Vísir - 11.05.1962, Blaðsíða 5

Vísir - 11.05.1962, Blaðsíða 5
röstudagur 11. maí 1962. VÍSIR s Jftiæ afundur sem leikarar gengust íyrir gegn sprengíngunum um Times Square í fíew York Kyrrahafi stbðvaði ulla umíerð KieiEand kominn OLAV KIELLAND, hljómsveitar- stjóri, sem hér er kunnur og á ó- talda aðdáendur, er kominn til I landsins og stjórnar næstu tón- 1 leikum Sinfóníuhljómsveitar fs- lands, þeim næstsíðustu í vor og nefnast „norrænir tónleikar“ og verða á n.k. fimmtudag. Á tónleikunum verða flutt þrjú 1 verk, Sveitasvíta (Pastral sutie) eftir sænska tónskáldið Lars Erik Larson, þá verk eftir Edvard Grieg, Bergljót fyrir framsögn og hljómsveit, og fer Guðbjörg Þor- bjarnardóttir með framsagnarhlut- verkið. Loks verður flutt sinfóní- an nr. 2 e ftirOlav Kielland. Vart gerist þörf að kynna Kiell- and hér, svo oft sem hann hefir komið hingað og stjórnað tónleik- um hér, en það er ætíð tilhlökk- unarefni fyrir tónleikagesti að heyra, að hann sé kominn til lands ins. Uppreisn í Mauritaníu Því er haldið fram í Rabat í róður hafður í frammi í Marokkó Marokko, að uppreist hafi brotizt til að innræta þjóðinni þetta, og út í Mauritaníu, sem Frakkar gáfu þegar Mauritanía sótti um upptöku frelsi fyrir skeminstu, en stjórnin í Sameinuðu þjóðirnar, var því á- þar hindri, að fregnir af uppreist- kaft mótmælt af fulltrúa Marokkos inni berist úr landi. i hjá stofnuninnr. Stjórnin í Marokko gerir kröfu Að sögn manna í Marokko hefir til Mauritaníu, heldur því fram, að komið til harðra átaka á ýmsum hún sé aðeins hluti af Marokko, stöðum í landinu og breiðist upp- sem hljóti fyrr eða síðar að sam- reistin óðfluga út. einast ,,móðurlandinu“. Er mikill á- i Áhöfnin af Elgo. Myndin tekin á Þór, þegar komið var inn á Vestmannaeyjahöfn. Skip- stjórinn annar frá hægri. t baksýn sést Elgo. Hér sjast Pórsmenn röa skipverjum at Elgo a gummíbát yfir í Þór. _ (Ljósm.: Skúli K. Gíslason). Vitlaust hús... Framh. af 16. sfðu. þangað. En þá tók ekki betra við. Húsið var læst. Og hvort heldur að eigandinn hefur ekki vitað að það var læst, eða hann hefir gleymt lykl inum heima hjá sér, eða hann ekki gengiC að húsinu, þá er svo mikið víst að engin leið var að komast inn í húsið öðru vísi en brjóta rúðu í því og skríða þar inn. Eftir' að inn var komið varð þeim skötuhjúum það að sjálfsögðu fyrst fyrir að þrífa sig, skafa ó- þverrann af fötum sínum og hreinsa þau eftir megni. Ekki þótti ástæða til að hreinsa gólfið né húsið á eftir, og að lokum var sú ákvörðun tekin að fara út um dyrn- ar en ekki gluggann, þótt læstar væru. Með einu góðu sparki lét bæði hurð og dyraumbúnaður und- an og að því búnu var húsið yfir- gefið. Ekkert af þessu hefði orðið neitt sögulegt ef ekki hefði viljað svo illa til að þetta var vitiaust hús. Þetta var alls ekki sumarbústaður þessa manns, heldur allt annars. Og þegar hann kom nokkru seinna að huga að sumarhúsi sínu þótti honum aðkoman ljót, jafnt utan- dyra sem innan. Hann kært: málið fyrir rannsóknarlögreglunni og hún gat gengið beina leið að innbrots- manninum. bví hann hafði gleymt meðalaglasi — með nafni sínu áletruðu — inni í sumarbústaðnum. Nú hafa sættir tekizt í málinu )g r>illai -ótagreiðslur farið fram. Skilrúm... Framh. af 1. síðu. tekið í slef. Á leiðinni til Eyja, sem tók um 15 klst. fór veður batnandi og þegar til Eyja kom var stillt veður og sléttur sjór. Þeir komu að Eyjum kl. 7 f morg un en um 9 leytið lögðust þeir upp að hafnarbakkanum. Hafn- arbáturinn Lóðsinn lóðsaði Þór inn, sem dró Elgo upp að bryggju. Skipstjóri á norska skipinu Jo han Mosbon vildi ekkert segja hvað hefði komið fyrir, en það varð sem fyrr segir ljóst, þegar lestar voru opnaðar Nýtt skilrúm Áhöfnin er nú aftur komin um borð í skipið, þar sem það ligg- ur í höfninni og munu búa þar meðan skipið er affermt. Síðan mun ætlunin að setja skilrúm í skipið upp á nýtt og halda síld- arflutningum áfram. Öryggistæki á þessu norska skipi eru ekki mikil, tveir tré- bátar heldur lítilfjörlegir og einn tunnufleki. Finnst Vestmanna- eyingum undarlegt að enginn gúmmíbjörgunarbátur er um borð. Er slíkt ekki skylda á norskum skipum. Vantar vitni Um hálf níu leytið í gærkveldi gerðist það á gatnamótum Baróns- stígs og Njálsgötu, að grænum Shervolet?bíl var ekið aftan á ann- an bíl. Eigandi þess bíls sem ekið var á þóttist sjá að hinn væri undir áhrifum áfengis og krafðist þess að hann biði á árekstrarstaðnum þar til lögreglan kæmi, en sá sem ók á skeyttLþyípkki en ók í burtu/ Bíleigandinn sem orðið hafði fyr ir tjóni tók númer Chevrolet-bíls- ins niður og fór lögreglan í morg- un og sótti bíleiganda þann. En hann neitar þá öllu og segist alls ekki hafa verið að aka bílnum, þótt hinn bíleigandinn þekki hann fyrir sama mann. Vegna þessa vandræðaástands vantar lögregl- una vitni að árekstrinum og bið- ur þau um að hafa samband við sig hið fyrsta. Skólaslit Vélskólanum verður sagt upp kl. 9.30 á laugardag. Hér birtist mynd af fyrirsögn, sem var á fjórðu síðu Þjóðviljans í morgun. Vísir birtir hana, af því að hún er til valið dæmi um full- komna þjónkun Þjóðvilj ans við herrana í Kreml og ótrúlega skammsýni ritstjórnarinnar, að því er áróðu snertir Það er uefnilega Bandaríkja- mönnum til hróss, að Skipt um ... Framh at 1. síðu i til að leggja til nýjar vélar eða vélahluta, vegna galla, sem prófanir leiða í ljós. Athuganir sérfræðinga fyrirtækisins leiddu til þeirrar niðurstöðu, að skipta þyrfti um vatnshjól. Og vinna við það er sem sagt hafin. Diesel rafstöðvarnar á Austfjörðum verða keyrðar á meðan og ef til skömmtunar kemur verður hún auglýst og reglur fyrir henni. Gera má ráð fyrir, að verkið taki 3 vikur. Seinagangur á viðgerð. Umrætt fyrirtæki tók þeg- ar umkvartanir til greina og lofaði úrbótum, en óvanaleg- ur seinagangur hefur verið á þessu þar sem Grímsárvirkj- unin hefur nú starfað I nokk- ur ár — en Vísir hefur það fyrir satt, að þegar samið sé við vestræn fyrirtæki gangi það miklu fljótara fyrir sig, að fá lasfæritv^”- kvæmdar eða skipt um vélar, vegna galla sem prófanir leiða í Ijós — og sjaldgæft að slíkt taki meira en ár í mesta lagi, jafnvel nær allt af inn- an við ár. Rafmagnstakmarkanir. í Mjólkárvirkjuninni náðist ekki heldur tilskilið magn, en hvað Reiðhjallavirkjun snerti var það svo tæpt, að áætluðu magni væri skilað, að fyrirtækið féllst á að skipta um vatnshjól þar líka. Það mun taka nokkrar vikur að skipta um vatnshjól í öllum virkjununum, og standa vonir til, að fólk á virkjunarsvæðun- um verði ekki fyrir miklum ó- þægindum vegna rafmagns- skorts meðan unnið er að þess- um framkvæmdum, en þær eru framkvæmdar á þeim tíma, sem mjög hefur dregið úr rafmagns- notkun. Góðviðri og hlýindi hafa hér og sitt að segja, hald- ist hlýindi verður raforkuþörf- in mun minni en ella, þar sem raforku verður þá ekki þörf til þessi mótmælafundur skyldi haldinn í hjarta New York-borgar. Hann sýnir, að þar er mönrtum heimilt að hafa aðrar skoðanir á málunum en ríkisstjórnin og láta þær í ijós á opinberum fund- um. Menn beri það til dæmis saman við við- brögð rússneskramanna á sl. hausti, þegar Krús- év lét sprengja sem óð- ast yfir Novaja Zemlja og víðar. Þá hlógu þing- menn í Kremlsölum eins og flón, en enginn hreyfði andmælum inn- an þessa stærsta ríkis jarðarinnar. Af hverju? Vill Þjóðviljinn ekki svara því? Eða leyfa þeir það ekki, húsbændurnir í Kreml?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.