Vísir - 11.05.1962, Blaðsíða 11
Föstudagur 11. maí 1962.
VISIR
II
r X'M 50 N
<SLAD YOU'RE
NOT TOO MAP AT
ME FOR CÓMIN&
ALON<5> RIP.
W PAYS THAT FOLLOW, THE
5.S. EXPLORER. HEADS
STEAP/LY SOUTHWARD...
I'M SURE '
WE'LL HAVE A
WONPERFUL
TIME, TUTU...
131. dagur ársins.
Næturlæknii ei i slysavarðstot-
unm slmi 15030
Næturvörður er i Lyfjabúðinni
Iðunn, Laugavegi 40, dagana 5.
maí til 12. maí.
Holts- og Garðsapötek eru opiri
alla virka daga frá 9 — 7 sfðd
og á laugardögum kl 9 — 4 sfðd
ag á sunnudögum kl 1—4 sfðd
Neyðarvakt Læknafélags Reykja-
víkur og Sjúkrasamlags Reykjavík-
ur er kl. 13-17 alla daga frá mánu-
degi til föstudags Sími 18331.
Sumarbúðir kirkjunnar
lítvorpið
Fastir liðir eins og venjulega.
0.00 Daglegt mál (Bjarni Einars-
son cand. mag.). 20.05 Efst á baugi
(Tómas Karlsson). 20.35 Frægir
söngvarar, Tito Gobbi syngur. 21.
00 Ljóðaþáttur: Guðbjörg Vigfús-
dóttir les kvæði eftir Þorstein Erl-
ingsson. 21.10 Tónleikar. Svfta nr.
2 í d-moll fyrir einleiksselló eftir
Bach (Pablo Casals leikur). 21.30
Útvarpssagan: „Sagan um Ólaf —
Árið 1914“ eftir Eyvind Johnson,
sögulok. 22.10 Um fiskinn (Stefán
Jónsson fréttamaður). 22.30 Á síð-
kvöldi: Létt klassísk tónlist. a)
Gestaatriðið úr óperunni ,,Sadko“
eftir Rimsky-Korsakov. b) „Les
Sylphides", ballettmúsík eftir
Chopin. 23.15 Dagskrárlok.
Söfniii
Minjasafn Reykjavikurbæjar,
Skúlatúni 2, opið daglega frá kl.
2 til 4 e. h nema mánudaga
Þjóðminjasafnið er opið sunnu
dag, þriðjud., fimmtud. og iaug-
ardag kl. 1.30—4 e. h.
Tæknibókasafn IMSI, Iðnskólan-
um: Opið alla virka daga kl. 13 og
19. — Laugardaga kl. 13 — 15
Eins og undanfarin sumur mun
Þjóðkirkjan efna til sumarbúða
fyrir börn. Að þessu sinni verða
þær þó ekki að Löngumýri f Skaga
firði ,eins og ætíð áður, heldur að
Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði.
Er þar heimavistarskóli góður og
aðstaða prýðileg til sumardvalar.
Sumarbúðastarf kirkjunnar tek-
ur af því svipmót sitt, að þær eru
reknar á kristilegum grundvelli,
eru þvf helgistundir bæði kvölds
og morgna, börnunum kenndar
bænir og vers, og aðstoða þau
sjálf við hið sameiginlega helgi-
hald búðanna. Einnig er lögð á-
herzla á að kenna þeim prúða
framkomu og kurteisi. Leikir og
kvöldvökur setja einnig sinn svip
á búðir kirkjunnar, og ýmiss kon-
ar föndurvinna er löngum vinsæl.
Glaðværð og eining hefur ríkt, og
sönn vinátta tekizt, ekki aðeins
milli barnanna innbyrðis, heldur
einnig gagnvart sumarbúðastjór-
um og öðru starfsfólki.
Sumarbúðirnar hefjast að þessu
sinni þann 20. júní og skiptast að
venju í tvo drengjaflokka og jafn-
- Áheit og gjafir -
Strandakirkja: 25 kr. frá Rúnu,
100 kr. frá NN. 25 frá NN, 10 frá
NN, 50 frá NN.
Ráðiii.i framkvæmdastjóri
Frá Styrktarfélagi vangefinna:
Þórður Hjaltason, fyrrv. stöðv-
arstjóri í Bolungavík hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri hjá
Styrktarfélagi vangefinna frá 1. þ.
m. að telja.
Keflavík
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis-
flokksins í Keflavík er í Sjálfstæð-
ishúsinu, niðri. Opin daglega frá
10-10. Símar 2121 og 2021.
Kosningaskrifstofa
Sjálfstœðisflokksins
er i Morgunblaðshúsinu Aðalstræti 6 II. hæð. Skrifstofan er
opin alla daga frá kl. 10—10.
\/
Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins er beðið að hafa samband
við skrifstofuna og gefa henni upplýsingar varðandi kosn-
ingamar. f
N/ í
Athugið hvort þér séuð á kjörskrá í síma 20129. )
N/ !
Gefið skrifstofunni upplýsingar um fólk, sem verður fjar- v
verandi á kjördag innanlands og utanlands. i
\/ (
Símar skrifstofunnar eru 2C126—20127. /
marga flokka fyrir telpur. Drengja
flokkarnir eru fyrst og standa I
14 daga hvor, en telpuflokkurinn
fyrri hefst 24. júlí og er hvor flokk
ur telpna einnig í 14 daga. Er því
mögulegt fyrir börnin að dvelja
lengst í einn mánuð í sumarbúð-
unum, með því að vera báða flokk
ana. Sumarbúðastjóri verður í sum
ar Bernharður Guðmundsson, guð
fraeðingur.
Umsóknurn um sumardvölina er
veitt móttaka á Biskupsskrifstof-
unni, Arnarhvoli, síma 15015, kl.
2 — 4 fyrst um sinn, en einnig taka
sóknarprestar á móti umsóknum.
Skólavist í Noregi
Verkfræðiháskólinn í Niðarósi
(Noregs Tekniske Högskole, Trond-
heim) mun væntanlega veita fá-
einum íslenzkum stúdentum skóla
vist á hausti komanda. Þeir, sem
kynnu að vilja koma til greina,
sendi mentamálaráðuneytinu um-
sókn um það fyrir 25. júní n.k.
Umsókn fylgi fæðingarvottorð, stað
fest afrit stúdentsprófsskírteinis og
meðmæli, og skulu öll gögnin vera
þýdd á norsku, dönsku eða sænsku.
Umsóknareyðublöð fást í ráðuneyt-
inu. — Athygli skal vakin á því, að
einungis er um skólavist að ræða,
en ekki styrkveitmgu.
Menntamálaráðuneytið,
ju :r:7-.maí l962.
Tímarit
Freyr. Nýkomið er 9.-10. hefti
árg. 1962 með litprentaðri mynd
af Áburðarverksmiðjunni. Efni: Á-
burður og ræktun, Geymsla áburð-
ar og flutningar, Framleiðsla áburð
ar fjölbrotið starf, Þeir standa á
verðinum, Áburðarpantanir 1962, í
framsýn, Um áburðarverð 1962,
Stiklað á stóru, eftir Guðmund
Jónatansson, Um tilbúinn áburð og
notkun hans eftir Pálma Einars-
son, Vaxandi notkun tilbúins á-
burðar, Áburður á grænfóður. —
Fjölda margar myndir eru í heftinu,
sem fjallar nær allt um Áburðar-
verksmiðjuna og tilbúinn áburð
eins og upptalningin hér að ofan
sýnir.
Vornámskeiði lokið
Vornámskeiðum Félagsmálastofn
unarinnar lauk með kaffidrykkju
að Hótel Borg sunnudagseftirmið-
daginn 6. þ.m. Var þetta jafnframt
síðasta málfundaræfing námskeið-
anna, og fluttu þátttakendur nú
ýmist hátíðleg ávörp eða skemmti-
legar skálaræður í æfingaskyni, en
á fyrri málfundum höfðu hin marg
víslegustu málefni verið tekin til
umræðu.
Rekin voru samtals þrjú nám-
skeið í fundarstörfum og mælsku
en einn fyrirlestrarflokkur um
verkalýðs- og efnahagsmál. Þátttak
endur í öllum námskeiðunum voru
samtals 105, þar af 12 í fyrirlestrar
flokknum. Flestir voru 24 á fundi
hvers námskeið en fæstir 8.
Á málfundanámskeiðunum fluttu
nemendur samtals 371 ræðu, 30
fengu æfingu í fundarstjórn, 30 í
ritarastörfum og 27 í stjórnarstörf
um.
í lokaræðu sinni sl. sunnudag
sagði forstjóri Félagsmálastofnunar
innar, Hannes Jónsson, félagsfræð-
ingur m.a.:
„Margvísleg fundarstörf er undir
staða hins þingræðislega lýðræðis-
skipulags, og mælskan er á meðal
þýðingarmeiri atriðanna, sem hafa
áhrif á þjóðfélagslegan frama ein-
staklingsins og framvindu þjóðfé-
Auðvitað hef ég gleymt öllu
þessu Ieiðindamáli, en þar með er
ekki sagt að þú eigir að gleyma
því að ég hef gleymt því.
lagsþróunarinnar. Nokkur leikni í
mæsku, þekking á fundarsköpum
og æfing í fundarstörfum hljóta
því að vera á meðal þeirra þekking
aratriða, sem ábyrgur þegn í lýð-
ræðisfélagi þarf að afla sér.“
Á hausti komanda mun Félags-
málastofnunin reka fleiri námskeið
í fundarstörfum
Utankjörstaðakosning
Þeir,- sem ekki verða heima á kjördegi, geta kosið hjá sýslu-
mönnum, bæjarfógetum og hreppstjórum og i Rvík hjá borgar-
fógeta. Erlendis er hægt að kjósa hjá íslenzkum sendiráðum og
ræðismönnum, sem tala íslenzku.
Kosningaskrifstofa borgarfógeta í Reykjavík er i HAGASKÓLA.
Skrifstofan er opin sem hér segir: alla virka daga kl. 10—12,
2—6, 8—10, sunnudaga kl. 2—6.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins Aðalstræti 6 II hæð veitir
allar upplýsingar og aðstoð í sambandi við utankjörstaðaat-
kvæðagreiðsluna.
Skrifstofan er opin daglega frá ki. 10—10. Símar 20126 og 20127.
Uppiýsingar um kjörskrá eru veittar í síma 20129.
:|
x-D
fþróttakennari skrifar párinu:
„Fyrir nokkrum dögum birtist í
blöðunum mynd af væntanlegri
sundhöll 1 Kópavogi. Það er á-
nægjulegt að vita um þann stór-
hug sem liggur á bak við þann á-
setning að byggja sundlaug fyrir
nærri tvo tugi milljóna króna. En
það vaknar ósjálfrátt sú spurn-
ing hvort það sé ekki hagkvæm-
ara að byggja ódýrari laugar og
fieiri og hafa þær útilaugar. Sund-
POZER DRAKE /S AN INTERESTEP
SPECTATOR...
X 60T A LOT
TO LEARN. X
THOUSHT THESE
SCIENTI5T GUY5
WERE SOUARES..
1) Næstu daga siglir eimskipið
Explorer suður á bóginn.
— Mikið bvkir mér vænt um að
þú ert ekki reiður við mig Rip.
— Nei, nei, við skulum hafa það
skemmtilegt.
2) Drake er athugull. Hann segir
við sjálfan sig. Ég get margt lært
af þessu, ég hélt að vísindamenn
væru ekki kvennaguíl.
laugarnar eru gott dæmi um það
hvernig á að byggja baðstaði sem
væru ódýrir í byggingu og njðta
vinsælda. Er ekkert bil á milli
Sundlauganna sem byggðar eru
fyrir tugum ára og sundhalla
sem kosta tugir milljóna króna.
Það fer ekki á milli mála að bygg-
ing sundlaugar sem kostar slíkt
stórfé, hlýtur að taka fjölda ára.
Og manni verður hugsað til íþrótta
fulltrúa ríkisins sem er manna öt-
ulastur fyrir framgangi sundiðk-
ana á landi hér, hvort ekki væri
neitt byggingarstig sundlauga sem
væri ódýrara og kæmi fyrr að not-
um. Ungt bæjarfélag eins og Kópa
vogur þarf útilaug fyrir allan þann
barnafjölda sem þar býr, laug sem
kæmi að notum eftir 1—2 ár en
ekki höll sem tekur 10 — 15 ár að
byggja. Þetta er nefnt hér vegna
þess að mál þetta er þó nokkuð
rætt meðal íþróttafólks í Kópa-
vogi sem býr við frumstæðustu
skilyrði til líkams- og heilsurækt-
ar af kaupstöðum þessa lands.
Sýndarmennskan og yfirborðstidr
ið virðist ekki ríða við einteiming
í þessum málum. Það vantar fleiri
útilaugar sem eru ódýrar 1 bygg-
ingu en ekki hallir sem aldrei koma
að eins góðum notum og litlu laug-
arnar.“