Vísir - 28.05.1962, Page 9
Mánudagur 28. maí 1962.
V'lSIR
I
Falleg bók um Rússland
A lmenna bókafélagið hóf s.l.
vetur útgáfu á bókaflokkn-
um „Lönd og lýðir“. Verður
þetta löng röð fallegra mynda-
bóka um einstök ríki og innan-
um myndirnar langar og fróð-
legar lýsingar á landi og þjóð-
háttum.
Fyrsta bókin kom út fyrir
jól og fjallaði um Frakkland,
önnur er nýlega komin út um
Rússland, sú þriðja væntanleg
um Ítalíu og svo verður haldið .
áfram.
Bókaflokkurinn er gefinn út
í samstarfi við bandaríska
tímaritið Life og hina kunnu
ítölsku Mondadori útgáfu, sem
prentar myndirnar, en hinn ís-
lenzki texti er síðan prentaður
£ prentsmiðjunni Odda. Birtast
bækurnar þannig á mörgum
tungumálum og njóta hvar-
vetna vinsælda. Frágangur
þeirra er svo til fyrirmyndar að
þær eru ásamt listaverkabók-
um Ragnars i Smára merkilegur
áfangi í íslenzkri bókaútgáfu.
Sérstaklega er myndaprentun
góð bæði 1 itprent og svart-
prent og bækurnar tilvaldar
tækifærisgjafir næstum fyrir
hvern sem er.
Rússlandsbókin er sérléga vel
þegin, því að Sovétríkin eru lít-
ið þekkt sökum einangrunar og
sáralítið að græða á þeim á-
róðurslegu kynningarritum,
sem Rússar sjálfir dreifa út.
Höfundur textans er Banda-
ríkjamaður að nafni Charles
W. Thayer, sem upplýst er að
hafi dvalizt lengi í Rússlandi
og hafi sérþekkingu á því
sviði.
Oókin skiptist niður í nokkra
kafla, sá fyrsti gefur yfir-
sýn yfir landið, höfuðborgina
og sögu þjóðarinnar, annar
fjallar um byltinguna, þá kem-
ur kafli um stjórnarfarið, þá er
lýst verksmiðjuiðnaðinum, land
búnaðinum, síðan vikið að dag-
legu lífi almennings, hinni nýju
stéttaskiptingu, uppeldismálum
og skemmtanalifi.
Lýsingin er í heild greinargóð
og létt yfir henni. Hún er frem-
ur ætluðu til skemmtilestrar og
tæmir því hvergi neitt efni,
heldur gefur einskonar svip-
myndir úr þjóðlífinu, — sam-
blandi af frásögn ferðamanns,
viðtölum við fólkið og ýmsum
fróðleiksmolum. Frásögnin er
hleypidómalaus, ræðir skyn-
samlega Hin margvíslegu vanda
mál og opinskátt um þá kúgun
og hryðjuverk, sem viðgengizt
hafa undir ráðstjórn, án þess
þó að fá á sig áróðursblæ. Höf-
undurinn leiðir lesandann
hvorki inn í austrænar né vest-
rænar áróðursstöðvar heldur
beint til fundar við rússneska
alþýðu
Thayer tekst býsna vel upp í
mörgum þessara þátta og verð-
ur ekki um það villzt, að hann
er góður hugsandi rithöfundur.
Væri það þeim íslendingum
sem aðhyllast kenningar komm-
únismans sannarlega til góðs
að lesa þessa frásögn vandlega,
ekki endilega til þess að snúa
þeim, heldur til þess að þeir fái
einu sinni sannlega lýsingu á
ástandini í þessu höfuðríki
kommúnismans í stað þeirra á-
róðursglansmynda, sem þeir
hafa látið blekkjast af á undan-
förnum árum sjálfum sér til
sálartjóns.
^il þess að telja upp nokkra
beztu þættina sem innsýn
veita í málin vildi ég nefna t.
d. inngangskafla þar sem lýst
er hvernig umhverfið og útsýn-
ið út úr gluggum járnbrautar-
lestar breytist eftir því sem
austar dregur í Evrópu. Lýs-
ingin á vandamálum landbún-
aðarins er hófsamleg en mjög
sláándi og einnig kaflinn er
skýrir hina undarlegu verð-
myndun í Sovétríkjunum þar
sem yfirvöldin selja vissar vör-
ur á margföldu framleiðslu-
verði, draga þannig úr eftir-
spurn eftir þeim vörum, sem
hörgull er á og nota hinn geysi-
mikla ágóða til fjárfestingar.
Lýsingin á lífi rússneskra
fjölskyldna er ágæt, þar er
sýnd hin nýja stéttaskipun,
rætt um hin sálrænu vandamál
og upplausn fjölskyldna sem
fylgir húsnæðisþrengslunum og
loks er komið að þjóðfélags-
vandamái, sem nú er að verða
erfitt viðureignar, uppkomu
nýrar auðstéttar, er lifir í óhófi
og svalli m. a. I skemmtibænum
Karlsbad í Tékkóslóvakíu. í
kaflanum um menntun er rætt
um það á eftirtektarverðan
hátt hvað bilið milli mennta-
manna og almúgans sé miklu
meira en tíðkast á Vesturlönd-
um, engin leið sé til önnur en
menntun, að komast áfram, —
þegar unglingur verður að
hætta námi í miðjum klíðum er
framavonum hans þar með
lokið.
Dókin er hvorki landfræðileg
né staðháttaleg lýsing og
ekki um það að sakast. Það er
þó galli á henni að ekkert skuli
vera vikið að Leningrad, en hún
er mikil menningarmiðstöð og
vestrænust borga Rússlands.
Eigi er heldur lýst hinum
gamla söguríka Kænugarði,
ekki Donetz-héruðunum, sem
eru Ruhr Sovétríkjanna né
heldur að neinu ráði nýja iðn-
aðarhéraðinu kringum Novosi-
birsk, sem er einskonar Kali-
fornia Sovétríkjanna með
mestri mannfjölgun. Engar upp--
lýsingar er að fá um íbúatölu
Moskvu og það gleymdist að
lýsa grafhýsi Lenins á Rauða-
torginu. Frá sjónarmiði ís-
lenzks lesei.da vantar stuttan
kafla um Murmansk og hinar
miklu fiskveiðar Rússa.
Ýmislegt er að athuga við
hið sögulega yfirlit. Stofnun
Kænugarðs er auðvitað ekkert
upphaf rússneskrar sögu Is-
lenzkum lesanda þykir undar-
legt að ekkert er minnzt á
Væringja og menningarsam-
skipti Norðurlanda og Rússa
sem af þeim Ieiddi. Ekkert er
minnzt á Rapallo-samninginn
og það hernaðarsamstarf sem
síðan tókst milli Rússa og
Þjóðverja „áður“ en Hitler
komst til valda. Hitt að Stalin
hafi skipað þýzkum kommún-
istum að ganga £ lið með naz-
istum 1930 er vafasamt og á
Miinchen-samningnum kemur
fram allt að þvi kommúnfsk
söguskoðun.
I sambandi við kirkjuna er
þess ekki gætt að hún hefur
aldrei verið pólitiskt afl i Rúss-
landi, hvorki á timum keiara né
kommúnista. Og ekki er vikið
að þeirri hreyfingu andatrúar
eða guðspeki, sem nú gengur
yfir landið, einkum meðal
menntafólksins.
Þá held ég að það sé rangt,
að skammstöfunarheiti bílaverk
smiðjunnar í Moskvu ZIL séu
upphafsstafir fyrrverandi for-
stjóra hennar. Verksmiðjan hét
til slf^p^s tíma ZIS. Það var
skammstöfun fyrir Stalins-bíla-
verksmiðjumar. Þykir mér ekki
ólíklegt að breyting síðasta
stafsins úr S í L tákni það ein-
faldlega að þær eru nú kallaðar
Lenin-verksmiðjurnar, en ekki
vissi ég fyrr af þeirri breytingu.
IJókin er þýdd af Gunnari
Ragnarssyni og Thorolf
Smith, en þeir hafa ekki leyst
verk sitt nógu vel af hendi.
Víða rekst maður á villur eins
og að „pillar" sé þýtt pílári eða
að nyt úr kúm sé skrifað nit. I
einum kafla er notað til skiptis
Pétursborg og Pedrograd. Hitt
er þó verra að setningaskipun
er víða stirð og óíslenzkuleg,
oft eins og vanti nógu næma
tilfinningu fyrir málinu. Þýð-
endurnir hafa bundið sig um
of við orðaröð hins enska frum
texta. Lakast er þetta í mynda-
textunum.
Konur vinna algeng verkamannastörf í Rússlandi. Hér sést
ein vinna með loftbor í gatnagerð. Mynd úr bókinni Rússland.
Tjegar á allt er litið finnur
maður hlýju höfundar þess-
arar bókar til rússnesku þjóð-
arinnar. Frásögn hans ásamt
hinum mörgu vel gerðu mynd-
um vekur skilning lesandans á
því að Rússar eru þrátt fyrir
alla pólitikina þekkileg þjóð,
evrópsk að menningu en að
vísu fátækari og skemmra á
veg komin en Vestur-Evrópu-
þjóðir. Maður finnur sárt til
þess að henni skuli af pólitísk-
um misgáningi ekki gefinn
kostur á að taka þátt í þeirri
efnahagslegu uppbyggingu sem
nú á sér stað vestar i álfunni
og gætu bætt lífskjör hennar
stórlega á skömmum tíma.
Þorsteinn Thorarensen.
AHUGASÖM BÖRN
Börn og unglingar hafa ekki
síður áhuga fyrir kosningunum
en fullorðna fólkið, ef dæma
skal eftir þeim áhuga sem þau
sýna við vinnu á kjördag. Mynd
in sýnir nokkr. unga Reykvík-
inga, sem voru við störf fyrir
Sjálfstæðisflokkinn á kjördag.
BÆKUR 0G HÍIFUNDARI