Vísir - 04.07.1962, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 4. júlí 1962.
V'lSIR
3
.v:
Það var glaða sóískin og hiti, þegar Varðar-menn komu að Skálholti. Hér sést fólkið ganga heim að síaðnum.
YFIR 400 I YARÐARFERÐINNI
Þegar yfir 400 manns néðan
úr Reykjavík lögðu á sunnu-
dagsmorguninn af stað í hina
árlcgu skemmtiferð Varðar var
þungbúinn himinn og skýjað og
nýlega hafði gert hellirigningu.
En þátttakendurnir voru bjart
sýnir þegar ekið vai út úr bæn
um. Það hlýtur að létta til,
sögðu þeir, það hefur alltaf ver
ið gott veður í Varðarferðun-
um.
Og það rættist iíka. Þegar
kom austur fyrir Krísuvík fór
sólin að skína niður um glugga
á skýjum. Það var áð í hraun-
inu í Herdísarvík og sumir
drukku kaffi. Þar fengu menn
yfir sig smáskúr, en sólin skein
í gegn.
— ★ —
Næst var komið að Strandar
kirkju og fólkið skoðaði hina
frægu kirkju undir leiðsögn
Rafns kirkjuvarðar. Þá hafði
verið boðið með í förin Gunn-
fríði Jónsdóttur listakonu, er
gerði minnismerki sjómanna
við Strandakirkju.
Enn var förinni haidið átram
austur á Selfoss, síðan til Eyr-
arbakka og Stokkseyrar, fram-
hjá Stokksnesvita. Þingmaður
kjördæmisins tók á móti hópn-
uin á Selfossi.
— ★ —
Komið var að hinu glæsilega
félagsheimili Þjórsárveri í Vill-
ingaholti og þar bauð Vörður
ferðafólkinu til hádegisverðar.
Framh. á bls. 10
Það var numið staðar við Strandarkirkju í Selvogi og hin fræga kirkja skoðuð.
Ámi Óla ritstjóri sést hér með Baldri Jónssyni úr stjóm
Varðar.
Hér sjást þrír af forystumönnum Sjálfstæðisflokksins, Höskuldur Ólafsson formaður Varð-
ar, Bjami Benediktsson formaður fiokksins og prófessor Þórir Kr. Þórðarson.