Vísir - 28.05.1962, Side 3
Úlfar Sveinbjömsson, magnaravörður, afhendir Ragnari T. Ámasyni nýjar tölur.
Lögregluþjónarnir Eyjólfur Jónsson og Þorsteinn Alfreðsson,
bera atkvæðakassa inn í Austurbæjarskólann.
Mánudagur 28. maí 1962.
V'ISIR
Mynd þessi sýnir sæti þau, sem hin nýja borgarstjóm kemur til með að sitja í. í aðeins sex af fimmtán sætum verða nú
sömu menn og fyrir kosningar.
Talningin í nótt
Ólafur Jónsson, fulltrúi lögreglustjóra, með atkvæðaseðla
böndunum.
Mikillji.spenningur var hjá
mörgum.. íbúum Reykjavíkur í
gær, að’ bíða eftir úrslitum
kosninganna. Þegar ekið var
um borgina eftir miðnætti,
loguðu ljós f miklum fjölda
íbúða. Þegar svo úrslitin í
Reykjavík urðu kunn, skömmu
fyrir klukkan þrjú, fækkaði
ljósunum fljótt.
Mikið var um að vera i leik-
fimissal Austurbæjarbamaskól-
ans í nótt. Þar fór fram talning
og gátu menn fengið að koma
þangað og horfa á hana. Áhorf-
endur voru þó mjög fáir. í saln-
um var borðum raðað í fer-
hyrning og sátu við þessi borð
um eða yfir sextfu manns.
Lögregluþjónar voru þarna á
stöðugri ferð fram og aftur,
með atkvæðakassa, sem þeir
sóttu í kjördeildir, vfðsvegar
um borgina.
Það var víðar mikið að gera
en í Austurbæjarskólanum. Á
fréttastofu útvarpsins, var allt
/
í fullum gangi. Símar hringdu
þar stöðugt, með nýjar tölur
víðsvegar að af landinu. Þau
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir,
Ragnar T. Ámason og Jóhannes
Arason, skiftust síðan á um að
Iesa upp tölurnar.