Vísir - 15.02.1962, Síða 7

Vísir - 15.02.1962, Síða 7
Fimmtudagur 15. febrúar 1962 V t S 1 R 7 í endurbættri setustofu F.U.S. Heimdaliar í V alhöll við Suðurgötu. Þarna sitja nokkrir forystumenn Heimdallar og ræða málefni félagsins: Frá vinstri: Ragnar Kjartansson fram- kv.stj. félagsins, Birgir ísl. Gunnarsson form. Heimdallar, Bjarni Beintcinsson lögfr. og Styrmir Gunnarsson stud. jur. — Heimdallur — f jölmenii- asta stjórnmálaféiagið Heimdallur, félag imgra Sjálfstæðismanna í Reykja- vík, er stærsta og öflugasta stjómmálafélag á fslandi. Meðlimir þess eru tæplega þrjú þúsund talsins. Árleg fjölgun er alltaf mikil. Á síðasta ári gengu inn í félag- ið xun 270 manns. Það er svo kannske tímanna tákn, að frá áramótunum síðustu Iiafa um 140 Iátið innrita sig í félagið. Þetta eru konur og karlar á aldrinum 16—35 ára. Heimdallur hefur aukið og eflt starfsemi sína ár frá ári. Núverandi stjórn félags- ins sem kosin var í sl. októ- ber hefur ekki látið merkið falla frekar en fyrri stjórnir. Fjölmargar nýjungar í félags- starfseminni hafa verið tekn- ar upp eða eru á prjónun- um. Helztu nýmælin eru kvöldráðstefnur þar sem rætt er um málefni sem eru ofarlega á baugi. Hefur ein slík þegar verið haldin, prýðilega sótt, og er önnur í undirbúningi. Landskunnir menn og viðurkenndir á sínu sviði hafa þegið, boð Heim- dallar um að halda fyrir- lestra í félaginu. Hafa nokkr- ir fyrirlestrar þegar verið haldnir á árinu, t. d. um þró- un efnahagsmálanna, varnir íslands, kommúnismann, bókmenntir og listir. Fram- undan er sitthvað auk fyrir- lestra. Föndurkvöldum Áskriftasími Vísis er 1-16-60 kvenna verður haldið áfram frá því er horfið var á síðasta ári. Farnar verða kynningar- ferðir í fyrirtæki höfuðstað- arins og á sögulega staði. Bridgekvöld, hraðskákmót, auk sérstakra skákkvölda verða reglulega það sem af er vetri. Þá má geta afmælishátíðar Heimdallar, sem verður 17. þessa mánaðar í tilefni af 35 ára afmæli félagsins. Er um að ræða veglegt hóf og vand- að til alls. í tilefni afmælis- ins verður gefið út allmikið ritgerðasafn eftir innlenda og erlenda menn um utanríkis- og alþjóðamál. Annars er út- gáfustarfsemi mjög stór þáttur í starfsemHeimdallar. Mun félagið á næstu vikum láta frá sér fara ýmislegt, sem nú er í undirbúningi. Loks er að geta setustofu Heimdallar, • sem nú hefur verið endurbætt með nýjum húsgögnum, stækkuðu safni bóka, bæklinga og blaða, auk margvíslegrar aðstöðu til ýmisskonar tómstuhdarstarf- semi. Þarna liggur frammi fjölbreytt lestrarefni, töfl, spil og sitthvað fleira. Verð- ur rekin sérstök starfsemi í sambandi við setustofuna svo sem tónlistar- og bók- menntakynningar. Hér hefur verið stiklað á stóru í yfirliti um starfsemi Heimdallar. Auðvitað er ekki hægt að gera sér fulla grein fyrir fjölbreytni hennar nema með því að vera með- limur og taka þátt í starfsem- inni. Skrifstofa félagsins er í Valhöll við Suðurgötu. Sími ,17102. Núverandi stjórn Heim- dallar skipa: Birgir ísleifur Gunnarsson form. Bjarni Beinteinsson, varaform., Magnús Þórðarson ritari, Magnús L. Sveinsson féhirð- ir, Einar Sindrason, Jón Sig- urðsson, Kristinn Ragnars- son, Páll Stpfánsson, Sigurð- ur Hafstein, Steinn Lárusson, Styrmir Gunnarsson og Ragnar Kjartansson, sem jafnframt er framkvæmda- stjóri félagsins. Krabbameinsfélag íslands hefur sótt til ríkisstjómar- innar um gjald af hverri neftóbaksdós, eða eina krónu af dósinni. Prófessor Niels Dungal, sem sem er formaður Krabbameins- félagsins sagði blaðinu, þegar það hringdi í gærmorgun, að krabbameinshættan færi stöð- ugt vaxandi. „Áratuginn 1940—50 voru um 20 tilfelli af lungnakrabba á íslandi. Á þessum áratug má gera ráð fyrir, að þeim hafi fjölgað upp í 500. Sígarettu- reykingar unga unga fólksins fara hraðvaxandi og krabba- meinstilfellin að sama skapi,“ sagði prófessorinn. Krabbameinsfélagið sótti einnig um skatt af sígarettum. Hjálmar Bárðarson ikipaskoðun- irstjóri flutti þarfa ræðu í útvarpið í gærkvöldi kl. átta. Hann skýrði þar frá aðgerðum sínum til umbóta á útbúnaði gúmbáta, hvatti sjómenn til að kynna sér leið- beiningar um notkun þeirra og vakti athygli á námskeiðum, sem haldin eru á vegum skipa- skoðunarinnar. En hvers vegna er ekki skipstjórum skylt að láta fara fram á skipum sinum æfingar í notkun þessara báta -— eða að minnsta kosti, ef það er talið nóg, að kynna skips- höfn sinni allri þær leiðbeining- ar, sem skipaskoðunin hefur látið prenta og festar eru upp í skipunum? Kvöldvakan í gærkvöldi var ekkert afbragð. Þar voru auk hinna tveggja föstu liða, lestrar Eyrbyggju og skýringa á þjóð- trú, þrjú efnisatriði, kynning á lögum eftir Baldur Andrésson, erindi, sem Hallgrímur Jónas- son flutti, og ljóðalestur Sigurð- ar frá Brún. Erindi Hallgríms kallaði hann Gamla minningu frá Þorradögum. Hún var all- sérstæð, en ekki þótti mér hún gædd slíku lífi í orðfæri og flutningi, að ég gat hvorki til að halda nauðsynlegu starfi um allt landið. Telur Krabba- meinsfélagið sig þurfa um 1.5 til 2 milljónir króna árlega, hið allra minnsta. Félagið þarf að geta haldið uppi virkri starf- semi í skólum. Nú er til dæmis læknir, á vegum félagsins, við sýningar kvikmynda og upp- fræðslu um krabbameinið. Styrkja þarf krabbameins- sjúka til að leita sér lækningar, sem er gífurlega dýr, og sitt- hvað fleira. \ „Það á að vera auðveldara hér en í mörgum öðrum löndum að draga úr reyking- um. Tóbaksauglýsingar eru Hannaðar hér. Það er ekki óeðlilegt að sami aðilinn og selur tóbakið sjái einnig um baráttuna gegn því. Það er siður að fela krabbameins- félögunum þessa starfsemi“. fylgzt svo greinilega með hrynjandi ljóðanna né orðfær- inu, að ég gæti gert mér grein fyrir gildi þessa kveðskapar. Þá talaði Jón Aðalsteinn Jónsson um íslenzkt mál, flutti eripdi sitt skýrt og skemmti- lega, forvitnaðist um orð og orðtök og skýrði frá ýmsu, sem hlustendur höfðu frætt hann á. Er enginn vafi á því, að þættir þeirra orð'abókarmanna auka mjög áhuga og þekkingu á ís- lenzku máli og örva menn til að vanda málfar sitt í ræðu og riti — og til varðstöðu um ís- lenzka tungu. Guðm. Gíslason Hagalín. FLUGIfí 1 Millilandaflugvélin „Gull- faxi“ er væntanleg til Reykja- víkur kl. 16.10 í dag frá Kaup- mannahöfn og Glasgow. Innanlandsflug: f dag: er áætlað að fljúga til Akur- eyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Kópaskers, Vestmannaeyja og Þórshafnar. Á morgun; er áætlað að fljúga til Akur- eyrar (2 ferðir), Fagurhóls- mýrar, Hoi-nafjarðar, ísafjarðar, Kirkjubæjarklausturs og Vest- mannaeyja. Flugfélag íslands h.f. Handtökur Nkrumah, hinn einræðis- hneigði forseti Ghana, hefir enn látið handtaka tugi manna. Herma fregnir frá Accra, að enn hafi 80 manns verið varpað í fangelsi fyrir andspyrnu við Nkrumah, og var a. m. k. einn af þingmönnum stjórnarand- stöðunnar meðal hinna hand- teknu. Innkaupastofn- unin hluthafl STJÓRN Innkaupastofnun- ar Reykjavíkur, forstjóri Valgarð Briem, hefur skrifað borgarráði bréf þar sem lagt er til að stofnuninni v/'rðí heimilað að gerast hluthafi í Tollvörugeymslunni h.f., með 100,000 króna f.ramlagi Krabbameinssjúklingiim hér fjölgar um 2000% segir prófessor Dungal

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.