Vísir - 04.07.1962, Qupperneq 2
2
VÍSIR
Miðvikudagur 4. júlí 1962.
f>
\ t
W//////Æ
W/////A
6"n d
m
Knattspyrnumönnum
boðið í reiðtúr
Ein frægasta „taktík“, sem
enn hefur verið fundin upp í
knattspymu, er það þegar ís-
lcnzkir knattspymumenn buðu
knattspyrnumönnunum frá Aka
demisk Boldklub í Kaupmanna-
höfn í reiðtúr að Straumi fyrir
sunnan Hafnarfjörð. Unnu okk-
ar menn leikinn við þetta bezta
lið Dana daginn eftir með 4:1,
en tapaði svo tveim dögum síð-
ar með 2:7 fyrir sama liði, þeg-
ar HARÐSPERRURNAR voru
búnar í liði Dana.
Segir eitt dagblaðanna í
ágúst svo um þetta:
Heimboðsnefndin sá að eina
ráðið að AB gæti fcngið slæma
útreið var að fara með Danina
í „útreiðartúr“. I'ctta hreif og
í fyrrakvöld er þeir komu úr
Firðinum vom þeir allir liða-
mötalausir um hnén og það sem
snert hafði hnakkinn eins og gló
andi eldhaf. Liðamótin voru
ekki fundin aftur og eldurinn
Heimsmet í
fjórsundi
Nýtt heimsmet hefur verið sett í
4x100 metra fjórsundi. Það var
Bandaríkjamaðurinn Ted Sticklcs,
sem tók aftur metið af Þjóðverjan-
um Gerhard Hetz, sem setti met í
maí sl.
Stickies synti á 4:51,4 mín, en
Hetz átti metið á 4:52,8, óstaðfest
að vísu. Viðurkennda metið var
met Stickles 4:53,8 mfn.
Guðmundur Gíslason er einn af
beztu sundmönnum Evrópu í þess-
ari grein og er Norðurlandamet
hans á vegalengdinni 5:16,3, sett
snemma f vor.
ekki slokknaður i gærkvöldi. Og
við þær aðstæður er ekki gott
að sparka knetti“.
Þetta rifjaðist upp þegar
„heimboðsnefnd“ KR í sam-
bandi við Sjálandsúrvalið bauð
Dönunum á hestbak að Hrísbrú
í Mosfelissveit. Danir voru bún-
ir að læra af reynslu forfeðr-
anna og gættu sín vandlega á
„þarfasta þjóninum“, sem hafði
farið svo hryggilega með AB
fyrir 43 árum. Það hefur því
ekki verið harðsperrum um að
kenna í fyrrakvöld er Akurnes-
ingar gerðu svo óvænt jafntefli
við Sjálandsúrvalið.
Myndirnar af hestamennsku
SBU-manna tók ljósmyndari
VÍSIS, Ingimundur Magnússon.
HVÍSOMA
Héraðssamband Vestur-Isfirðinga
(HVÍ), var háð um síðustu helgi að
Núpi, Núpsskóla. Keppendur voru
um áttatíu aðallega frá fjórum
íþróttafélögum á Vestfjörðum. Veð-
ur var óhagstætt fyrri daginn, en
sólskin og gott veður á sunnudag-
inn. Mótið var sett af forseta ÍSÍ,
Ben. G. Waage, með ræðu. Sigurðiw
Guðmúndsson, íþróttakennari
stjórnaði mótinu röggsamlega, sem
fór vel fram. Fyrst fóru fram fim-
leikasýningar drengja, undir stjórn
Sigurðar Guðmundssonar, og þar á
eftir fimleikasýning stúlkna, undir
stjórn ungfrú Gígju Hermannsdótt-
ur, íþróttakennara. Fimleikasýning-
arnar fóru fram undir skemmtilegri
hljómlist — og tókust vel. Var
þeim klappað mjög lof í lófa að sýn
ingunum loknum. Það er orðið
fremur fátítt að sjá staðæfingar á
fimleikasýningum, meiri áherzla er
lögð á að sýna áhalda-æfingar ým-
iss konar.
Þá hófst keppni í frjálsíþrótt-
uh, sbr. meðfylgjandi keppnisskrá
og úrslit. Stigahæsta félagið var
Grettir, með 121 stig. Höfrungur
Umf. Mýrarhrepps 45 stig. Stiga-
fékk 99 stig. Stefnir 84 stig og
hæsti einstaklingurinn var Emii
Hjartarson (G) með 36 y2 og Ólöf
Ólafsdóttir (H), með 15% stig.
Tíu dögum fyrir afmælismótið,
var haldið íþróttanámskeið að Núps
skóla, undir forystu Sigurðar Guð-
Framh. á bls. 5.
Noregur vunn
Möltu 5:0
Norðmenn, sem landslið okkar í
knattspyrnu mætir á mánudaginn
kemur, keppti í gærkvöldi við ibúa
hinnar örsmáu eyju Möltu, sem er
sunnan við Sikiley.
Möitubúar töpuðu nú 5:0 en töp-
uðu á föstudagskvöldið fyrir Dön-
um með 6:1 í Kaupmannahöfn. Leik
urinn fór fram í Þrándheimi.
Möltumenn léku aigeran varnar-
leik og eftir 80. mínútur var stað-
an „aðeins“ 2:0 fyrir Noreg, en síð-
ustu 10 mínúturnar fundu þeir leið-
ina að markinu og skoruðu 3 til
viðbótar.
Leikmenn Möltu eru geysilagnir
með boltann og fljótir, en kunna
lítið í leikreglum og „taktík“ og
eru auk þess óvanir að leika á grasi,
en á klettaeynni þeirra leika þeir
á malarvelli.
Lokotilraun með itmdsliðið
í kvöld verður gerð endanleg til-
raun með landslið fyrir leikinn við
Noreg. Ákveðið er að hafa
engan pressuleik, þrátt fyrir að
svo sé skráð í leikskýrslu KRR.
Verður því landsliðið væntanlega
valið strax að þessum leik ioknum.
Er af þeim sökum mikið í húfi fyr-
ir leikmennina íslenzku, og ættu
knattspyrnuunnendur ekki að missa
af þessum leik. Ef íslenzka liðinu
tekst vel upp og sigrar í leiknum,
má búast við óbreyttu liði gegn
Norðmönnunum.
Danir stilla upp sínu sterkasta
iiði, liðinu sem sigraði KR. Er líka
óhætt að fullyrða að þá hafi Sjá-
lendingarnir sýnt sinn bezta leik.
Væri það stór sigur fyrir sjálenzka
úrvalið ef það hefði betur í viður-
eigninni við tilraunalandsliðið í
kvöld. Lið SBU er þannig skipað:
Johansen Köge, Jensen Rodkilde,
Nielsen Köge, Andersen Köge, Bent
sen AB, Astrup Lyngby, Nielsen
AB,. Jörgensen Köge, Olsen Rosk-
ilde, Andersen Köge, Nielsen Lyng
by.
Engar breytingar eða forföll eru
í íslenzka liðinu og er það þannig
skipað:
■ Heimir KR, Árni Val, Bjarni KR,
Garðar KR, Hörður KR, Ormar Val,
Steingrímur ÍBA, Ríkharður ÍA, Þór
ólfur St. Mirren, Kári ÍBA, Sigur-
þór KR.
Íþróttafréttaritaramótið
REYKJAVÍKURBÆR sá um 4.
dag móts íþróttafréttamanna,
sem frá hefur verið sagt hér á
síðunni að undanförnu. Jónas
B. Jónsson, fræðslufulltrúi og
Gísli Halldórsson ,arkitckt, fóru
með blaðamennina í iangferða-
bifreið til Krísuvíkur og þar
greip einn Finninn tækifærið
og stakk sér á bólakaf í ískalt
Atlantshafið, enda gefst honum
ekki tækifæri til þess á hverj-
um degi.
Síðan var ekið sem leið ligg-
ur að virkjununum i Soginu,
eftir að gufuvirkjanirnar i
Krísuvík höfðu verið skoðaðar.
Góðar veitingár voru bornar
fyrir fulltrúana í Sogsvirkjun-
inni og við það tækifæri af-
hentu Svíar frá Félagi íþrótta-
blaðamanna í Stokkhólmi ís-
lenzka félaginu að gjöf stóran
kristalvasa, en Svíarnir fóru
utan daginn eftir til að verða
vitni að bardaga Ingemars og
Johnsons í Gautaborg.
Ferðinni var siðan haldið á-
fram á Þingvöll og þjóðgarðs-
vörður, sr. Eiríkur J. Eiríksson,
hélt einstaklega skörulega og
skemmtilegan fyrirlestur um
sögustaðinn Þingvelli og skýrði
helztu kennileiti.
Frá Þingvöllum var haldið til
dælustöðvarinnar á Reykjum í
Mosfellssveit, en þaðan hafa
Reykvíkingar til þessa fengið
heita vatnið í hús sín. Dælan
er oft í gamni nefnd „romm-
dæla“ og fulltrúunum var ein-
mitt boðið að smakka á púnsi,
heitu íslenzku vatni úr iðrum
jarðar og rommi út í.
Lauk þannig þessari stórgóðu
ferð, sem Reykjavíkurborg
bauð til. Fóru flestir á Laugar- |
dalsvöliinn og horfðu á óhag-
stæðan samanburð íslenzkrar
og tékkneskrar knattspyrnu.
KR fékk mörk hjá unglingum
Tékka en skoraði ekkert í stað-
inn.