Vísir - 22.06.1962, Qupperneq 7
Föstudagur 22. júní 1962.
VISIR
T TPPI á efsta Iofti í skrifstofu-
húsi Kassagerðar Reykja-
víkur, að Laugavegi 178, standa
á gólfi 15 listaverk eftir mynd-
höggvarann Nínu Sæmundson
og bíða þess að þeim verði fund
inn framtíðarstaður. Saga þeirra
síðustu misserin er sagan um
hvemig þeim var bjargað frá
skemmdum og eyðileggingum
úti í New York fyrir framtak
íslenzks atháfnamanns, er sá
þau þar og flutti þau heim til
íslands. Meðal listaverkanna er
frummyndin af einhverri feg-
urstu höggmynd,' sem íslenzkar
hendur hafa mótað, Móðurást,
sem allir Reykvíkingar þekkja
og stendur steypt í eir í Thor-
valdsensgarðinunt.
★
T ISTAKONAN sjálf, Nína
„ , ... ...
Sæmundsson, bjo um þrja-
tíu ár í Bandaríkjunum, en er
nú komin heim og vinnur að
list sinni hér í Reykjavík. Hún
hafði sjálf ekki bolmagn til þess
að annazt heimflutning lista-
verkanna. Sú aðstoð, sem var
veitt í því efni, hefir orðið til
þess að myndirnar eru ekki glat
aðar islandi og íslenzkri list-
mennt, heldur inunu þær nú
verða varðveittar hér og er það
vel farið. Nína hefur lengi not-
ið mikils og verðskuldaðs álits
sem listakona, og þó hefur hróð
ur hennar verið meiri erlendis
en hér heima, enda hefur hún
lengi dvalizt utan. Verk hennar
hafa verið sýnd á listsýningum
bæði í Evrópu og Bandaríkjun-
um, í Grand Palais í París, í
Róm, New York og Los Angeles
svo aðeins nokkrir staðir séu
nefndir. Og maður þarf ekki
annað en blaða í úrklippubók
hennar til þess að sjá hve1 iof-
samlega Iistgagnrýnendur hafa
ritað um höggmyndir hennar.
Frægasta verk hennar er tví-
mælaiaust styttan „Achieve-
ment“, sern stendur yfir aðal-
dyrum Waldorf-Astoria gisti-
hússins í New York. Sú mynd
er tvímælalaust víðkunnust
allra íslenzkra lisíaverka.
■fc
— IV/TÉR blöskraði að sjá
1 listaverkin liggja und-
ir skemmdum úti í New York,
sagði Kristján Jóhann, þegar
við inntum hann eftir því hvers
vegna hann hefði flutt verkln
heim. Listakonuna skorti fé til
heimflutnings og mér fannst
sjálfsagt að láta flytja mynd-
irnar heim. Við höfum ekki
efni á því að láta slík verk
hverfa. Mér finnst þau mjög
falieg og mín skoðun er sú, að
koma eigi þeim einhvers staðar
þar sem almenningur fær notið
Nína Sæmundson og Kristján Jóhann Kristjánsson hjá listaverkunum. Höggmyndin heitir
Bedúinastúlka á bæn.
Þetta eru frummyndirnar, sem fluttar voru heim frá Bandaríkjunum og bíða nú eftir framtíðarstað.
þeirra.
Auk Móðurástar má þarna
sjá myndina Bedúinastúlka á
bæn, sem fyrir skömmu var á
Vorsýningunni. Þá eru þama
myndirnar Huggun, Þrá, Vatns-
b'erinn, sem Nína gerði eftir
dvöl sína í Túnis, auk margra
andlitsmynda. Þar er heim-
skautakempan Freuchen með
sitt mikla slœgg, Ibsen og hin
kunna leikkona Greta Nissen,
svo að nokkrir séu nefndir.
— Hvað verður um myndirn-
ar, spyrjum við Nínu. — Ég
veit það ekki, segir hún. Hér
standa þær og bíða þess að
þeim verði fundinn framtiðar-
staður. Sjálf hefi ég ekki rúm
fyrir þær í vinnustofu minni á
Þórsgötu 21.
TW'ÍNA hefir ekki unnið að
höggmyndum sínum í nær-
fellt ár vegna veikinda, en er
nú aftur byrjuð að móta og
höggva í vinnustofu sinni. Síð-
ustu tvö verk hennar eru mynd
af Forseta íslands og stór mynd
af Nonna, sem Menntamálaráð
fól henni að gera. Sú mynd er
nú fullgerð fyrir nokkru og bíð-
ur þess að verða send utan til
afsteypu. Vel væri henni skip-
að á Akureyri, þar sem Nonni
ólst upp við leik og sögur.
Námsbi um félagsmál
„Við álítum að mikið megi lag- I Meðal efnis sem tekið verður fyr-
færa og bæta félagsmál, og þó sér
staklega æskulýðsmál. Það verður
hins vegar ekki gert nema kryfja
þau mál til mergjar, grafast fyrir
unt gallána og undirbúa bætt fé-
lagsstörf á raunhæfan hátt. Þvi er
nú á vegum Landssambandsins
gegn áfengisbölinu efnt til fræðslu
námskeiðs um félagsmál, þar sem
þau verða rædd til hlitar“.
Þannig komst Vilhjálmur Ein-
arsson, stjórnandi námskeiðsins
að orði er hann jpplýsti frétta-
menn um þetta merkilega fyrir-
tæki Landssambandsins.
Fræðslunámskeið þetta stendur
yfir dagana 22.-26. júní n.k. og
verður til húsa í Safnaðarheimili
Langholtssafnaðar, Sólheimum 13.
ir eru vandamál æskunnar, ung-
templarastarfsemin, félagsmál al-
mennt, áfengisvandamálið og
reglusemi 'og íþróttir. Meðal fyrir
lesara verða Helgi Þorláksson,
skólastjóri, sr. Bragi Friðriksson,
Gísli Halldórsson arkitekt, Ólafur
Þ. Kristjánsson, skólastjóri, og sr.
Árelíus Níelssoii. Allir eru menn
þessir reyndir í félagsmálum og
gjörkunnugir æskulýðsstarfinu.
Öllum þeim sem áhuga hafa á
uppeldismálum, æskunni og hvers
konar félagssarfsemi, er frjálst að
aækja námskeiðið. Þarna á í og
með að þjálfa fólk til forystu í
félagsmálum, fjölga sjónarmiðum
þeirra og auka víðsýni þeirra.
Skrifað hefur verið til félaga-
samtaka viða út um land, og menn
hvattir til þátttöku, og fyrir þá
sem búsettir eru í Reykjavík eða
nágrenni, er námskeiðinu þannig
hagað, að það fellur ekki inn í
vinnutíma fólks.
Ef þessi merkilega og jákvæða
tilraun heppnast mun næsta skref-
ið verða að setja upp heimavistar-
námskeið fyrir áhugasama menn
um æskulýðs- og félagsmál. Þessi
viðleitni stendur því og fellur með
þátttökunni nú, og er full ástæða
til að hvetja æskumenn að gefa
námskeiði þessu gaum, og að sem
flestir taki þátt í því.
Þótt menn sitji ekki námskeiðið
er öllum frjálst að hlusta á fyrir-
lestra meðan húsrúm leyfir. Dag-
skrá námskeiðsins verður birt síð-
ar hér í blaðinu, en allar pánari
upplýsingar munu verða veittar í
síma 19405.
Vænzt laxagöngu með
Jónsmessustraumi
Laxveiðin hefur verið með al-
bezta móti, það sem af er júní-
mánuði. Yfirleitt er veiðin lítil
fyrri hluta þessara mánaðar,
en þeir sem hafa farið til veiða
að undanförnu hafa ekki orðið
fyrir vonbrigðum. Veiðin hefur
t. d. verið með betra móti í
EHiðaánum. Hún byrjaði einnig
snemma í Laxá í Þingeyjarsýslu.
og í Norðurá hefur veiðzt vel.
í dag er fullt tungl og þá
stórstraumur á fimmtudaginn.
Er það Jónsmessustraumurinn
og er þá vænzt mikillar laxa-
göngu þvi að yfirleitt gengur
mikill lax i honum.
Höfum kaupendur að Volks-
wagen '58—’62 og Opel-bilum
nýjum og nýlegum og flestum
nýlegum bílategundum.
Ef þér viljið kaupa bil,
selja bíl eða hafa bíla-
skipti, þá hafið samband
við okkur.
Gamlc bílosalaii
Rauðará, Skúlagötu 55.
Simi 15812.
______________!____________