmundur Jónsson, Víking 7
Jóhann Gíslason, Víking 7
Björn Kristjánsson, Víking 6
Þess ber að geta, að leik-
menn Fram og Vals hafa leikið
einn leik en leikmenn hinna fé-
laganna 2.
Körfuknattleiksmót Í.F.R.N.
hófst í dag kl. 1 í íþróttahúsi
Háskólans.
Kvennafl.
Kl. 13.00 Gagnfræðaskóli
Vesturbæjar — Hagaskól'i.
KL, 13.30 Menntaskólinn í
Reykjavik— Flensborg.
II. fl. karla:
Kl. 14.00 Menntaskólinn í
Reykjavík — Gagnfræðaskóli
Austurbæjar.
Kl. 14.40 Vogaskóli — Gagn-
fræðaskólinn við Vonarstræti.
Kl. 15,20 Hagaskóli — Gagn-
fræðaskóli Verknáms.
Kl. 16.00 Gagnfræðaskóli
Vesturbæjar — Verzlunarskóli
Islands.
I. fl. karla:
Kl. 16.40 Háskóli íslands B-
lið — Menntaskólinn í Rvík
B-lið .
Kl. 17.30 Menntaskólinn í
Rvík A-lið — Menntaskólinn á
Laugarvatni.
Kl. 18.20 Iðnskólinn — Há-
skóli íslands A-lið.
Kl. 19,10 Kennaraskóli ís-
lands — Verzlunarskóli ís-
lands.
Leiktími: 1. fl. karla 2X20
mín. II. fl. karla 2X15 mín.
Kvennaflokkur 2X10 mín.
Esjufjöll á F.l. fundi
Esjufjöll verða aðalumræðu-
efni á næstu kvöldvöku Ferða-
félags íslands í Sjálfstæðishús-
inu í kvöld.
Esjufjöll nefnist fjalllendi,
um 100 ferkm., sem rís upp úr
Breiðamerkurjökli og er um-
lukið ís og hjarni á alla vegu.
Heitir hæsta fjallið Esja og rís
1639 m. yfir sjávarmál. Það
munu flestir ætla, sem litið
hafa til Esjufjalla á ferð yfir
Breiðamerkursand, að þar muni
kuldalegt og ömurlegt, en þeir
tiltölulega fáu, sem hafa lagt
þangað leið sína, hafa aðra
sögu að segja. Þeir hafa upplif-
að þar stórbrotna náttúrufeg-
urð. Þar eru mikilúðleg fjöll og
sum fagursköpuð, þar eru háir
fossar, hamraflug og himin-
gnæfir tindar. Og þaðan er
stórkostlegt útsýni til Öræfa-
jökuls og Þverártindseggjar.
Gróður er þarna ótrúlega fjöl-
skrúðugur og það hefur Jón Ey-
þórsson staðhæft á prenti, að
af undarlegum stöðum á landi
voru séu fáir, sem í raun og
veru séu furðulegri og for-
vitnilegri en Esjufjöll.
Sumarið 1951 reistu sjálf-
boðaliðar úr Jöklarannsókna-
félagi íslands braggaskála í
Esjufjöllum í nær 700 m hæð,
syðst í s.kl. Skálabjörgum.
Þangað er tiltölulega greið leið
neðan af Breiðamerkjusandi.
í júlí síðastliðnum fór leið-
angur til Esjufjalla á vegum
Jöklarannsóknafélagsins og var
Magnús Jóhannsson útvarps-
virkjameistari, fararstjóri. Með
honum í för voru m. a. Þorleifur
Einarsson, jarðfræðingur, og
Eyþór Einarsson, grasafræðing-
ur. Fjöldi gullfallegra lit-
mynda var tekinn í þessari
ferð.
Á kvöldvöku Ferðafélagsins
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld
mun Magnús Jóhannsson sýna
og skýra litskuggamyndir frá
Esjufjöllum og ferðalaginu
þangað, en Eyþór Einarsson
tala um gróður fjallanna og
sýna gróðurmyndir. Á eftir
verður sýnd 8 mm litkvikmynd,
sem Valdimar Örnólfsson leik-
fimiskennari tók af skíðanám-
skeiðum þeim, sem hann hélt á
vegum Ferðafélagsins í Kerl-
ingarfjöllum s.l. sumar. Gefur
myndin nokkra hugmynd um
það hvílíka paradís skíðafólks
er þarna að finna um hásumar,
þegar þokkalega viðrar. Að lok-
um er myndagetraun.
Samkoman hefst kl. 20.30
stundvíslega. Húsið verður
opnað kl. 20,00.