Vísir - 13.06.1962, Page 9
Miðvikudagur 13. júní 1962.
VISIR
Skin og skúrir.
í sögu íslenzku þjóðarinn-
ar hafa skipzt á skin og skúr-
ir, góðæri og hallæri. í hin-
um erfiðu árum hefur þjóðin
orðið að þola þungar búsifj-
ar, örbirgð og atvinnuleysi,
sult og seyru.
Þegar aftur hefur birt upp.
náttúran orðið mild og örlát
á ný, hafa hin erfiðu ár oft
verið furðu fljót að gleymast.
í góðærum hefur því verið of
lítill gaumur gefinn að safna
til mögru áranna, til þess að
létta þjóðinni þær þrautir,
sem yfir hana dynja, þegar
harðnar í ári. Miklum hörm-
ungum hefði mátt forða,
á undangengnum -öldum,
hindra hungursneyð, létta
byrðar, hefðu hin góðu árin
verið notuð til þess að safna í
komhlöður.
Langt er nú liðið síðan haf-
ís og hamfarir náttúrunnar
hafa valdið hungri og mann-
felli á íslandi. Vonandi verð-
ur þess langt að bíða, að slík-
ar hörmungar heimsæki þjóð-
ina á nýjan leik, enda er að-
staða öll önnur og betri nú
en fyrr til þess að afstýra
eða draga úr þeim.
★
Góðæri vara
ekki eilíflega.
En íslendingar mega ekki
gleyma því, að góðæri vara
ekki eilíflega. Það verður að
reikna með því, að góð ár og
erfið skiptist á. Aflaleysi, ó-
Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra:
/goðærí á að sahta
til erfiðu árama
gæftir, óþurrka, náttúru-
hamfarir, verðfall afurða og
fjölmarga aðra uggvænlega
atburði getur að höndum bor-
Gunnar Thoroddsen.
ið, og þjóðin þarf að vera við-
búin að mæta þeim.
Umræður fyrir
fyrir þrjátiu árum.
Fyrir þrjátíu árum var sú
hugsun ofarlega á baugi, að
rfkissjóður ætti í góðæri að
hafa nokkurn tekjuafgang,
leggja hann til hliðar, safna
til mögru áranna. Þegar
harðna kynni 1 ári og at-
vinnulíf að dragast saman,
átti ríkissjóður að ráðast í
meiri verklegar framkvæmd-
ir og skapa aukna atvinnu.
Lög um
jöfnunarsjóð.
Þessar umræður leiddu til
þess, að á árinu 1932 voru
sett Iög um Jöfnunarsjóð.
(Ekki má blanda honum sam-
an við Jöfnunarsjóð sveitar-
félaga, sem veitir viðtöku
hluta af söluskatti og lands-
útsvörum og jafnar þessum
tekjum milli sveitarfélag-
anna).
Lögin frá 1932 um Jöfnun-
arsjóð mæla svo fyrir, að
þegar tekjur ríkissjóðs fara
fram úr lögboðnum og óhjá-
kvæmilegum greiðslum, og
handbært fé ríkissjóðs fer
fram úr tiltekinni upphæð,
skuli leggja tekjuafganginn í
Jöfnunarsjóð. Fé hans má að-
eins nota til þess
1) að greiða tekjuhalla, sem
verða kann hjá ríkissjóði,
2) að veita fé til fram-
kvæmda, er áætlaðar tekj-
ur í fjárlögum nægja ekki
til framkvæmda, sem
svara að minnsta kosti
meðaltali 5 síðustu árin.
3) að greiða auka-afborganir
af skuldum ríkissjóðs.
Orð Jóns Þorlákssonar.
Um þetta merka mál fór-
ust Jóni Þorlákssyni svo orð
á Alþingi 1931:
„Ég álít, að frumvarpið ...
feli að talsverðu leyti í sér
þær grundvallarreglur, sem
þarf að fylgja til þess að
fjármálastjómin verði heil-
brigð hér í okkar landi, þar
sem afkoma atvinnuveganna
og ríkissjóðs er svo mismun-
andi frá ári til árs.“
„Frumvarpið ætlar Jöfnun-
arsjóði þrjú verkefni, sem
mér finnst öll eðlileg verk-
efni fyrir slíkan sjóð, svo að
ekkert megi undan ganga.“
„Ég er þess vegna í aðal-
atriðunum ánægður með
frumvarpið eins og það er og
er sannfærður um, að það
verður okkur til hagnaðar, ef
það verður að lögum og kom-
andi stjórnir framfylgja því
eins og það er.“
★
Ef til vill hefur falizt í nið-
urlagsorðum Jóns Þorláks-
sonar hugboð um, að ríkis-
stjórnir myndu verða tregar
til þess að framfylgja lögun-
um, — óska heldur að ráð-
stafa tekjuafgangi eftir hent-
ugleikum, án tillits til fyrir-
mæla laganna.
Reynslan segir sína sögu.
í 30 ár, sem liðin eru síðan
lögin voru sett, hefur engin
ríkisstjórn framkvæmt þau.
Væri það ekki viturlegt, að
halda upp á 30 ára afmæli
þessara merku laga, með því
að hrinda nú í framkvæmd
þeim hyggilegu og framsýnu
hugmyndum, sem lögin um
Jöfnunarsjóð hafa að geyma,
að safna í sjóð til erfiðu ár-
anna?
Fjaðrapenninn á
lofti allan daginn
Mikil aðsókn hefur verið að
sögulegu sýningunni i Miðbæjar-
skólanum, sem var opnuð sl. föstu-
dag, eins og getið var í síðasta
laugardagsblaði. Má segja, að alla
dagana hafi legið straumur fólks
niður í Miðbæjarskóla.
Var það sem að líkum lætur fólk
á öllum aldri, og munu þar ekki
hafa verið fæstir ungir nemendur
og gamlir, jafnvel eldgamlir, og
svo fólk á öllum aldri þar á milli.
Mörgum þótti sérstaklega skemmti
legt að skrifa nafnið sitt í gesta-
bókina, en fjaðrapennar eru hafðir
til reiðu í því skyni. Á fimmta
þúsund manns hafa nú skoðað sýn
inguna og á 8. hundrað skrifað
nafn sitt £ gestafcúkina.
Aðgangur að sýningunni, sem
fær almannalof, er ókeypis, en
merki sýningarinnar, mjög snoturt,
er selt á 10 kr., og má fullyrða, að
það verði eftirsóttur, kær minja-
gripur mörgum, síðar meir.
Sýningin er opin til 20. þ. m. —
Menn ættu að skoða sýninguna
fyrr en seinna nú £ góðviðrinu og
forðast ös sem áreiðanlega verður
mest seinustu dagana.
Ekki voru tök á þvf í fréttum sl.
laugardag, að geta þeirra sem innt
hafa af höndum mikið og gott und-
irbúningsstarf. Fræðsluráð undir-
bjó sýninguna, en f þ"f eiga sæti:
Helgi Hermann Eiríksson formað-
ur, Auður Auðuns, Magnús Ást-
marsson, Friðbjörn Benónýsson
og Kristján J. Gunnarsson Fram-
kvæmdastjóri sýningarinnar er
Jónas B. Jónsson fræðsiustjóri.
Framkvæmdastjóri sögulegu skóla-
sýningarinnar er Gunnar M. Magn-
úss, framkvæmdastjóri kennslu-
tækjasýningarinnar Kristján Sig-
tryggsson, en framkvæmdastjóri
sýningar á rfkisútgáfu námsbóka
Jón Emil Guðjónsson. Umsjón
sýningarinnar annast Pálmi Jósefs-
son, Jón Guðmannsson og Sigfús
Sigmundsson.
► Nehru forsætisráðherra Ind-
lands hefur Iýst yfir, að hann telji
ekki yfirvofandi hættu á styrjöld
miiii Indiands og Kína.
Poznan-sýning
Að undanfömu hefur verið unn-
ið af kappi að undirbúningi 31. al-
þjóða vörusýningarinnar í Poznan,
en hún verður haldin 10. —20. júní.
Reistur hefur verið nýr skáli á
sýningarsvæðinu, 3350 ferm. að
flatarmáli, og tvæ'r sýningarálmur
hvor um sig 1000 fermetrar, en
með þessari viðbót verður sýning-
arsvæðið alls um 70.000 fermetrar.
Til alþjóðasýningar var fyrst stofn
að f Poznan fyrir 40 árum. Á síð-
ari árum hefur komið æ gleggra í
ljós, að Pólland er vaxandi iðn-
aðarland, en erlendir afurða- og
vörusýnendur ráða annars yfir
hálfu sýningarsvæðinu og eru frá
löndum í öllum heimsálfum. — Á
30. alþjóðasýningunni í Poznan
voru sýnendur frá 57 löndum.
*
Norðmenn athuga fisk-
veiðar við V.-Afríku
NÝLEGA fór norsk fiskveiða-
nefnd frá Bergen til Nigeríu til að
athuga möguleika á túnfiskveiði
þar, en einnig veiði annara fiski-
tegunda, svo og að kynna sér fisk-
sölu og hafnarskilyrði á ströndum
Vestur-Afríku.
Fararstjóri er dr. phil. Birger
Rasmussen, en auk hans eru í
nefndinni Johannes Hamre frá Haf
rannsóknarstofnunni í Bergen, einn
fremsti sérfræðingur Norðmanna
f túnfiskveiðum, og bræðurnir Ras
mus og Alf ErvÍK frá Sunnmæri,
sem báðir stunda fiskveiðar sem
atvinnugrein.
Nefndin ætlar að athuga veiði-
skilyrði við strendur Vestur-Afríku
frá Lagos í Nígtríu til Casablanca,
og mun ferðalagið taka nokkrar
vikur.
Meðlimir nefndarinnar hyggj-
. ast taka sér far með japönskum
í túnfiskbát til að kynnast af eigin
raun aðferðum og tækni við veið-
arnar. Þess er ekki að dyljast, að
Japanir eru einhverjir beztu fiski
menn heims og það er staðreynd,
að þeir hafa staðið sig með mestu
prýði við veiðiskapinn mcðfram
ströndum Vestur-Afríku.
i (Skv. Ægi.)
r
Vestur-íslendingarnir
Hér á eftir fer listi yfir nöfn og heimili þeirra Vestur-
íslendinga, sem eru hér staddir f hópferö. (Sjá frétt).
Mrs. Sofia Fowler
Mrs. Kristina Johnson . .
Mr. John Dahl
Mrs. John Dahl
Miss Laufey Melsted . . .
Mr. B. Janussen
Mrs. Johanna Larusson .
Mr. Albert Anderson . .
Miss Gudrun Sigurdson .
Mr. Helgi Olsen
Mrs. Helgi Olsen
Mrs. Anna Eyford ....
Mrs. Gundy Seibel ....
Mr. Th. J. Skagfjord . . .
Mrs. Th. J. Skagfjord . .
Mrs. Gudrun Hallson . .
Mr. V. Anderson
Mrs. V. Anderson
Miss Elin Bildfell
Miss Jonina Steffansson .... Winnipeg, Manitoba
Mrs. A. Moldvan
. Mrs. Aug. Eyolfson ....
Mr. Helgi Hornford . . .
Mrs. Helgi Hornford . . .
Miss Anna R. Johnson .
Mr. Gudjon Johnson . . .
Mrs. Gudjon Johnson . .
Mr. Karl Bjarnasson . . .
Mrs. Karl Bjarnasson . .
Mr. R. Arnason
Mrs. R. Arnason
Mr. S. Wopnford
Mrs. S. Wopnford
Mr. Eirikur Bjarnason . .
Mr. John Bergdal . . . .
Mr. Heimir Thorgrimson .... Winnipeg, Manitoba
Mr. F. Thorgrimson . . .
Mrs. Hilma Bjorklund . .
Mrs. Gudrun S. Vidal .
Mr. Gisli Gudjonsson .
Mr. Arthur A. Anderson
Mr. Alistair Stewart . . .
Mr. Gisli Johnson .... .... Winnipeg, Manitoba
Mr. Karl Hanson
V. i y