Vísir - 27.05.1962, Blaðsíða 8
8
Sunnudagur 27. maí 1962.
Útgefandi Blaðaútgatan v'ISIR
Ritstjórar: Hersteim Pálsson Gunnar G Schram
Aðstoðarritstjóri Axel Thorsteinsson
Fréttastjóri Þorsteinn 0. Thorarensen
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskriftargjald er 45 kró.iur á mðnuði.
1 lausasölu 3 kr. eint. — Sími 1166G (5 línur)
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.t
..____________________________________________________________j
Kjósum snemma
Kjörfundur hefir nú þegar staðið í nokkrar stund-
ir. Honum lýkur klukkan 11 í kvöld. Allir Sjálfstæðis-
menn ættu að kjósa eins snemma og þeim er unnt
og hvetja vini sína og félaga til hins sama.
Sjálfstæðismenn ganga vongóðir til þessarra
kosninga. Varast verður þó of mikla bjartsýni. Áður
hefir verið rakið hér í blaðinu að í síðustu þingkosn-
ingum skorti Sjálfstæðisflokkinn 2.400 atkvæði á að
þeir hefðu hreinan meirihluta í borginni. Enginn Sjálf-
stæðismaður má því liggja á liði sínu í dag. Meiri-
hlutinn getur auðveldlega oltið á atkvæðinu þínu.
Allt of margir draga að kjósa þar til kvölda tekur.
Það er slæm regla. Sein kosning gerir flokksstarfið á
kjördag erfiðara en skyldi. Fjölmennum því á kjör-
fund og hvetjum alla Sjálfstæðismenn til þess að gera
slíkt hið sama.
Unnið fyrir fólkið
Undanfarna daga hefir Vísir ritað mikið og margt
um störf og stefnu Sjálfstæðisflokksins í bæjarmálum.
Sumum kann að finnast of mikið. Og satt er að annað
efni hefir orðið að þoka um set í bili sökum kosn-
inganna.
/r
En við höfum ekki að ástæðulausu brugðið upp
myndum af störfum Sjálfstæðismanna í borgarstjórn
síðustu fjögur árin. Þar hefir mjög vel verið unnið
og okkur finnst full ástæða til þess að geta um það,
sem vel hefir verið gert.
Hér hefir verið rakið síðustu daga hve mikið
hefir verið gert í hitaveitumálum, hve margir leikvellir
og skólar byggðir, sjúkrahús, götur, íbúðir fyrir efna-
litið fólk, og svo mætti lengi telja.
Ekkert af þessu eru kannski stórfréttir á heims-
mælikvarða. En þetta eru stórfréttir fyrir fólkið, sem
byggir þessa borg. Borgarstjórnin lætur sér ekki
standa á sama um hag borgaranna. Hún gerir allt,
sem hún má til þess að létta þeim efnaminni lífs-
baráttuna og koma til móts við þá sem vandkvæði
og bágindi sverfa að. Og borgarstjórnin hefir hugsað
vel um æsku borgarinnar. íþróttasvæði og sundlaugar
rísa upp og skólar og tómstundaheimili af beztu gerð
eru byggð fyrir unga fólkið í Reykjavík.
í dag hefir þú, kjósandi góður, vald og rétt til
þess að segja álit þitt á starfi Sjálfstæðismanna í borg-
arstjóm. Á herðum þínum hvílir sú lýðræðislega
skylda að nota þann rétt.
Það er undir þér komið hvernig borginni okkar
verður stjómað næstu fjögur árin.
hann hefur Icennt við Tónlistar-
skólann frá því að hann kom
heim frá námi, staðio fyrir
strengjakvartett og tekið virk-
an þátt f tónlistarmálum. Hann
hef,ur kennt nær öllum okkar
fiðluleikurum, að meira eða
minna leyti, og er ekki aðeins
virtur, heldr.r elskaður líka, af
öllum sfnum nemendum. Hann
er kvæntur Kolbrúnu Jónas-
dóttir, og eiga þau eina dóttir.
Segir Björn að það sé ekki nóg,
menn eigi að eiga fleiri börn.
— Við spyrjum Björn hvað
hann vilji segja okkur um tón-
listarmál í borginni.
— Skilningur á tónlistarmál-
um hefur aukist mikið á seinni
árum. Bæði borgin og ríkið
hafa styrkt þá starfsemi mjög
dyggilega, til dæmis njóta Syn-
fóníuhljómsveitin og Tónlistar-
skólinn styrks frá báðum þess-
um aðilum. Til að fyrirbyggja
misskilning, vil ég taka það
fram að til eru í öllum flokkum
menn, sem skilning hafa á þess-
um málum.
— Telur þú nægilega vel að
tónlist búið hér í borginni?
— Það hefur breyzt mjög til
batnaðar f seinni tíð. Alltaf er
að vísu margt ógert, en fram-
farimar hafa verið miklar.
Borgarstjórn hefur til dæmis
alltaf snúist mjög vel við okk-
ar málum.
— Hvað er það sem helzt
vantar hér?
— Það sem okkur vantar
mest eru fleiri góðir tónlistar-
menn. Ef við fáum nóg af þeim
kemur hitt af sjálfu sér. í Sym-
fónfuhljómsveitinni leika nú
frá 50 til 55 menn. Ég tel að
hæfileg stærð á hljómsveit í
Reykjavík væri um 68 menn,
sem hefðu það að fullri at-
vinnu.
— Hvernig verður þessu
marki náð?
— Það fyrsta sem listamað-
ur þarf að gera er að gera kröf-
Framh. á bls. 11.
Fyrst að gera kröfur til
sjálfs sín
Fáir menn munu taka jafn son, fiðluleikari. Bjöm hefur
alhliða þátt í tónlistarmálum verið konsertmeistari Synfóniu-
hér f borg eins og Bjöm Ólafs- hljómsveitarinnar frá stofnun,
Gjöm Ölafsson.
Meirihlutinn
— Ég vil sérstaklega minn-
ast á það að borgin gaf Háskóla
íslands stóra lóð, á 50 ára af-
Framh. á bls. 11.
Áslaug Ottesen varð 21 árs
f ágúst í fyrra. Hún kýs þvf í
fyrsta sinn. Áslaug er stúdent
frá Menntaskólanum í Reykja-
vík, árið 1960 og hefir stundað
nám í lögfræði við Háskólann
síðan. I vetur hefur hún unnið
með námi og verið fram-
kvæmdastjóri Stúdentaráðs.
— Hefur þú hugsað mikið
um stjórnmál?
— Ég hef að sjálfsögðu velt
þessu talsvert fyrir mér. Ég er
fegin að vera búin að fá þennan
rétt til að taka þátt í stjórn
landins.
— Hvers vegna þykir þér
.þetta mikilvægt?
— Við búum hér við lýðræði,
sem byggist á því að meirihlut-
inn ráði hvernig hann vill láta
stjórna. Kosningarétturinn er
því ekki svo lítils virði. — Ég
er þess fullviss að einstakling-
amir eiga að ákveða hvernig
stjórnað er og tel að ekki séu
aðrar leiði. betri til farsæls
stjórnarfars.
— Hefur þú hugsað mikið um
borgarmálin?
— Ég álít að stjórn Sjálf-
stæðisflokksins á þeim málum
hafi reynzt sérlega vel. Við höf-
um haft hér ágæta borgar-
stjóra, hvern fram af öðrum.
Ég tel tvímælalaust heppilegra
að stjórn borgarinnar sé í hönd
um samvirks flokks, sem sýnt
hefur hvers hann er megnugur,
en þeirra sundrungarafla, sem
sameinazt getur um það eitt, að
vera í andstöðu við Sjálfstæðis-
flokkinn.
Hvað villt þú segja um mál-
efni Háskólans I þessu sam-
bandi?
Áslaug á skrifstofu Stúdentaráðs.