Vísir - 22.06.1962, Blaðsíða 2

Vísir - 22.06.1962, Blaðsíða 2
VISIR Föstudagur 22. júnf 1962. j^- V//ÆMmK2M!Z7////A | J Li—^ r~q t~ r* T1 Vandræðabam \ hnefaleikanna í haust eða nánar tiltekið þann 25. september n. k. fer fram í Chicago í Banda- ríkjunum ein mesta hnefaleikakeppni síðan þeir Gene Tunney og Jack Demprey börðust tvisvar á árunum 1926 og 1928. Kapparnir sem þarna mætast eru núver- andi heimsmeistari, blökkumaðurinn Floyd Patterson og kynbróðir hans Sonny Liston, sem til þessa hefur verið „vandræðabarn hnefaleikaheimsins nr. 1“. Sonny Liston sá fyrst dagsins ljós fyrir 29 árum f borginni Little Rock f Arkansas, sem síðar varð frœg fyrir kynþáttaerjur eins og kunnugt er. Sonny ólst upp við hin mestu sultarkjör hjá móður sinni og var elztur og erfiðastur 25 barna hennar! Sonny komst snemma á skýrsl- ur, — ekki hnefaleika heldur lögregluskýrslur, — og var hann til skamms tíma í slagtogi með glæpamönnum, ,sem annað hvort eru nú í fangelsum eða standa í málaferlum. Þessi slæma fortíð hans í einkalífi hefur líka orðið honum fjötur um fót og talið er að hann hefði líklega keppt um heimsmeistaratitilinn fyrir a. m. k. tveimur árum ef hann hefði verið sá „engill“, sem hann nú er orð- inn. Æfingar hafnar í Catskills-fjöllum. í þvf augnamiði að „komast úr sollinum" hefur Liston komið sér upp æfingastöð í Catskills-fjöllum um 100 mílur frá Manhattan, dá- samlega fallegum stað. Blaðamaðurinn Frank Butler frá News of the World í Englandi átti viðtal við kappann í þessum búð- um hans og segist Butler hafa hitt allt annan mann en þann sem fyrrum átti í útistöðum við 'lög- regluna. j Þreyttur á hlutverki .slæma stráksins“ hallar hann sér nú að því að betrumbæta sig og keppir að því marki að verða viðurkennd- ur eins góður borgari og hver annar....... og auk þess að því að verða heimsmeistari, og milljón- ari í dollurum. „Slow Thinker“. Sonny er að dómi Butlers ein- feldningur og enda stutt síðan að hann lærði að lesa og skrifa nú fyrir skemmstu, enda voru ekki mörg tækifæri fyrir hann í æsku að læra slíkt í þeirri fátækt sem hann og hinn 'stóri systkina- hópur ólst upp við. Einnig er hann fullur varúðar nú orðið er hann svarar spurningum og gefur sér gjarnan langan umhugsunasfrest. Ellefti leikur Islandsmótsins, milli KR og ísafjarðar. KR vann fyrir vestan með 2:0 í vor eins og kunnugt er. Isfirð- ingar eru nú neðstri í keppninni með ekkert stig. Hann vill ekki tala eins og fávfs kona. |l Viðtalið. Butler spurði strax stórrar spurningar: ,ý „Rotarðu Patterson?" Eftir umhugsun svarar Liston: „Ég get ekki svarað því ná- kvæmlega." Þá fór blaðamaðurinn aðra leið: „Verður þetta langur bardagi?" Eins og elding kom svar Listons að þessu sinni: „Maður minn, þetta verður ör- stuttur bardagi." Og það var greinilegt hver aðil- anna það var sem átti að svífa inn í draumalandið. Eftirfarandi orðaskipti fóru fram undir lokin: „Hefur nokkur hnefaleikari nokkurn tfman slegið þið niður?“ „Nei, herra.“ „Hefur nokkur þeirra veitt þér áverka með einu höggi?“ „Énginn hefur meitt mig,“ svar- aði Liston. .Heldurðu að Patterson meiði þig?“ „Ég hef barizt við menn sem hafa slegið tvöfalt fastar en Patt- erson." „Menn segja vinstri hönd þína þá beztu í jieimi. Hvað um þá hægri?“ „Ég hef slegið marga niður méð þeirri hægri.“ „En hvert er uppáhaldshögg þitt?“ „Vinstra högg fyrir þá sem hörfa, en hægra fyrir þá sem sækja, — og þeir eru nú orðið ekki margir." „Finnast þér æfingarnar tilbreyt- ingarlitlar?“ „Lífið getur verið tilbreytingar- lítið, en það er mikill léttir að fá borgað fyrir þetta.“ „Hvað hefurðu um stíl Patter- sons að segja?“ „Ég legg ekkert upp úr „stíln- um“, — ég legg upp úr að vinna.“ Jesúítaprestur sneri hnefaleik- aranum af villu síns vegar. Liston segir að það sé Jesúíta- presti að þakka að hann hefur nú snúið baki við glæpaklíkunum, sem hqnn lagði lag sitt við áður Prestur þessi séra Murphy, frá Denver í Colorado hringdi meðan á samtalinu stóð og þegar Lliston setti símann aftur á, sagði hann: „Já hann er það sem er hægt að kalla maður.“ Patterson er um margt líkur Liston. Patterson er líka búinn að slá uþp æfingabúðum og eru þær á svipuðum slóðum og búðir List- ons, en nær New York. Sagt er að Patterson vilji aldrei heyra styggðaryrði um Liston. „Sjálfum var mér skipað með vandræðabörnum og var sendur á skóla fyrir slík börn. Það er ekki auðvelt að þræða hinn vmjóa veg réttvísinnar, þegar um er að ræða anna hvort að svelta eða stela. Ég held að Liston verði hér eftir góð- ur og gegn borgari,“ segir hann. Hvað segja sérfræðingarnir? í borg skýjaklúfanna, New York, sögðu sérfræðingar í fyrra að Liston mundi hreint og beint „éta“ Patterson ef þeir berðust. Nú hef- ur tónninn hins vegar breytzt og þeir segja eitthvað sem svo: „Liston er of seinn, Patterson fer inn í hann og lætur þennan stóra dreng líta út eins og górilluapa." En hvað sem því líður, þá er bú- izt við að hér verði „keppni ald- arinnar“ í hnefaleikum og talið er að tekjurnar verði yfir 5 milljónir dala og sjónvarpsstöðvarnar hafa boðið hæst 1.7 millj. dala fyrir réttindin á sjónvarpi frá keppn- inni, en það er mejra en helmingi hærra en greitt var fyrir rétt til sjónvarps frá keppni Ingemars og Floyds í fyrra. Stjórnunarfélaginu Stjórnunarfélag Islands var stofn- að 24. janúar 1961 og hélt nýlega fyrsta aðalfund sinn. Félaginu er ætlað að vinna að framförum í hvers konar rekstri einstaklinga, félaga og hins opinbera og vinna að samvinnu þeirra, sem áhuga hafa á stjómunar- og hagræðing- armálum. Vill félagið með því stuðla að bættum atvinnuháttum og aukinni framleiðni með þróun verklegrar menningar og aukna velmegun þjóðarinnar fyrir aug- um. Skrásettir félagar eru nú á fyrsta starfsári orðnir rúmlega hálft ann- að hundrað einstaklingar og rúm- lega 50 félög, fyrirtæki og stofn- anir. Af því helzta, er Stjórnunarfé- lagið hefur gert eða gengizt fyrir á fyrsta starfsári má nefna: Vikunámskeið um kostnaðareft- irlit og skipulagningu vinnuaðferða undir leiðsögn bandaríkjamannsins Donald F. Lane, forstjóra hjá Inter national Management Company. 1 júní 1961 mætti formaður Stjórnunarfélagsins á framkvæmda ráðsfundi Alþjóðanefndar vísinda- legra stjórnunarmála, Commité International de 1’ Organisation Scientfique, CIOS, í París og var þá Stjórnunarfélag íslands form- lega samþykkt sem meðlimur í þeim alþjóðasamtökum. Lokið er nú tveimur af þeim þremur þriggja vikna námskeiðum í vinnurannsóknum, sem Iðnaðar- málastofnun íslands heldur £ sam- ráði við • Stjórnunarfélag íslands. Lokanámskeiðið verður haldið hú í haust. Stjórnunarfélagið efndi til ráð- stefnu um mánaðamótin ágúst—• september að Bifröst í Borgarfirði. Ráðstefnuna sóttu um sjötíu manns, forstjórar og fulltrúar frá mörgum stærstu fyrirtækjum, at- vinnusamtökum og stofnunum landsins. Gestur félagsins á ráð- stefnu þessari var dr. Harold Whitehead frá British Institute of Management og flutti hann erindi um stjórnunarmál. Menntamálaráð herra, dr. Gylfi Þ. Gíslason, flutti og erindi um menntun í stjórnun- armálum. Auk erindáflutnings störfuðu á ráðstefnunni umræðu- hópar, er hver tók fyrir sérstök verkefni til umræðu. Á lokafundi sínum samþ'ykkti ráðstefnan all umfangsmiklar ályktanir um gagn- legar og nauðsynlegar ráðstafanir, er koma þyrfti £ framkvæmd. Að lokinni ráðstefnunni gaf fé- lagið út þingtíðindi ráðstefnunnar í bókaformi undir nafninu „Stjóm- un fyrirtækja". Bók þessi hefur verið send öllum félögum SFl. í júlf síðastliðnum hóf SFl útgáfu fjölritaðs félagsbréfs og hafa nú verið gefin út fjögur tölublðð af því. Þrjár fastanefndir eða vinnuhóp- ar eru nú starfandi á vegum fé- lagsins: Orðanefnd er fjallar um nýyrði varðandi stjórnunar- og hagræðingarmál, vinnuhópur, er f.jallar um reikningalykil (standard kontoplan), og vinnuhópur um sjálfvirkni (automation). Þegar hef ur verið gerður nokkur undirbún- ingur að stofnun vinnuhóps eða umræðuhóps um starfsmannamál almennt. Stjórnunarfélag íslands tekur þátt í undirbúningi að ráðstefnu Evrópudeildar CIOS, sem haldin verður í Róm í október næstkom- andi. Þegar er hafinn undirbúning- ur að 13. alþjóðaráðstefnu CIOS, sem halda á í New York 1963. í tilefni þeirrar ráðstefnu er efnt til alþjóðlegrar ritgerðarsamkeppni um kjörorð ráðstefnunnar, sem er „Human Progress Through Better Management". Verðlaun eru 4.000 svissneskir frankar. Þátttaka í báð- um þessum ráðstefnum er heimil öllum félögum SFÍ. Stjórn iélagsins var endurkosin á aðalfundinum og er þannig skip- uð: Formaður: Jakob Gíslason, raf- orkumálastjöri. Meðstjórnendur: Gunnar J. Friðriksson, forstjóri, varaformaður Félags ísl. iðnrek- enda. Sveinn Björnsson, forstjóri Iðnað- armálastofnunar íslands. Gísli V. Einarsson, skrifstofustjóri Kassagerðar Reykjavíkur. Eyjólfur Jónsson, skrifstofustjóri, framkvæmdastjóri Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Aðrir framkvæmdaráðsmenn eru: Björn Halldórsson framkvæmda- stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna. Einar Bjarnasorr, rikisendurskoð- andi. Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS. Guðmundur Ólafsson, skrifstofustj. Framkvæmdabanka Islands. Hjálmar Blöndal, hagsýslustjóri Reykjavíkurbæjar. Jón H. Bergs, forstjóri, meðlimur í stjórn Vinnuveitendasambands íslands. Snorri Jónsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Islands. Forráðamenn Almenna bókaféiags- ins ræddu við fréttamenn i gær um bækur mánaðarins fyrir mai og júni, sem nú eru út komnar. Maí- bókin er myndum skreytt bók um Italíu, en júníbókin er Fuglabók AB í þýðingu og umsjá dr. Finns Guðmundssonar Fuglabók AB eða Fuglar íslands og Evrópu er eftir 3 heimsfræga fuglafræðinga, Ameríkumanninn Roger Peterson og Englendingana Guy Mountfort og P A. Hollon, en inngang ritar Julian Huxley Er þetta viðurkennd einhver allra merkasta fuglabók, sem út hefur komið Hún sameinar vel alla meg- inkosti, sem góð fuglabók þarf að hafa: Et handhæg að stærð, þægi- leg meðferðis í ferðalögum, búin miklum og ágætum myndakosti. sem miðar fyrst og fremst að því að gera mönnum kleift að greina hinar nýju fuglategundir, sem á vegi þeirra vérða, er fróðleg um útbreiðslu fuglanna og tekur til allra fugla, sem sést hafa í á Is- landi og annars staðar í Evrópu og er síðast en ekki síst nákvæm og skilrnerkileg að fr'amsetningu og byggð á nýjustu vísindalegri þekkingu Hún fjallar um 573 fuglategundir og í henni eru yfir 1200 myndir, 380 útbreiðslukort, er gefa til kynna á hvaða einkennum er auðveldast áð greina eina teg- ■tnd frá öðrum skyldum tegundum. Dr. Finnur hefir þýtt og staðfært bókina og hefur raunar átt þátt i henni frá upphafi að því er Is- land varðar eins og fram kemur í Timálsorðum höfundanna. Dr Finnui hefur iagt feikna vinnu i þetta verk og er það álit sérfróðra manna, að útgáfa bókar- innar marki tímamót, eins og út- koma Flóru íslands á sínum tíma. ÍTALÍUBÓKIN. Höfundur hennar er Herbert Kubley, sem dvalið hefur Iang- | dvölum á Ítalíu. Bókin er með sama sniði og þær tvær bækur, sem áður hafa komið í þessum flokki. Myndir eru hátt á annað hundrað og margar þeirra litmynd- ir. Bókin er þýdd af Einari Páls- j syni. — I þessum flokki koma síð- ar samskonar bækur um Bretland, Japan, Mexikó og Indland. , Almenna bókafélagið á miklar þakkir skilið fyrir útgáfu slíkra bóka ..em þer. ara Með slíkri út- j gáfustarfsemi er innt af höndum hjð merkasta menningarhlutverk. Bandaríkjamenn hafa skotið á loft gervihnettinum Tirosi V, sem Í£kur ljósmyndir af skýjurn og borgarís. Hann er hinn fullkomn- asti Tirosgervihnattanna fimm, sem skotið hefur verið á loft, veg- ur 128 kg. /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.