Vísir - 13.06.1962, Side 16
VISIR
Miðvikudagur 13. júní 1962.
Góðar heimtur
á járnsmiðum
„Heimturnar á járnsmiðunum
eru betri en við bjuggumst við“,
segja forstjórar járnsmiðjanna. —
„Eftir að hafa heyrt sögur um að
jámsmiðir séu farnir út og suður
í margvíslegustu störf, þá kemur
það nokkuð á óvart, hve margir
eru komnir aftur“.
Þetta er almennt hljóðið í járn-
smiðjunum þessa dagana eftir verk
fallið. Hins vegar vantar enn mik-
ið upp á að vinnuaflið sé nægilegt.
Ástæðan fyrir því er sú, að verk-
efnin hafa hlaðizt upp meðan á
verkfallinu stóð, en ekki það, að
mennimir hafi ekki komið til baka.
Ný frétt um
Bontrann
Þorvaldur Garðar Kristjánsson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins heldur erindi hjá Sjálfstæðismönnum á Vesturlandi.
Meðal áheyrenda má sjá Gunnar Ásgeirsson Akranesi, Jón Bjamason Akranesi, sr. Magnús Guðmundsson Ólafsvík, Bjaraa
Benediktsson dómsmálaráðherra og Friðrik Þórðarson Borgamesi. (Sjá 7. síðu).
Allmjög er nú rætt um það í er-
lendum blöðum og útvarpi hvort
nazistaforsprakkinn Bormann muni
vera enn á lífi. Spánverjinn de Val
esco, kveðst hafa verið blaðafull-
trúi við spænska séndiráðið í Lon-
don. Hann segir, að hann hafi síð-
ast séð Bormann 1958 í Ecuador,
og var þá mjög tekinn að hrörna,
og höfðu verið gerðar á honum 3
skurðaðgerðir til þess a breyta út-
liti hans. — Bormann var á sinum
tíma helzti aðstoðarmaður Hitlers.
Ótal sögusagnir hafa komizt á
kreik um, að hann væri á lífi.
Eldur
í hádeginu kviknaði eldur í hús-
inu að Hverfisgötu 54. Kom
slökkvilið á vettvang og stöðvaðist
umferðin við þetta, í mesta um-
ferðatímanum á þessari götu. —
Slökkviliðið var enn að fást við
eldinn þegar Vísir fór í prentun.
i> Sænskir hermenn í Kongó hafa
verið sýknaðir af ákærum um þjófn
Þrengslavegur kemst /
samband á þessu árí
Gert er ráð fyrir að Þrengsla-
vegurinn, sem unnið hefur verið
að í Elisabethville í desember sl. að um nokkur undanfarin ár,
komizt í samband við Ölfus- sem nokkru nemur.
veginn seint í sumar eða haust, Þá er það annar kostur við
þannig að bílar geti ekið um ^ Þrengslaveginn framyfir Hellis-
hann næsta vetur, þegar Hellis-1 heiðarveginn, að brekkan niður af
heiðarvegur iokast vegna snjó- fjallinu er þar miklu lægri, aðai-
þyngsla. j brekkan aðeins rúmlega 70 metrar
Þrengslavegurinn verður miklu í staðinn fyrir 180 metra hæð af
snjóléttari leið heldur en Hellis- Kambabrún og niður á jafnsléttu.
heiðarvegurinn, enda um 100 metr- í Vindáshlíðinni, þar sem Þrengsla-
um lægri yfir sjó, þar eð hann er .vegurinn kemur niður af fjallinu
ekki nema í 280 metra hæð, þar j að austan er mestur halli 1:14, en
sem hann er hæstur, en Hellis- í Kömbum eru bröttustu brekkurn-
heiðarvefturinn um 380 metra yfir
sjó. I miklum snjókomum og vetr-
arham hefur oft reynzt örðugt að
halda Hellisheiðarveginum opnum
og stundum ómögulegt með öllu.'
Þrautalendingin hefur þá orðið sú,
að fara um Krýsuvík, en það leng-
ir vegalengdina til muna. Með
ar ca. 1:8.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegamálaskrifstofunni var fyrir
skömmu í vor byrjað á vegagerð
á Þrengslaleið, og er nú unnið að
lokaáfanganum yfir heiðina, frá
Ölfusvegi og upp á fjallið, þar sem
lokið var við vegargerð á sl. hausti.
Þrengslaveginum vinnst það hvort-. Er það samtals 3.7 km. langur
I
tveggja, að fá tiltölulega snjólétta
leið og án þess að leggja leiðina
kafli, en vegargerð mjög erfið á
Framh. á bls. 5.
Mynd þessi er tekin í Skeifunni í gær af Jóhanni og fjölskyldu hans í „Cannes-settinu“, sem þau
vöidu. Með þeim er Ragnar Haildórsson, afgreiðslustjóri Vísis, sem afhenti þeim vinninginn.
Sófasettii kom sér veí
í gær var dregið í áskrifenda-
happdrætti Vísis. Vinninginn
hlaut Jóhann Hannesson, Skúla-
götu 70. Dregið . var um ,að
þessu sinni húsgögn frá Skeif-
unni f Kjörgarði/ að verðmæti,
12.000 króriúr. Þetta er í fyrsta
skipti sem dregið er f. áskrif-
endahaþpdrættinu, en frajnveg-
is verður dregið í því mánað-
arlega og því næsti dráttur um
12. júlí næstkomandi. Allir
þeir áskrifer.dur Vísis, sem
greitt hafa áskriftargjöld sín,
fyrir daginn sem dregið er, eru
sjálfkrafa þátttakendur í happ-
drættinu.
Vi& hittum Jóhann Hannes-
son í Skeifunni í Kjörgarði í
gær, þegar hann kom þar að
velja sér húsgögn fyrir vinn-
inginn. Með honum var kona
hans, Ingibjörg Björnsdóttir,
og tvö börn þeirra, Jónína og
Ragnar. Jóhann er ættaður
vestan af Mýrum, en kona hans
Framh. á bls. 5.
lrt/>AAAWWWVWWV/W\/WVVWVWMWVWWWWWWWWVWSA^AA/VW
Kyndill ske&mist
mikið / strandi
Aðfaranótt mánudagsins 4. júní
strandaði olíuskipið Kyndili á
Kerlingaskeri. Sker þetta er
skammt fyrir vestan Suðurnes,
sem liggur út úr Seltjarnarnesinu,
en þar á milli er hin venjulega
siglingaleið inn i Skerjafjörðinn.
Var ókipið fyrir allmiklum
skemmdum og er farið til Eng-
lands til viðgerðar.
Þegar út úr höfninni í Reykja-
vík var komið versnaði skyggni tii
muna. Ekki var það þó verra en
svo að shipstjóri taldi ekki ástæðu
til að hægja á skipinu. Þegar kom-
ið var nálægt Suðurnesi, virtist
skipstjóra skipið vera of nálægt
nesinu og gaf skipun pm að beygja
á stjórnborða (til hægri).
Var skipið þá í sundinu milli
Kerlingaskers og Suðurness, sem
er aðsins um hálf míla á breidd.
Leiðarmerki þau sem farið er eft-
ir á leið þessari eru Besstastaða-
kirkja og Ásvarða og sást hvorugt.
Þó telur stýrimaður sig hafa greint
Bessastaðakirkju £ kíki, skömmu
fyrir strandið.
Skömmu eftir að skipstjóri gaf
skipun um að breyta um stefnu,
tók svo skipið niðri og var þá á
fullri ferð. Vélar skipsins voru þá
stöðvaðar og strax hafist handa
um að dæla úr skipinu ballest.
Þegar strandið varð, voru tveir til
þrír tímar til háflóðs, en skipstjóri
taldi ekki rétt að bíða eftir því,
með að reyna að ná skipinu út.
Olli því meðai annars sunnanátt,
sem þá var og það að hann taldi
skipið mikið til laust.
Mili 30 og 40 mínútum eftir að
hafið var að dæla ballest úr skip-
inu, losnaði það og var siglt til
Skerjafjarðar. Var þar farið ofan
í tanka skipsins og þeir athugað-
ir. Reyndist vera leki á tveim stöð-
Framh. á 5. síðu.