Vísir - 13.06.1962, Blaðsíða 1
VISIR
52. árg. — Miðvikudagur 13. iúní 1962. — 132. tbl.
Fundur í dag um
síldveiðikjörin
Bilið milli deiluaðila í síldveiði- !
kjaradeilunni hefur ekkert minkað j
enn. -— Nýr sáttafundur verður
haldinn í dag.
Eins og getið var £ Vísi í gœr
boðaði Landssamband íslenzkra út
vegsmanna til almenns fundar síld-
arútvegsmanna til þess að ræða
ástand og horfur vegna stöðvunar
síldveiðiflotans.
Fundurinn var haldinn í gær-
kvöldi í fundarsal LÍÚ og var
mjög fjölsóttur, og mikill ein-
hugur ríkjandi meðal útvegs-
manna.
Á annað hundrað fulltrúar báta-
eigenda víðs vegar að af landinu
sóttu fundinn. Forráðamenn LÍÚ
j skýrðu frá samningaumleitunum
j þeim, sem fram hafa farið að und-
anförnu og hvernig þær stæðu og
síðan voru þau mál rædd.
Síðasti sáttafundur var haldinn
sl. föstudag og náðist enginn ár-
angur.
Þegar Vísir ræddi við LÍÚ í
morgun og spurði um fundinn í
gær og horfurnar, fékk hann þær
upplýsingar, að bilið milli deilu-
aðila hefði ekki mjókkað neitt, og
lögð var áherzla á algeran einhug
útvegsmanna.
Sáttasemjari mun boða aðila í
deilunni á fund síðdegis í dag, að
þvf er Vísi var tjáð í morgun, er
hann ræddi við LÍÚ.
pgj i
ininiuwmnw
•:•>■ •• •:••• > '
44 V-íslendingar
hér í hópferð
Mikið var um að vera á af-
greiðslu Loftleiða milli klukkan j
fimm og sex í morgun. Komu þá
tvær flugvélar frá félaginu, vestan
um haf og voru með þeim 44
manna hópur Vestur-íslendinga, !
sem hingað eru komnir í hópferð.
Með fyrri vélinni var átta manna j
hópur, en þeirri síðari 36 nianna
hópur.
Fjöldi manna beið á flugvellin-
um að taka á móti ættingjum. Hitt
ist þarna margt fólk, sem aldrei
hafði sést áður eða þá fyrir löngu
síðan. Talsverður hluti af fólkinu
er fæddur hér á landi, en hefur
yfirleitt ekki komið til íslands um !
áratuga skeið og margt aldrei. j
Flest er fólkið á efri árum.
Ferð þessi er skipulögð af All-
Ways Travel Bureau í Winnipeg.
Forstjóri skrifstofu þeirrar er Art-
hur Anderson, sem er Svíi að ætt.
Er hann fararstjóri ferðarinnar, en
með honum er meðeigandi hans,
Alister Stewart, sem verið hefur
þingmaður fyrir fylki sitt á Kanada
þingi, um 15 ára skeið.
Aðeins um tíu af öllum hópnum
munu búa á hótelum meðan staðið
er við hér á landi. Hefur því ekki
verið skipulagt neitt af ferðum fyr
ir hópinn sameiginlega. Þó mun
allur hópurinn fara í ferð um
Reykjavík og nágrenni á morgun,
í boði Þjóðræknisfélagsins. Að
henni lokinni situr hópurinn kaffi-
boð borgarstjórans í Reykjavík í
Þessa dagana er unnið að því
að gera Sæbjörgu „sjóklára“.
Á myndinni sézt önnur vakt-
in, ásamt stýrimanninum
Herði Þorsteinssyni, sem ver-
ið hefur aðalkennari á sjó-
vinnunámskeiðunum. Einnig
er á myndinni kokkurinn, frú
Ámína Hjálmarsdóttir. Skip-
stjóri á Sæbjörgu verður
Þröstur Sigtryggsson.
Ljósm. I. M.
Athyglisverð starfsemi Æskulýðsráðs
Veturinn fimmtíu og átta hóf
starfsemi sína hér í borg sjó-
vinnunefnd Æskulýðsráðs
Reykjavíkur, skipuð fulltrúum
ýmissa félagasamtaka er að
sjávarútveg lúta, ásamt full-
trúum Æskulýðsráðs. Nefnd
þessi hefur beitt sér fyrir sjó-
vinnunámskeiðum fyrir pilta,
sem hafa gefið mjög góða raun.
Á námskeiðum þessum, sem
hefjast í byrjun desember og
standa til loka maímánaðar, er
drengjunum kennt ýmislegt er
sjómennsku varSar, svo sem
hnútabindingar, splæsa tóg og
vír, bæta net, einnig hjálp í
viðlögum, undirstöðuatriði í
vélfræði og stýra eftir kompás.
Námskeiðunum lýkur svo með
stuttri ferð út á Faxaflóa i
boði Landhelgisgæzlunnar.
í maímánuði er drengjunum
gefinn kostur á að æfa sig í
róðri, er lýkur svo með þáttt.
þeirra í róðrakeppni Sjómanna-
dagsins.
Undanfarin sumur hefur ver-
ið gerður út skólabátur og gefst
piltunum kostur á að vera til
sjós í þrjár vikur.
Sú nýbreytni hefur nú verið
upp tekin að ráða drengina í
samfellda vinnu allt sumarið og
drengjunum skipt í þrjá flokka,
Framh. á 5. síðu.
húsakynnum borgarstjórnar við
Skúlatún.
Næstkomandi mánudag heldur
svo Þjóðræknisfélagið sinn árlega
gestafagnað að Hótel Borg. Verður
allur þessi hópur þar, sem gestir
Framh. á bls. 5.
Flotaheimsóknin
á Seyðisfírði
Hópur Vestur-íslendinga gengur út úr seinni vélinni í morgun.
Farþegalisti bis. 9.
í gær komu tvö þýzk skólaskip,
Graf Spee og Hipper til Seyðis-
fjarðar og stendur flotaheimsókn
þessi í tvo daga. Þýzki sendiherr-
ann Hirschfeld og starfsmenn frá
sendiráðinu komu einnig austur, til
fundar við hina þýzku sjóliða.
Þá skipaði þýzki sendiherrann Pét
ur Blöndal ræðismann Þýzkalands
á Seyðisfirði. Hafði sendiherrann
boð inni í skólahúsinu í gær fyrir
yfirmenn af skipunum og ýmsa
Seyðfirðinga sem boðið var þang-
að. Tóku þar til máls Hirschfeld
sendiherra og Erlendur Björnsson
þæjarstjóri. ,
Hin þýzku skip koma hingað,
eftir 4 y2 mánaðar skólaferð til Suð !
ur-Ameríku. Síðast höfðu þau við- J
komu á Azor-eyjum. Annað þeirra
sigldi norður fyrir land en hitt'i
fyrir sunnan og mættust síðan á |
Seyðisfirði. Ástæðan fyrir því að
Seyðisfjörður var valinn til heim-
sóknar er sú, að þar er bezta höfn
á Austfjörðum.
Sjóliðarnir hafa fengið landvist-
arleyfi og sjást víða á götum
Seyðisfjarðar. Eru þetta allt ungir
og prúðir menn. Þeim hafa verið
Framh. á bls. 5
í gær voru 10 ár liðin síðan
Loftleiðir hófu reglubundið
flug yfir Atlantsliafið til Ev-
rópu og Ameríku. Áður hafði 1
félagið haldið uppi flugferð-
, um, en ekki eftir fastri áætl-
un. Til flugsins voru í fyrstu
notaðar tvær Skymaster-flug-
vélar Loftleiða, Hekla og
Geysir. Síðan hefur Loftleið-
um vaxið mjög fislcur um
hrygg og á það nú margar
DC-6 flugvélar, sem hafa við-
komu hér á hverjum degi og
oft á dag á leið sinni austur
vestur um haf.
MM—uwumaiCtsiBraiafKrrt--