Vísir - 13.06.1962, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 13. júní 1962.
VISIR
Séð yfir fundarsalinn á ráðstefnu Verðbergs að Bifröst í Borgarfirði.
Pólittskt og efnahagslegt
samstarf eykst i NA TO
Frá ráðstefnu Varðbergs
þetta samstarf er nefndi ræðumað-
! ur lausn Kýpurdeilunnar og fisk-
veiðideilunnar milli íslands og
Bretlands Þessar deilur hefðu varla
orðið eins auðleystar ef fulltrúar
deiluaðilja hefðu ekki setið við
sama borð.
Utanríkisstefna Rússa og hern-
aðarstefna þeirra er óbreytt, sagði
! Jóhann Hafstein og sést það m. a.
| á múrnum í Berlín og kjarnorku-
sprengingum þeirra s.l. sumar.
Frá fréttaritara Vísis
að Bifröst.
Ráðstefna Varðbergs,
samtaka um vestræna sam
vinnu, hélt í morgun áfram
í Bifröst í Borgarfirði, með
því að Jóhann Hafstein,
formaður hinnar íslenzku
þingmannanefndar NATO,
flutti ræðu, sem fjallaði
um stjómmálaviðhorf At-
lantshaf sbandalagsríkj -
anna.
Ræðumaður rakti stofnun At-
lantshafsbandalagsins, en orsök
stofnunar þess var yfirgangur og
hernaðarstefna Rússa. Þeir höfðu
á nokkrum árum lagt undir sig
Eystrasaltsríkin og kúgað mörg ríki
Mið-Evrópu og gert þau að al-
gerum leppríkjum sínum. Þannig
höfðu Rússar lagt undir sig á fá-
um árum þjóðir, sem voru að
mannfjölda 92 milljónir. Var NATO
þannig stofnað vegna stríðshættu,
en hefur orðið mikilvægasta vörn
friðarins.
Jóhann Hafstein vitnaði í Lest-
er Pearson fyrrv utanríkisráðherra
Kanada, sem sagði að þó NATO
væn stofnað vegna stríðsótta, sem
varnarsamtök, hlyti þróunin að
verða I átt til efnahagslegrar og
pólitískrar samvinnu, sem nú er
komið I Ijós.
Mikilvægi hernaðarsamstarfsins
sést af því, að frá 1949 hafa hin
pólitisku landamæri ekkert breytzt
En hið efnahagslega og pólitíska
samstarf hetur aukizt og kemur
það fram f ýmsum myndum. m. a
■ stofnun þingmannanefndar NATO Einn þátttakenda i Varðbergs-
1955. | ráðstefnunni, ungfrú Sakelera-
Til dæmis um hve mikilvægt | poulus frá Gr<kklandi.
| Þá vék hann að því að ný við-
! horf væru nú að koma upp I sam-
starfi NATO-þjóðanna, sem mark-
ast af tvennu, stofnun nýrra ríkja
I Afríku, sem NATO-ríkin vilja
eiga náið samstarf við og 1 öðru
lagi myndun Efnahagsbandalags
Evrópu.
| Að lokum brýndi ræðumaður fyr
I ir áheyrendum, að sókn væri bezta
vörnin gegn kommúnismanum.
j í morgun flutti Helgi Bergs er-
indi, sem fjallaði um ísland og
efnahagssamvinnu Evrópuþjóða og
síðdegis ætlaði Frakkinn Bertoin,
sem er starfsmaður Efnahagsbanda
lags Evrópu að flytja erindi um
bandalagið.
Nefndir sátu að störfum í gær-
kvöldi og munu halda áfram störf-
um í kvöld.
Æskulýðsráð-
Framh. af bls. 1.
sem skiptast svo á að vera á
skólabátnum og vinna í landi.
Meðal verkefna sem drengirnir
vinna að I landi er að hreinsa
fjörurnar og vinna við Höfða,
sem ' 'ðlega verður starfrækt-
ur sem æskulýðsheimili.
.. -ir . þessa er drengj-
unum gr :idd laun samkvæmt
taxta VinnusIrA’-i Reykjavíkur
og á sjónum fá þeir 1000 kr„
frítt fæoi og Jlahlut að auki.
Starfsgmi þessi er nokkuð
kostnaðarmikil og hefur 'eykja
víkur1 or ; styrl't hana, auk þess
cem ríkisstj j.-nin ' efur veitt
styrk -til sk ' fsins, en iann
er eitt af varðskipunum, S:
b.'örg. í því sambandi má geta
bess, að Lanc’ dgisgæzlan hef-
rr al!' starfsemi þessari
íikinn /elvilia. Eins 'g fyrr
'ic'ur fsemin gec'ð
njög ;óða -aun, vaxið ört og
orðið fjölbi ’tt; me3 ári
'iverj.. Á sjóvk.nunefnd Æsku-
lýðsráðs því þakkir skyldar
fyrir vel unnin störf.
----------------- 5
3,8% hækkun á mjóSk
I morgun urðu nokkrar verð
hældcanir á landbúnaðarafurðum.
Stafar það af 4% launahækkun
þeirri, sem nú gengur jafnt yfir
allar stéttir og fá bændur og vinnu
fólk þeirra einnig hækkun. Auk
þess bætist nú við á verð afurð-
anna gjald í stofnlánasjóð landbún
aðarins sem nemur %% af grund-
vallarverði.
Verðhækkunin sem nú gekk I
gildi nemur þó ekki meiru en 3,5 —
3,8% nokkuð breytileg eftir vöru-
tegundum.
Líterinn af mjólk I flöskum
hækkaði um 15 aura úr 4,15 I 4,30.
44 V-íslendinfjar-
Framh. af 1. síðu.
félagsins, en auk þess býður það
öllum öðrum Vestur-íslendingum,
sem hér eru staddir að vera gestir
sínir á fagnaðinum. Að öðru leyti
er öllum heimill aðgangur meðan
húsrúm leyfir.
Hópurinn lagði af stað frá Winni
peg fyrir hádegi I gær og hefur
því verið á ferð upp undir sólar-
hring. Ekki sáust þó nein þreytu-
merki á fólkinu og virtist það
mjög hrifið af að vera komið til ís
lands. Mjög misjafnt er hversu
lengi fólkið ætlar að dvelja hér, en
engir munu þó ætla að standa
skemur við en I hálfan mánuð og
sumir I allt sumar. Virtist flestu
fólkinu vera efst í huga að heim-
sækja æskustöðvar og kynnast
frændfólki hér.
Sófasettið —
Framh. af bls. 16.
af Siglufirði. Hafa þau búið I
Reykjavík aíla sína hjúskapar-
tið. Auk fyrrnefndra oarna eiga
þau hjón fjögur uppkomin börn.
Jóhann hefur um mörg undan
farin ár unnið hjá Eimskip í
vöruskemmu. Slðastliðin þrjú
ár hefur hann þó verið alger
öryrki og ekkert getað unnið,
vegna magasjúkdóms. Það eru
miklir erfiðleikar fyrir fjöl-
skyldu rö missa þannig fyrir-
■vinn-i sína og gleðilegt að þau
hjón skyldu c.ða fyrir því
happi að fá vinninginn. Við
tókum þau h-jónin tali.
- Hafið þið keypt Vísi
lengi?
— Við höfum fengið blaðið
I nörg ár.
Hringt var til Jóhanns í gær-
morgun jg honum tilkynnt að
hann hefði hlotið vinninginn.
— Hvernig varð þér við, þeg-
ar þú heyrðir þetta?
— Þetta kom mér algerlega
á óvart. Ég áttaði mig alls ekki
á hvað var að ske. Það er á-
kaflega skémmtilegt að verða
fyrir svona óvæntu happi. Ég
rankaði eiginlega ekki við mér
fyrr en löngu seinna.
Við spyrjum frúno hvernig
henni hafi orðið við-
— Það fyrsta sem ég sagði,
var að Guð hefði gefið okkur
þetta. Erfiðleikarnir nafa verið
svo miklir og við hefðum aldrei
getað veitt okkur þetta sjálf.
Hafif þið valið ykkur
húsgögn?
— 'á. Við öldum sófasett,
ser- kostar ! 1.900 krónur )kk-
ur lar ti! að reyna að fá
okkur sófaborð með því, ef við
getum.
^ Franski liershöfðinginn Henri
Hugo Trakk baðst .ausnar frá her
bjónustu eftir að hann hafði undir
ritað fyrirskipunina um aftöku
tveggia OAS-morðingja fyrr í vik
unni.
Nortgui "■''lland, Jtóra Bret-
land, Sovétríkin og Japan hafa
undirritað s-'+ti ála um hvalveiðar
í sujurhöfum.
Rjómi hækkar um 90 aura á líter
úr 46 krónum I 46,90. Smjörkílóið
hækkar um 2,40 kr. úr 69,00 í
71,40. 45 prósent ostur hækkar um
1,30 kr. kíló úr 63,30 I 64,60.
Súpukjöt hækkar um kr. 1,05 kg
úr 27,70 I 28,75. Þá mun 5 kg poki
af úrvalskartöflum hækka um 60
aura úr kr. 17,75 I 18,35.
Hér hafa aðeins verið taldar al-
gengustu landbúnaðarafurðirnar,
en aðrar vörutegundir hækka allar
samsvarandi þessu.
Framh aí 1 síðu.
sýndar fræðslukvikmyndir um ís-
land.
I dag lýkur heimsókninni með
því að skipstjórinn á Graf Spee
býður ýmsum Seyðfirðingum I
kvöldverðarboð I skipi sínu.
ÍÞrengsla^egur —
Framh at 16 síðu
rúmlega helmingnum af þeirri leið.
Samt eru miklar vonir bundnar við
það að endarnir nái saman fyrir
haustið og að vegurinn verða opn-
aður fyrir vetrarumferð næsta vet-
ur Þrjár jarðýtur eru nú að starfi
austan fjalls til að undirbúa veg-
inn frá Ölfusvegi og upp á fjallið.
Bráðlega verður byrjað á að keyra
að fyllingarefni og verður það að-
alvinnan eins og áður.
Enda þótt vegarendarnir nái sam
an I haust, er samt sem áður langt ,
frá því að vegurinn sé fullgerður
Það þarf víða að hækka hann frá
því sem hann er nú og ólíklegt má
telja að sumarumferð um hann
verði Ieyfð á næsta sumri. Auk
þess er ölfusvegurinn of mjór til
að taka við aðalumferðinni milli
Reykjavíkur og Suðurlandsundir-
lendisins.
Fyrstu framkvæmdir við
Þrengslaveg voru gerðar 1951 með
því að ýta upp hrauninu á nokkr-
um kafla vestan við Þrengslin, I
tilraunaskyni, m.a. til að kanna
snjóalög. En samfelld vegargerð
byrjar ekki fyr en sumarið 1956 og
hefur síðan verið unnið þar á
hverju sumri.
Vegurinn kemur niður á Ölfus-
veginn milli bæjanna Vindáss og
Hjalla og er um 19 km á lengd
þaðan sem hann er lagður af gamla
Svínahraunsveginum.
Vegurinn þessa nýju leið verður
nokkrum kílómetrum Iengri I
Hveragerði heldur en Hellisheiðar-
vegurinn.
Kyndill —
Frh. af 16. síðu:
um. Taldi skipstjóri hann ekki
meiri en svo að óhætt væri að
lesta I þá anka, sem ekki láku.
Var :in hieðsla á' skipinu og
sett í það 605T90 lítrar, sem flutt-
ir oVu til Akraness. Ekki var út-
gerð slcipsins þá tilkynnt um
skemmdirnar fyrr en búið var að
Iesta það að mikli leyti. Ekki
mun strandið heldur hafa verið til-
kynnt I land, þegar það skeði.
Hvorki radar né dýptarmælir
skipsins voru I gangi er það strand
aði.
Samkvæmt i.pplýsingum sem
blaðið fék hjá Gunnari Guðjóns-
syni, skipami .a, sem sér um
útgerð skipsins, er skipið nú á
leið til Englands til viðgerðar.
Segir hann að það sé allmikið
skemmt I botn' i, en skemmdir
hafa e! ' verib fullrannsakaðar
enn.
Skipstjóri á Xy.idli er Pétur
Guðmundsson. Kcfur hann verio
það undanfari: sjö ár og er því
mjög kunnugur þessari siglinga-
leið. Skipið er um 1000 tonn að
stærð og sjö ára gamalt.