Vísir - 15.02.1962, Page 6
6
V í S I R
Fimmtudagur 15. febr. 1962
Um SSl \7illys-jeppar
á þjéivegtim landsins.
JEPPAR hafa verið nokkuð
á dagskrá undanfarið, en þessi
merkilegu farartæki, sem eru
eins og svo margar tækninýj-
ungar síðari ára, afsprengi sið-
ustu heimsstyrjaldarinnar. Þeg
ar Bandaríkjaher, sem hér var,
flutti til landsins herjeppana,
þóttust menn strax sjá að
þama væru farartæki, sem
henta myndu vel hér á landi,
þvi jeppanum voru allir vegir
og jafnvel vegleysur færar. —
Strax við lok heimsstyrjaldar-
innar kemur fyrsti jeppinn í
eigu Islendings og það fór svo
sem margir höfðu spáð, að með
tilkomu hans urðu þáttaskil i
samgöngum um landið. Þetta
var hinn ameríski Willysjeppi
og það var Ivar Guðmundsson
dálkahöfundur Vikverja Morg-
unblaðsins sem fann þetta
stutta góða nafn á bílinn, sem
var oft til umræðu og frásagn-
ir af i dálkum dagblaðanna því
svo nýstárlegt farartæki var
hann þá.
Það voru sérfræðingar Wil-
lys Overland verksmiðjanna,
sem eftir beiðni herstjórnar
Bandarikjamanna áttu að finna
upp lítinn bíl, sem gæti farið
yfir þær torfærur, sem menn
hö.Vu aldrei látið sér detta í
hug að nokkur bíll kæmist, og
loks að bíllinn skyldi vera mjög
sterklega byggður.
Ótaldir eru þeir kaupstaðir
hér á landi og sveitir, sem
komizt hafa í samband við
þjóðvegakerfið síðan 1945 og
margir af þeim vegum eru
þannig til komnir, að upphaf-
lega var leiðin ekin á jeppa, og
þegar mönnum varð ljóst, að
þetta var hægt, var byrjað á
því að velta steinum úr slóð-
unum svo leiðin yrði aðeins
greiðfærari. Seinna komu stór-
virkari tæki.
Þessu hafa jepparnir flýtt
fyrir hér á landi, sem annars
staðar, með því að ríða fyrstir
á vaðið.
Árið 1951 var Agli Vilhjálms
syni h.f. falið aðalumboð fyrir
Willys Overland verksmiðjurn-
ar hér á landi og eitt af höf-
uðverkefnum varahlutasöiu fyr
irtækisins hefur verið að sjá
um að nægilegar birgðir vara-
hluta séu jafnan fyrirliggjandi
í Willys-jeppana.
Willys-jepparnir eru nú flutt
ir inn húslausir og smíðað yf-
ir þá hér á yfirbyggingaverk-
stæði fyrirtækisins.
Egils jeppastálhúsin hafa
reynzt mjög vel, eru endingar-
góð, stílhrein og þrælsterk.
Það hefur margsinnis komið í
ljós á undanförnum árum, að
þótt jepparnir hafi oltið eða
lent i slæmum árekstrum,
hafa stálhúsin forðað mörgum
frá fjörtjóni. Eru þessi hús
miklu öruggari en hin erlendu
jeppahús.
Yfirbyggingaverkstæði fyrir-
tækisins hefur árum saman
lengt og breytt jeppum á ýms-
an hátt. Þeir eru frá verksmiðj
um 6 manna bílar. En á verk-
stæðum umboðsins er hægt að
stækka bílana og gera þá að
9 manna vagni.
Hægt er að fá Willys-jepp-
ann með dieselvél sem aðra
landbúnaðarbíla. En um það
eru skiptar skoðanir, þar sem
sérfræðingar hafa komizt næst
borgi sig ekki fyrir almenning
að eiga einkabíl með dieselvél.
Til þess að það borgi sig, verði
aksturinn að vera mun meiri
en almennt gerist, eins og t.d.
hjá langferðabílum, strætis-
vögnum og leigubílum, sem eru
stanzlaust i gangi, enda verður
nýting dieselvélarinnar þannig
bezt.
Elztu Willys-jepparnir eru
frá 1942, sem sagt 20 ára, og
enn í ftþlu fjöri, en alls munu
vera yfir 2.300 Willysjeppar á
landinu og fjölgar þeim stöð-
ugt.
Sækja um lóð
undir bílahótei
Gísli Sigurbjömsson for-
stjóri og Friðsteinn Jónsson
veitingamaður, hafa sótt til
bæjarráðs um lóð undir bíla-
| hótel (mótel).
Málið mun vera á undir-
búningsstigi. Hafa þeir í huga
að þreifa fyrir sér um góðan
stað, áður en ítarlegar áætl-
anir verða gerðar.
• Rússneska stjórnin hefur sent
Júgóslövum 10.000 lestir af sem
enti, mikið af timbri og lyfjum
vegna'þeirra, sem illa urðu úti
af völdum landskjálfta á Dal-
matíu í janúar.
Einn hinna nýju Willys-jeppa, með Egils-húsi.
tTSALA
ÚTSÆJLÆ
Ennþá er hœgt að gera kjarakaup í skófatnaði
KARLMANNASKÓR áður 621,00, nú 350,00; áður 534,00, nú 295,00;
áður 491,00, nú 250,00.
KVENSKÓR áður 497,00, nú 250,00; áður 272,50, nú 175,00.
KVENTÖFLUR áður 195,85, nú 125,00.
BARNASKÓR áður 234,00, nú 75,00; áður 215,00, nú 125,00.
NÆLONSOKKAR nú kr. 30,00.
Notið jþetta einstaka tækifæri.
SkóbéH Reykjavíkur
Laugavegi 20