Tölvumál - 01.05.1989, Side 14
Tölvumál maí 1989
Kynning á tölvumálum
fyrirtækja:
Vegagerð
ríkisins
Staðsetning:
Höfuðstöðvar eru í Borgartúni 5-7,
105 Reykjavík. Náin tengsl eru við
umdæmisskrifstofur og útbú
Vegagerðarinnar úti á landi.
Starfsmenn sem vinna við
tölvumál:
Deildarstjóri: Guðni P. Kristjánsson
Aðrir starfsmenn: í Reykjavík eru 3
menn við rekstur tölvukerfa auk
deildarstjóra. í hveiju umdæmi eru
2 menn með umsjón tölvumála sem
hluta af sínu verksviði. Fagdeildir
bera ábyrgð á hugbúnaði á sínu
sviði og er forritunarvinna aðkeypt í
ríkum mæli.
Vélbúnaður:
í höfuðstöðvunum eru Vax 11/750
og Vax 8250 tengdar saman í klasa.
Ethemet kapall liggur um bygging-
amar og tengjast honum 11 skjá-
þjónar og ein Vaxstation 2000.
Skjáir era alls um Í35, þar af 6
myndvinnsluskjáir. Auk þess em
notaðar um 20 Mac tölvur og 5 pc
vélar. Umdæmisskrifstofur em á
Selfossi, Borgamesi, ísafirði,
Sauðárkróki, Akureyri og Reyðar-
firði. Hver þeirra hefur mflcróvax II
tölvu og eru þær allar tengdar
höfuðstöðvunum gegnum gagnanet
Pósts og síma með föstum X.25
línum. Samskiptin fara fram með
Decnet hugbúnaði. Útibú (utan um-
dæmisskrifstofanna) em með skjái í
upphringisambandi við tölvumar.
Prentarar em alls um 50 og teiknar-
ar 9, þar af tveir stórir HP 7580.
■
Kerfishugbúnaður:
• VMS stýrikerfi
• Decnet samskiptabúnaður
• Fortran þýðandi
• FMS undirforrit fyrir skjámyndir
• GKS og ISPLOT undirforrit til
myndvinnslu
• 20/20 töflureiknir
• Dectext ritvinnsla
Helsta notkun
tölvukerfisins:
• Hönnun vega er unnin með
fortranforritum.
• Hönnun brúa er að hluta á Vax
tölvunum og að hluta á
Macintosh.
• Unnið úr kaupaukakerfí, verk-
magns- og kostnaðaráætlana-
kerfí með fortranforritum.
• Rekstraráætlanir era unnar í
töflureikni.
• Ritvinnsla.
• Upplýsingakerfi um snjó-
mokstur, malamámur o.fl. eru
forrituð í fortran með lykluðum
rms skrám.
• Ýmsum gmnnskrám er haldið
við í Reykjavík og sendar
vikulega til umdæmanna.
Framtíðarhugmyndir:
Stefnt er að því að færa mynd-
vinnslu yfír í GKS staðlinn og upp-
lýsingakerfin í gagnasafnskerfi.
Annað athyglisvert:
I vetur voru upplýsingar um snjó-
mokstur og færð sendar daglega úr
umdæmum og údbúum til Reykja-
vflcur fyrir almennan fótaferðatíma
og unnið úr þeim til þess að birta
yfirlit um ástand vega.
Á síðasta ári flutti Vegagerðin 20
milljón gagnasneiðar yfir gagnanet
Pósts og síma, sem er um 15% af
notkuninni á netinu. ■
14